Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Hugur Elliða hjá Eyjamönnum: Erfið staða en vel unnið að málum

Hugur Elliða hjá Eyjamönnum: Erfið staða en vel unnið að málum
Elliði Vign­is­son. Mynd / Hákon Davíð Björns­son

Elliði Vign­is­son, sveit­ar­stjóri í Ölfusi og fyrr­ver­andi bæj­ar­stjóri Vest­manna­eyja, segir að þrátt fyrir þá þungu stöðu sem er komin upp í Eyjum vegna COVID-19 þá sé verið að vinna þrek­virki þar við að hefta útbreiðslu veirunnar. Hann kveðst hafa fullan skiln­ing á líðan íbúa í Eyjum, ekki síst þar sem náinn ást­vinur hans sé kom­inn í sótt­kví.

„Þetta er auð­vitað erfitt ástand, erfitt fyrir fólk að veikj­ast og erfitt að verða fyrir sam­komu­banni en þetta er gert af ástæðu og ég hef ekki heyrt í neinum sem setur það fyrir sig,“ segir Elliði Vign­is­son, sveit­ar­stjóri í Ölfusi, í tengslum við stöð­una sem er komin upp í Vest­manna­eyjum vegna kór­óna­veirunnar, en alls hafa 27 manns greinst með COVID-19 þar, einn hefur verið fluttur á Land­spít­al­ann og eru nær 400 manns í sótt­kví.

„Vest­manna­eyjar eru lítið og náið sam­fé­lag og því eðli­legt að veiran breið­ist hratt út. Við sjáum þetta ger­ast ann­ars staðar á land­inu, til dæmis á Norð-Vest­ur­landi og því eru líkur á að þetta muni ger­ast víðar. Þetta er í takt við það sem okkar færasta fólk í þessum efnum, fólkið í fram­varða­lín­unni í heil­brigð­is­málum hefur rætt þannig að þetta var við­búið, en þetta er engu að síður þung staða,“ segir Elliði, sem ber sterkar taugar til Eyjar enda er hann fæddur og upp­al­inn í Eyjum og gegndi þar stöðu bæj­ar­stjóra í tólf ár, frá árunum 2006 til 2018.

Fjölskyldan fékk óvænt símtal

Elliði seg­ist hafa fullan skiln­ing á því hvernig mörgum hlýtur að líða um þessar mundir, ekki síst í ljósi þess að fjöl­skylda hans hafi á dög­unum óvænt fengið sím­tal frá rakn­ingateymi Almanna­varna.

„Dóttir mín fékk sím­tal frá teym­inu í Eyjum,“ upp­lýsir hann. „Það kom upp smit sem er rakið til hand­bolta­æf­ingu sem hún fór á 14. mars síð­ast­lið­inn þannig að hún er í sótt­kví. Ég er búinn að gera fátt annað síð­ustu tvær vikur en að vinna í kringum þennan vírus. Það er engin stofnun hérna sem starfar eins og hún gerði. Öll orka fer í að und­ir­búa komu veirunnar þannig að við erum búin að und­ir­búa okkur vel en samt brá mér við að heyra þetta. Hún er ekki með stað­fest smit, en þetta kom við mann, eins og ég held að ger­ist hjá okkur flestum þegar við fáum svona tíð­indi. Núna vonar maður bara að þetta sé ekki smit.“

Gott starf í Eyjum gefur von

Elliði kveðst því vera vel undir það búinn að smit kunni að koma upp í fjöl­skyld­unni og eins í sveit­ar­fé­lag­inu Ölfusi. „Ef það ger­ist vonar maður að sjálf­sögðu bara að fólk nái sé hratt og örugg­lega,“ segir hann og bætir við að í svona aðstæðum verði fólk ein­fald­lega að búast við því versta og vona það besta.

„Annars vil ég taka fram að mér finnst frá­bært hvernig þessi mál hafa verið unnin í Eyjum. Að sjá hvernig lög­reglu­stjór­anum og hennar teymi hefur tek­ist að rekja svona mörg smit og hópa sem eru útsettir fyrir smitum, það gefur okkur von um að hægt sé að fletja kúr­f­una og vinna málin með sama hætti. Auðvitað er erfitt að vera á undan bylgj­unni, en það á það sama við í Eyjum og alls staðar, við erum með fólk sem er alltaf með bestu upp­lýs­ing­arnar á hverjum tíma og það er mik­il­vægt að hlýða því, þannig komumst við í gegnum þetta.“

Sjá einnig: Elliði segir Sólveigu Önnu ekki lesa í aðstæður: „Sér ekki hætt­una“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina