Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Gæjalegasta sýning í sögu íslensks leikhúss“

Tyrf­ingur Tyf­ings­son hefur vakið athygli fyrir ögrandi og öðru­vísi leik­verk sín. Þar á meðal sýn­ing­una Helgi Þór rofnar sem var frum­sýnd í Borg­ar­leik­hús­inu í jan­úar og hefur hlotið góðar við­tökur áhorf­enda og gagn­rýnenda. Hér segir leik­skáldið frá þeim verkum sem hafa haft mest áhrif á hann.

„Gæjalegasta sýning í sögu íslensks leikhúss“
Tyrf­ingur Tyrf­ings­son

Björk varð lafhrædd

„Gæja­leg­asta sýn­ing í sögu íslensks leik­húss hlýtur að vera Rambó 7 eftir Jón Atla Jónasson sem Egill Heiðar leik­stýrði í Þjóð­leik­hús­inu 2005. Þegar ég sá Rambó 7 var Björk Guð­munds­dóttir í salnum. Ólafur Darri var að leika alveg gal­inn gaur í rosa­legri neyslu. Allt í einu stopp­aði per­sóna Ólafs Darra sýn­ing­una og byrj­aði að vaða um sviðið eins og trylltur hundur og muldr­aði eða hvísl­aði svona: „Björk … Björk … Björk.“  Svo fann hann Björk í salnum og byrj­aði að öskra með sinni risa­stóru rödd: „Björk! Björk Motherfucker! Björk Motherfucker! Björk Motherfucker.“ Hún varð laf­hrædd og aðrir áhorf­endur í rusli yfir þessu. Gleymi þessu aldrei. Full­komið leik­hús­mó­ment. Ólafur Egill var líka dásam­legur í þess­ari sýn­ingu. Þegar ég hugsa um það varð per­sóna Óla kannski fyrsta inspíra­sjónin að Helga Þór í Helgi Þór rofnar, eða svona upp­hafið að honum. Gæti verið. Lík­leg­ast gerði þessi sýn­ing mig að leik­skáldi, hún var svo óhrædd, öfugt við það hvernig mér leið.“

Kúgun og sadismi

„Svo verð ég að nefna Árna Pétur Guð­jóns­son leik­ara og tvær sýn­ingar með honum. Árni Pétur er geggj­aður „per­for­mer“, svo flinkur í lík­am­anum og með hráa nær­veru, karl­mann­legur og kven­legur á sama tíma. Svik­ar­inn var sýn­ing sem hann vann með Rúnari Guð­brands­syni upp úr Vinnu­kon­unum eftir franska leik­skáldið og glæpa­mann­inn Jean Genet árið 2011. Þar rann líf Árna Péturs saman við leik­rit Genet um tvær vinnu­konur sem vinna fyrir sadíska hefð­ar­konu. Á hverjum degi leika vinnu­kon­urnar það á hvor annarri hvernig þær myndu drepa sadísku hefð­ar­kon­una. Inn í þá frá­sögn bland­aði Árni Pétur sögum af mömmu sinni sem hafði haft vinnu­konur og upp­lifun sinni af kúgun og sad­isma. Síðan gerði Árni Pétur sýn­ingu með Áhuga­leik­fé­lagi atvinnu­manna í Nýlista­safn­inu þar sem þau not­uðu bara brot úr sam­tali upp úr verki eftir Strind­berg og léku það aftur og aftur og aftur. Ég var mjög við skál á sýn­ing­unni svo að dag­inn eftir trúði ég því eig­in­lega ekki að þetta hefði verið svona gott. Þannig að ég skellti mér bara aftur, þá aðeins minna við skál, og viti menn, sýn­ingin var alveg jafn­frá­bær.“

Kúl splattersýning

„Vest­ur­port gerði sýn­ingu á Titusi Andronicus eftir Shakespe­are í 2000 fer­metra skemmu með fimm­tíu manns, þar á meðal kvenna­kór sem ég gleymi aldrei. Björn Hlynur leik­stýrði. Þau sýndu hana bara í þetta eina skipti og þar var ég mættur, fimmtán ára, og smyglaði mér inn því hún var bönnuð börnum enda splatter dauð­ans þar sem fólk étur börnin sín. Ólafur Darri lék Titus og varð lík­lega með þeirri sýn­ingu að stór­leik­ara. Kúl sýn­ing.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina