Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Strauk í uppreisn og var loksins frjáls

Strauk í uppreisn og var loksins frjáls
Mynd / Unnur Magna

Erna Marín Bald­urs­dóttir, sem var mis­notuð af stjúp­föður sínum, man eftir einni heim­sókn þegar hún lá á spít­ala þegar stjúp­inn mætti allt í einu óboð­inn.

„Ég man þetta svo vel því hvorki mamma né hann komu nokkuð. Og ég lá þarna og hann fékk bara að æða inn á stof­una þar sem ég var. Ég var vak­andi en þótt­ist sofa og hann bara grenj­aði eins og lítið barn og sagði fyr­ir­gefðu, fyr­ir­gefðu. Þarna var hann ábyggi­lega nýkom­inn af Vogi,“ segir hún.

Að lokum sá Erna ekki annað í stöð­unni en að flýja heim­ilið og þá hófst tíma­bil þar sem hún flakk­aði á milli úrræða fyrir ung­menni í erf­iðum aðstæðum og strauk reglu­lega þess á milli. Á þessu tíma­bili urðu til flestir þeir papp­írar sem hún hefur undir höndum. Hún var erfið; reið út í mömmu sína og vildi alls ekki vera á sama heim­ili og stjúp­inn. Hún fór aftur að segja frá og á með­ferð­ar­heim­il­inu Tindum fannst henni loks­ins að hlustað væri á hana. Erna á erindi frá sál­fræð­ingi sem starf­aði á Tindum á þessum tíma þar sem við­kom­andi sagð­ist muna vel eftir frá­sögnum Ernu af kyn­ferð­is­of­beld­inu af hálfu stjúp­föður hennar og stjúp­systur. „Á þessum tíma var umræða um kven­kyns barn­a­níð­inga nán­ast engin og m.a. þess vegna er þessi frá­sögn svo greipt í huga und­ir­rit­aðrar.“

Erna var nokkrum sinnum tekin af lög­reglu fyrir smá­glæpi. Hún strauk ítrekað og var aug­ljós­lega í mik­illi upp­reisn. Spurð að því hvenær og hvernig hún komst loks í gegnum þetta erf­iða tíma­bil starir hún á mig. „Þetta er minnsta ruglið sem ég hafði verið í. Þetta var ekki erfitt,“ svarar hún ákveðin. „Ef ég á að vera algjör­lega hrein­skilin … Jú, ég var á göt­unni en þetta var frelsi. Ég upp­lifði þetta sem frelsi. Þetta var ekki vont. Hitt var ógeðs­legt; fang­elsi, van­ræksla, ofbeldi. Þetta var frelsi … Ég man ekki eftir þessum tíma sem erf­iðum.“

En hvað þá með stöð­ug­leika; hvenær upp­lifði hún stöð­ug­leika í fyrsta sinn?

„Hjá pabba. Frá því ég fór af Tindum og þar til hann dó. Þetta voru bara nokkur ár.“

Pabbi Ernu bjó í Danmörku og það varð lend­ingin eftir þvæl­ing í kerf­inu að hún flytti til hans. Hjá honum bjó hún þegar hún var á aldr­inum 15 til 17 ára. „Þessi ár voru bara stabíl og eðli­leg. Mér leidd­ist oft, ég var undir miklu eft­ir­liti og fékk mikið utan­um­hald. Pabbi var mjög strangur en þetta var hollt og gott fyrir mig. En ég var ekki búin. Eftir að hann dó hélt ég svo­lítið áfram að vera ung­lingur í upp­reisn.“

Það var mikið áfall fyrir Ernu þegar hann dó. „Þarna var allt öryggið mitt sem ég var loks­ins búin að finna og eina heil­brigða mann­eskjan, sem vernd­aði mig og gaf mér það góða sem ég þurfti svo mikið á að halda. Ég græt hann enn þá en ég finn mikið fyrir honum; hann er stór og sterkur partur af mér.“

Mynd / Unnur Magna

Táknrænar kærur

Erna er líka sterk. Hún segir það sjálf. Hún hefur þurft að berj­ast fyrir sjálfa sig og fyrir eldri son sinn, sem hefur ekki fengið þá þjón­ustu sem hann þarf og á rétt á. Á tíma­bili blómstr­aði hún; skap­aði, var í góðu sam­bandi og sótti sér aðstoð. En bar­áttan við kerfið hefur tekið sinn toll. „Ég varð veik af streitu,“ segir hún. „Þarna kom upp staða þar sem barnið mitt fékk ekki aðstoð. Svona hélt kerfið áfram að brjóta á okkur. Ég væri ekki að tala um þetta og vinna í þessu nema með sjálfri mér ef ég gæti fengið að gera það í friði.“ Fálætið sem bæði hún og sonur hennar hafa mætt í kerf­inu segir Erna ekk­ert annað en „kerf­is­bundið ofbeldi“.

En hún vill líka skila skömminni.

Erna seg­ist aldrei munu skilja mömmu sína. „Ég þurfti útskýr­ingu; af hverju? En ég kemst ekki til botns í því. Það er alveg sama hvað ég reyni. Það á að vera auð­veld­ara að finna frið ef maður getur sett sig í spor ann­arra. En ég gríp alltaf í tómt.“ Hún segir það „bilun“ en við­brögðin sem hún fékk við því að segja frá, bæði frá móður sinni og fag­að­ilum, sitji meira í henni en ofbeldið sjálft. „Ég hef alltaf unnið með ofbeldið eins og ég get því mér finnst vont ef eitt­hvað hamlar mér og er fyrir mér,“ segir hún. Hins vegar hafa við­tök­urnar stundum orðið til þess að hún hefur haldið sig frá því að leita sér aðstoðar.

Í haust leit­aði Erna til lög­reglu til að leggja fram kærur á hendur fjórum ein­stak­lingum. Kærurnar á hendur stjúpa og stjúp­syst­ur­inni voru tákn­rænar; stjúp­inn dáinn og hitt fyrnt. Eitt mál­anna er enn í skoðun. Í kjöl­farið ákvað hún síðan að leita til fjöl­miðla. Hún seg­ist vilja vekja fólk til umhugs­unar. Hún hefur sterka rétt­læt­is­kennd og tár­ast þegar hún talar um það hvernig brotið er á börnum, hvernig brotið var á henni og systur hennar og hvernig brotið hefur verið á syni hennar. Þetta er loka­til­raun hennar til að fá full­orðna fólkið til að hlusta og skilja.

Lestu umfjöll­un­ina í heild sinni í nýju Mannlífi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina