Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Stærsta verkefni sem ég hef komið nálægt“

Óskar Þór Axelsson, sem er meðal ann­ars þekktur fyrir kvik­mynd­irnar Svartur á leik og Ég man þig sem var einn af vor­smell­unum í íslenskum bíó­húsum árið 2017, mun leik­stýra hluta af þriðju þátta­seríu Riviera. Þætt­irnir eru fram­leiddir fyrir bresku sjón­varps­stöð­ina Sky og hafa notið vin­sælda um allan heim.

„Stærsta verkefni sem ég hef komið nálægt“
|Óskar Þór Axelsson und­ir­býr nú tökur á þáttum í þriðju ser­í­unni af Riviera. Óskar er sem kunn­ugt er eng­inn nýgræð­ingur þegar kemur að kvik­mynda- og þátta­gerð. Hann leik­stýrði síð­ast þátt­unum um Stellu Blóm­kvist

„Þetta er hrika­lega spenn­andi. Stærsta verk­efni sem ég hef komið nálægt,“ segir Óskar Þór, sem er um þessar mundir á fullu að búa sig undir tökur á þáttum í þriðju seríu af spennu­mynda­flokknum Riviera.

Eins og kunn­ugt er hafa fyrri ser­í­urnar tvær notið mik­illa vin­sælda en þær fjalla um lista­verka­fræð­ing­inn Georginu sem missir eig­in­mann sinn, millj­arða­mær­ing­inn Constantine Clios, þegar snekkja hans springur í loft upp. Þegar Georgina fer að grennsl­ast nánar fyrir um orsök slyss­ins flæk­ist hún í heim lyga og glæpa. Þegar frétt­ist að til stæði að gera þriðju ser­í­una var fyrst óljóst hvort hún myndi áfram ein­blína á ævin­týri Georginu, en Óskar full­yrðir að svo sé og bætir við að í þetta sinn verði lögð enn meiri áhersla á spennu en áður.

Óskar Þór Axelsson und­ir­býr nú tökur á þáttum í þriðju ser­í­unni af Riviera. Óskar er sem kunn­ugt er eng­inn nýgræð­ingur þegar kemur að kvik­mynda- og þátta­gerð. Hann leik­stýrði síð­ast þátt­unum um Stellu Blóm­kvist, þáttum í Ófærð 2 og svo fjórum fyrstu þátt­unum í bresku ser­í­unni Sanctuary, sem var fram­leidd af Yellow Bird, sama fram­leið­anda og gerði Stieg Larsson-þrí­leik­inn og Wallander-þætt­ina.

„Fram­leið­end­urnir eru að fara örlítið nýja leið í þess­ari seríu til að við­halda fersk­leik­anum án þess að hverfa frá upp­haf­legu hug­mynd­inni, til dæmis taka inn nýja karakt­era og víkka sögu­sviðið út til Buenos Aires. Já, og færa sög­una meira í átt að þriller. Það má segja að þar komi ég til sög­unnar. Þeir voru nefni­lega á hött­unum eftir leik­stjóra með reynslu af gerð spennu­trylla og umboðs­skrif­stofan mín í Bret­landi, Independent Talent, mælti með mér með hlið­sjón af þeim verk­efnum sem ég hef verið að fást við, eins og Ófærð og Svartur á leik. Í fram­hald­inu hitt­umst við aðal­fram­leið­and­inn til að kanna hvernig okkur lit­ist á það sem hinn hafði fram að færa og okkur leist bara svo vel hvor á annan að ég ákvað að slá til.“

Mikil pressa að láta allt ganga upp

Óskar kemur til með að leik­stýra þremur þátt­unum í ser­í­unni og und­an­farna tæpa tvo mán­uði hefur hann verið í Buenos Aires í Argent­ínu að und­ir­búa tökur, enda segir hann mik­il­vægt að vera mjög vel und­ir­bú­inn þegar um jafn­um­fangs­mikið verk­efni er að ræða og þetta. „Þetta eru síð­ustu þrír þætt­irnir í ser­í­unni, sem eru í heild­ina eins og löng kvik­mynd og ansi mikið af flóknum senum sem þarf að taka, aksjón atriði á stærri skala en ég hef gert áður þannig að maður þarf að und­ir­búa þetta vel. Þessi erlendu verk­efni eru oft stærri í sniðum en þau sem maður er að fást við heima og verk­efnið núna er risa­stórt. Ég hef ekki einu sinni tölu á öllum sem eru í tökulið­inu, það eru svo margir sem koma að þessu og þar af leið­andi eru háar fjár­upp­hæðir í spil­inu. Mikil pressa að láta allt ganga upp,“ útskýrir hann og bætir við að það hjálpi til að hann hafi áður komið til Bueons Aires og sé því aðeins kunn­ugur stað­háttum.

Ný útgáfa af Ég man þig

En hvað réði því að hann tók verk­efnið að sér? „Ja, meðal ann­ars kunni ég vel að meta það þegar fram-leið­and­inn sagð­ist ein­göngu vinna með „no bullshit“ fólki. Það skiptir nefni­lega máli, sér­stak­lega þegar maður tekur að sér svona stór verk­efni, að starfa með fólki sem vinnur vinn­una sína vand­kvæða­laust. Svo er mik­ill metn­aður í gangi að baki gerð þess­ara þátta; það er ekk­ert til sparað, hvorki þegar kemur að tækni­brellum, bún­ingum, töku­stöðum né öðru. Sem dæmi eru þætt­irnir skotnir þar sem þeir eiga að ger­ast, það er ekk­ert verið að blöffa. Ég fíla líka metn­að­inn í hand­rita­skrif­unum, það er farið með þriðju ser­í­una meira í átt að ein­hverju eins og James Bond og það rímar vel við mitt áhuga­svið. Ég fæ til dæmis mikið af hand­ritum með yfir­nátt­úru­legu ívafi inn á mitt borð í gegnum umboðs­skrif­stofur mína, bæði úti í Bret­landi og svo WME í Los Angeles en spenna og glæpir höfða ein­fald­lega meira til mín.”

„Það er ekk­ert til sparað, hvorki þegar kemur að tækni­brellum, bún­ingum, töku­stöðum né öðru.“

Ertu að segja að þú hafir fengið nóg af hryll­ings­myndum eftir að hafa gert Ég man þig, skýtur blaða­maður inn í og brosir? „Nei alls ekki,“ flýtir hann sér að svara. „Mér fannst mjög gaman að gera þá mynd og það sem heill­aði mig við hana er að hún er sam­blanda af tveimur ólíkum formum, hroll­vekju og glæpa­sögu. Og fyrst við erum að tala um hana þá get ég ljóstrað því upp að ný útgáfa af Ég man þig verður frum­sýnd í tveimur hlutum á RÚV um pásk­ana. Ég við­ur­kenni nú að í fyrstu var ég reyndar ekk­ert yfir mig spenntur að fara að krukka í gam­alli mynd eftir mig þegar sú hug­mynd kom upp að gera lengri útgáfu af henni, sá ekki alveg til­gang­inn með því. En ég lét til­leið­ast og nú er ég hæstá­nægður með loka­út­kom­una. Er jafn­vel ekki frá því að hún sé betri en sú upp­runa­lega, að saga bók­ar­innar kom­ist betur til skila, ef eitt­hvað er.“

Julia Stiles mjög geðþekk

En er ekki mik­ill munur á því að gera bíó­mynd þar sem maður tekur þátt í sköp­un­ar­ferl­inu frá upp­hafi eða koma í miðjum klíðum inn í þætti sem aðrir hafa meira og minna mótað? Upp­li­f­irðu það ekki sem skerð­ingu á list­rænu frelsi? „Vissu­lega er þetta aðeins öðru­vísi, maður þarf að vinna innan í ákveðnu boxi en það þarf ekk­ert að vera síður skap­andi eða skemmti­legt. Auðvitað er svo­lítið krefj­andi að koma inn í þetta svona seinna í ferl­inu, ég játa það, en ég er búinn að eiga í góðu sam­tali við hina leik­stjór­ana, þá sem hafa verið með frá upp­hafi og við leik­ar­ana í gegnum Skype, þar á meðal aðal­leikkon­una Juliu Stiles sem er mjög geð­þekk, þannig að ég verð vel und­ir­bú­inn þegar við hitt­umst núna um miðjan mán­uð­inn og hefjum tökur. Aðkoma mín að þessu tvennu er því ólík, já, en í báðum til­vikum er heil­mikil áskorun fyrir hendi. Það verður að vera og smá­stress, ann­ars væri nú ekk­ert gaman að þessu,“ segir Óskar og hlær.

Og hvað tekur svo við þegar tökum lýkur? „Það liggur nú ekki alveg fyrir. Við skulum bara segja að ég sé að skoða nokkur verk­efni, bæði hér heima og úti. Svo kemur bara í ljós þegar líður á árið hvað verður ofan á.“

Hér má sjá stiklu úr fyrstu seríu þátt­anna Riviera:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina