Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Flott baðherbergi með lítilli fyrirhöfn

Flott baðherbergi með lítilli fyrirhöfn

Ein­faldar og sniðugar aðerðir til að betrumbæta bað­her­bergið.

1. Það er ekki nauð­syn­legt að flísa­leggja bað­her­berg­is­veggi en margir eru fastir í þeirri hug­mynd að bað­her­bergi þurfi að flísa­leggja í hólf og gólf. Akrýl­máln­ing fyrir vot­rými með myglu- og sveppa­vörn er alveg jafn­góð og lita­mögu­leik­arnir eru ótelj­andi – sbr. myndin hér að ofan. Ætlir þú hins vegar að setja flísar á vegg­ina kemur yfir­leitt best út að flísa­leggja alveg upp í loft en hægt er að láta minni bað­her­bergi líta út fyrir að vera stærri sé þetta gert.

2. Ef þú ætlar að kaupa til­búnar inn­rétt­ingar á bað­her­bergið hugs­aðu þá út fyrir boxið. Það er ekki er alltaf nauð­syn­legt að kaupa inn­rétt­ingar sem sér­stak­lega eru ætl­aðar fyrir bað­her­bergi. Eld­hús­ein­ingar á stærri bað­her­bergjum geta nýst vel og búa yfir ívið meira geymslu­plássi. Einnig með því að hengja inn­rétt­ing­una upp á vegg og halda gólf­flet­inum hreinum fær bað­her­bergið létt­ara yfir­bragð.

3. Ekki gleyma loft­inu. Mýtan um að hvít loft stækki rými er ansi lífseig en á hvað síst við í bað­her­bergjum. Það getur lyft bað­her­berg­inu upp á hærra plan að hafa loftin í sama lit og vegg­ina, þá sér í lagi ef þeir eru dökkir og á þetta við bæði flísa­lagða veggi sem og mál­aða. Með því að mála loftið kemur meiri heild­ar­svipur á rýmið og nota­legri stemn­ing sem lík­ist þeirri upp­lifun að vera staddur í fyrsta flokks heilsu­lind.

4. Mjúk og still­an­leg lýs­ing inni á bað­her­bergjum er algjört grund­vall­ar­at­riði en margir gera þau mis­tök að hafa bað­her­bergið yfir­lýst. Veldu ljós sem dreifa birt­unni jafnt um rýmið og fjár­festu í dimmer svo hægt sé að stilla birt­una eftir þörfum. Innfelld ljós, lokuð hang­andi ljós og vegg­ljós eru góður kostur. Hugaðu vel að því hvar bestrar lýs­ingar er þörf í rým­inu en það er yfir­leitt við vaskinn. Bak­lýstir speglar með dimmer er góður kostur og gefur bað­her­berg­inu meiri reisn. Einnig er best að tengja ekki öll ljósin í rým­inu við sama rof­ann sé þess kostur. Yfir­leitt kemur best út að aðgreina ljós við vaskinn frá öðrum ljósum rým­is­ins.

5. Speglar eru elsta ráðið í bók­inni til þess að blekkja augað og láta rými virð­ast stærri. Á litlum bað­her­bergjum er þetta sér­stak­lega mik­il­vægt atriði. Sé nauð­syn­legt að hafa efri skápa ættir þú að skoða það að kaupa spegla­hurðir á skápana. Þú heldur þá skápa­pláss­inu, færð góðan spegil og slærð tvær flugur í einu höggi.

Myndir / Ljós­mynd­arar Birtíngs

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni