Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Leikstýrir fyrstu sjónvarpsmyndinni 74 ára gömul

Leikstýrir fyrstu sjónvarpsmyndinni 74 ára gömul

Sjón­varps­myndin Sveins­stykki verður frum­sýnd á RÚV að kvöldi ann­ars páska­dags. Myndin byggir á sam­nefndu leik­riti Þorvalds Þor­steins­sonar, Arnar Jónsson leikur eina hlut­verkið, Svein, og Þór­hildur Þor­leifs­dóttir leik­stýrir. Þetta er í fyrsta sinn sem Þór­hildur leik­stýrir sjón­varps­mynd og hún hefur ekki leik­stýrt kvik­mynd síðan hún leik­stýrði hinni geysi­vin­sælu mynd Stella í orlofi árið 1986. Er hún að hasla sér völl á nýjum vett­vangi 75 ára gömul?

„Ég veit það nú ekki,“ segir Þór­hildur og hlær þegar ég ber þessa spurn­ingu upp við hana. „Þetta var að frum­kvæði Egils Eðvarðs­sonar upp­töku­stjóra og okkur Arnari leist vel á hug­mynd­ina þannig að við lögðum hana fyrir Skarp­héðin Guð­munds­son, dag­skrár­stjóra Sjón­varps­ins, sem ákvað að gera þessa mynd.“

Þór­hildur og Egill Eðvarðs­son skrif­uðu sjón­varps­gerð leik­rits­ins í sam­ein­ingu en upp­runi leik­rits­ins var hug­mynd sonar þeirra Þór­hildar og Arnars, Þorleifs Arnar leik­stjóra, árið 2003.

„Það er svo sem engin ofsa­leg eft­ir­spurn eftir full­orðnu fólki, en við erum alltaf til í slag­inn ef ein­hver leitar eftir því.“

„Þor­leifur Örn tal­aði við Þorvald og bað hann að skrifa verk fyrir Arnar vegna fjöru­tíu ára leikaf­mælis hans og sex­tíu ára afmælis,“ útskýrir Þór­hildur. „Það var svo sýnt í Reykja­vík undir leik­stjórn Þorleifs á þeim tíma­mótum og tíu árum seinna ákváðum við að halda aftur upp á afmæli Arnars með því að sýna verkið aftur og þá setti ég það upp en ekki Þor­valdur og það er sú sýn­ing sem liggur þess­ari sjón­varps­gerð til grund­vallar.“

Voldugasta verk Þorvaldar

Spurð hvort verkið tali sér­stak­lega sterkt til þeirra hjón­anna, slettir Þór­hildur í góm og hugsar sig um smá stund.

„Ég veit ekki hvort það talar eitt­hvað sér­stak­lega til okkar per­sónu­lega,“ segir hún. „En þetta er ofsa­lega flott verk og vel skrifað og að mínu áliti vold­ug­asta verk Þor­valdar, eitt af þessum verkum sem getur talað til fólks hvar sem er og hvenær sem er.“

Tit­il­per­sóna verks­ins, Sveinn, er að halda upp á afmælið sitt og hefur skrifað ræðu til að flytja í afmæl­is­veisl­unni sem haldin er í mat­sal fyr­ir­tæk­is­ins sem hann hefur unnið hjá ára­tugum saman, S. S. Eyfjörð, nafn sem Þór­hildur segir ansi auð­velt fyrir þá sem eitt­hvað vita að lesa í. Við lestur ræð­unnar ryðj­ast ýmsar minn­ingar farm í huga Sveins og eru ekki allar í sam­ræmi við það sem hann hefur skrifað í ræð­una. Þór­hildur segir verkið fjalla um mann sem horf­ist í fyrsta sinn í augu við sjálfan sig og hvernig lífi hann hefur lifað.

„Það lýsir afskap­lega tragískum manni sem aldrei hefur horfst í augu við eigin ágalla og afleið­ingar þeirra og þar af leið­andi aldrei getað bætt neitt eða gert neitt betur,“ segir Þór­hildur. „Þannig að það kraumar ýmis­legt undir þótt á yfir­borð­inu sé líf hans slétt og fellt.“

Engin ofsaleg eftirspurn eftir fullorðnu fólki

Samstarf þeirra Þór­hildar og Arnars hefur staðið í ára­tugi, bæði innan leik­húss og utan, þótt minna hafi borðið á þeim í leik­list­inni und­an­farin ár. Eru þau sest í helgan stein?

„Ekki alveg,“ segir Þór­hildur og hlær. „Það er svo sem engin ofsa­leg eft­ir­spurn eftir full­orðnu fólki, en við erum alltaf til í slag­inn ef ein­hver leitar eftir því. Arnar hefur til dæmis verið að lesa heil­mikið fyrir Storytel og fleiri og lék í upp­setn­ingu Þjóð­leik­húss­ins á Útsend­ingu áður en sýn­ingar féllu niður vegna sam­m­komu­banns­ins. Og ég setti upp sýn­ingu fyrir Söng­skól­ann í vetur, þannig að það er svona ýmis­legt sem til fellur, þótt það hafi kannski verið mun minna en við hefðum bæði kosið.“

Spurð hvort hún sé með ein­hver verk­efni í sikt­inu eins og er segir Þór­hildur að það sé ýmis­legt í píp­unum, en hún hafi þá reglu að ræða aldrei um fyr­ir­huguð verk­efni fyrr en allt sé klappað og klárt og öruggt að úr þeim verði.

Sveins­stykki verður, eins og áður sagði, frum­sýnt á RÚV á mánu­dags­kvöldið, verður það sýnt víðar? Hafa til dæmis nor­rænu sjón­varps­stöðv­arnar keypt það til sýn­ingar?

„Það veit ég ekk­ert um,“ segir Þór­hildur snögg upp á lagið. „Mínu hlut­verki er lokið og ég mun bara sjá það í sjón­varp­inu eins og þið hin og horfa á hann Svein okkar eins og við köllum hann gjarnan í fjöl­skyld­unni. Hann er eig­in­lega orð­inn heim­il­is­vinur og sest ansi vel að í manni og hefur áhrif á mann.“

„Ætli Hollywood verði ekki bara næst“

Þór­hildur seg­ist hafa haft mjög gaman að því að vinna í Sjón­varp­inu, þar sé gott fag­fólk sem gaman sé að vinna með. Sér­stak­lega Egill Eðvarðs­son, en þau eigi sér reyndar langa sam­starfs­sögu og hafi þekkst síðan þau voru ung.

„Við Egill höfum unnið ansi mikið saman,“ útskýrir hún. „Það hafa verið teknar upp mjög margar óperur sem ég hef leik­stýrt og Egill hefur oft stjórnað upp­tök­unum. Fyrir utan það að hann var nátt­úru­lega undir, yfir og allt um kring í Sjón­varp­inu og ég var mjög mikið þar í ýmsum þáttum, þangað til ég varð of gömul fyrir það líka,“ bætir hún við og skellir upp úr.

Þór­hildur hélt upp á 75 ára afmæli sitt á dög­unum og það hlýtur að telj­ast til und­an­tekn­inga að 74 ára gam­alt fólk sé að leik­stýra sinni fyrstu sjón­varps­mynd. Er nýr fer­ill í upp­sigl­ingu á þeim vett­vangi?

„Já, já, er það ekki bara? Svo er ég farin að leika í kvik­myndum, hef leikið lítil hlut­verk í tveimur sjón­varps­s­er­íum, og grín­ast með það að nú stefni ég stíft á annan kar­ríer innan kvik­mynda­heims­ins. Ætli Hollywood verði ekki bara næst,“ segir hún og skelli­hlær aftur. Það er auð­heyrt að hún er ekk­ert á þeim bux­unum að leggja árar í bát þótt árunum fjölgi og það verður spenn­andi að fylgj­ast með næstu skrefum hennar á nýju braut­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina