Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Hægt að kaupa nánast allt í íslenskum vefverslunum

Hægt að kaupa nánast allt í íslenskum vefverslunum

Já.is í sam­starfi við Stúdíó Birtíng

Á Já.is má finna vöru­leit sem leitar í vöru­fram­boði íslenskra vef­versl­ana. Þar má skoða vöru­úr­val, gera verð­sam­an­burð og finna þær vörur sem hentar best.

„Á Já.is er hægt að leita í vöru­úr­vali allra íslenskra vef­versl­ana, skoða hvað er í boði, gera verð­sam­an­burð og finna þannig vöru sem hentar hverjum og einum best á hag­stæð­asta verð­inu. Auk þess er lítið mál að útbúa óska­lista og deila honum með vinum og vanda­mönnum,“ segir Anna Berglind Finns­dóttir, verk­efna­stjóri hjá Já.is.

„Ég held að allir hafi upp­lifað það ein­hvern tím­ann að vanta ein­hverja vöru en ekki verið með það á hreinu hvar hún fáist. Oft endar það á því að maður þvælist um allan bæ eða er með ótelj­andi glugga og flipa opna á tölv­unni að reyna að bera saman mis­mun­andi vörur og missir oft alla yfir­sýn. Þetta vanda­mál vildum við leysa og bjuggum því til leit­ar­vél sem leitar í vöru­fram­boði íslenskra vef­versl­ana og sýnir þér allt fram­boðið í einum glugga. Hægt er að sía leit­ina eftir verði, versl­unum, vöru­merkjum og fleiri þáttum. Þannig verður leitin hnit­mið­aðri en í almennum leit­ar­vélum.“

Um leið er hægt að upp­götva eitt­hvað nýtt og skemmti­legt, eins og verslun eða vöru, sem við­kom­andi vissi ekki að væri til. „Vöru­leitin nýt­ist ekki síður þeim sem vilja áfram versla á staðnum, en vilja vita hvað er í boði áður en lagt er af stað.“

Úrvalið ótrúlega mikið

Hún segir mikla grósku vera í íslenskri vef­verslun og að breiddin í vöru­úr­vali sé gríð­ar­leg. „Það kom okkur skemmti­lega á óvart þegar við fórum af stað í þetta verk­efni. Eins og staðan er núna eru tæp­lega 600.000 vörur frá rúm­lega 500 vef­versl­unum í vöru­leit­inni á Já.is og það bæt­ist stöðugt við. Þú getur fundið hæla­skó, steypu­hræri­vélar, púslu­spil, róðr­ar­vél, nýtt bindi og allt þar á milli í vöru­leit­inni. Það er varla til sú vara sem ekki er seld í vef­verslun á Íslandi.“

Skjáskot af ja.is. Úrvalið er mikið.

Í stöðugri þróun

Nýlega var vöru­leit­inni bætt inn í Já.is-appið, sem er bæði í boði fyrir iOS- og Android-síma. „Þannig er auð­velt að finna vörur hvort sem þú ert heima eða á ferð­inni. Þessa dag­ana erum við að vinna í að API-tengja allar versl­an­irnar við Já, sem tryggir að upp­lýs­ingar upp­fær­ast oft á dag og nú þegar eru fjöl­margar versl­anir bein­tengdar við okkur á þennan hátt.“

Íslenskar vefverslanir eiga mikið inni

Vef­verslun á Íslandi hefur vaxið mikið und­an­farið ár, að sögn Önnu. „Á síð­asta ári sögð­ust 76,8% lands­manna hafa verslað á Netinu und­an­farna tólf mán­uði, sam­kvæmt Gallup, og hafa þeir aldrei verið fleiri. Þrátt fyrir það eru vís­bend­ingar um að vef­verslun eigi enn nóg inni hér­lendis. Þar má t.d. nefna að árið 2017 var vef­verslun Íslend­inga 2,9% af heild­arsmá­sölu­verslun á Íslandi meðan hún var um eða yfir 10% í nágranna­lönd­unum.“

Vegna óvenju­legra aðstæðna í sam­fé­lag­inu segir hún marga lands­menn án efa vera að prófa vef­versl­anir í fyrsta skipti þessa dag­ana eða kaupa vörur í vef­verslun sem þeir eru vanir að kaupa á staðnum, og átta sig um leið á því hversu þægi­leg leið þetta er. „Ég er viss um að við munum sjá áfram­hald­andi aukn­ingu í vef­verslun hér­lendis næstu ár. Það er alltaf að verða auð­veld­ara að versla á Netinu, versl­anir eru sífellt að hækka þjón­ustu­stig sitt og koma fram með nýjar lausnir í vöru­af­hend­ingu, heim­send­ingu, greiðslu­máta og fram­setn­ingu á vöru­upp­lýs­ingum.“

Upp­lifunin fær­ist því stöðugt nær því að not­and­inn sé heima að skoða og kaupa. „Já tekur þátt í þess­ari þróun með því að hjálpa not­endum að finna vörur sem henta þeim á sem bestu verði og einnig að gera íslenskum vef­versl­unum hærra undir höfði og auð­velda þeim að koma sér og sínum vörum á fram­færi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Kynning

Efni unnið í samstarfi við auglýsendur