Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Halldóra Mogensen um meðgönguna: „Gjöf sem kom til okkar“

Halldóra Mogensen um meðgönguna: „Gjöf sem kom til okkar“
Halldóra Mogensen

Halldóra Mogensen, þing­flokks­for­maður Pírata, og Kristinn Jón Ólafsson, nýsköp­un­ar­sér­fræð­ingur hjá Reykja­vík­ur­borg, eiga von á sínu fyrsta barni saman. Parið deildi gleði­tíð­ind­unum á sam­fé­lags­miðlum í gær og í kjöl­farið hefur kveðjum og ham­ingju­óskum rignt yfir parið. Í sam­tali við Mannlíf seg­ist Halldóra vera full til­hlökk­unar enda sé for­eldra­hlut­verkið það mik­il­væg­asta í líf­inu.

„Ég eign­að­ist mitt fyrsta barn, Indíönu, fyrir 10 árum síðan og það ger­breytti lífi mínu,“ segir hún í sam­tali við Mannlíf og gleðin í rödd­inni leynir sér ekki. „Ég væri ekki sú mann­eskja sem ég er í dag ef það væri ekki fyrir dóttur mína. Að vera for­eldri er án efa mik­il­væg­asta hlut­verk sem ég hef fengið að sinna.“

Spurð hvort það hafi verið planið að eign­ast barn, segir Halldóra svo vera. „Þetta var alltaf planið. Ég var reyndar smá óör­ugg með að vera orðin fer­tug að eign­ast barn, óör­ugg með að ég gæti orðið ólétt en þetta gekk upp og við erum mjög ham­ingju­söm. Þetta er fyrsta barn Kidda manns­ins minns, Kristins Jóns Ólafs­sonar, og hann er líka alveg á bleiku skýi.“

„Okkur lang­aði svo til að deila þessu með fólki og það var ótrú­lega fal­legt að fá allar þessar kveðjur og ham­ingju­óskir.“

Halldóra og Kristinn kynnt­ust síð­asta sumar og hún seg­ist hafa fundið á sér um leið og þau hitt­ust að þetta væri mað­ur­inn sem hún vildi verja líf­inu með. „Ég er búinn að lifa líf­inu í þennan tíma og kynn­ast sjálfri mér í gegn um mis­skraut­leg og erfið sam­bönd. Ferða­lagið hefur verið lær­dóms­ríkt og í kjöl­farið er ég orðin með­vit­að­ari um hvað það er sem ég vil og hvað ekki. Ég bara fann það strax að hann var sá rétti fyrir mig. Síðan leið eig­in­lega ekk­ert langur tími frá því að við fórum að vera saman og þar til barn­eignir bár­ust í tal.“

Voruð þið búin að reyna lengi? „Nei nei, þetta var alls ekk­ert þannig,“ segir hún. „Þetta bara gerð­ist, þetta er bara gjöf sem kom til okkar.“

Spurð hvenær sé von á erf­ingj­anum í heim­inn seg­ist Halldóra var sett 24. nóv­em­ber. „Þannig að ég er komin stutt á með­göng­unni, bara tólf vikur,“ segir hún. „Ég fór í tólf vikna són­ar­inn í vik­unni og það var dásam­leg til­finnig að sjá barnið í són­arnum, sjá að það er í lagi og að það vex og dafnar vel. Það var reyndar svo­lítið leið­in­legt að Kiddi skyldi ekki fá að koma með vegna COVID-19, sér­stak­lega þar sem þetta er hans fyrsta barn, en maður skilur það auð­vitað,“ segir hún. „Vonandi fær hann bara að koma með næst og hluta á hjart­slátt­inn í barn­inu sínu.“

Eldra barn Halldóru, dóttirin Indíana, verður tíu ára í nóv­em­ber á þessu ári og að sögn Halldóru varð hún alveg him­in­lif­andi þegar hún fékk að vita að von væri á yngra systk­ini. „Það er nefni­lega búið að vera hennar stærsta ósk svo­lítið lengi að eign­ast syskini og fá að vera stóra systir,“ útskýrir hún og kímir. „Þannig að Inda er rosa­lega glöð og mjög spennt fyrir þessu öllu saman.“

Halldóra seg­ist ann­ars vera frekar feimin með einka­líf sitt, til dæmis deili hún mjög sjaldan, eig­in­lega bara aldrei ein­hverju per­sónu­legu á sam­fé­lags­miðlum. Hún hafi hins vegar ákveðið að gera það í þetta sinn og deila mynd­unum úr són­arnum á Facebook. Þau Kristinn hafi bara ekki stað­ist mátið.

„Okkur lang­aði svo til að deila þessu með fólki og það var ótrú­lega fal­legt að fá allar þessar kveðjur og ham­ingju­óskir,“ segir hún. „Við fjöl­skyldan erum bara ofs­boðs­lega glöð og spennt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina