Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Styðjum hvor aðra – „Í hreinskilni sagt þá þorðum við varla að vona að við kæmumst áfram“

Ísold Wilberg Ant­ons­dóttir og Helga Ingi­björg Guð­jóns­dóttir flytja lagið Meet me halfway sem keppir til úrslita í Söngvakeppn­inni á morgun, 29. febr­úar. Í sam­tali við Albumm segj­ast þær ekki hafa þekkst áður en þær sam­þykktu að flytja lagið og það hafi verið svo­lítið stressandi, en ferlið hafi verið skemmti­legt og lær­dóms­ríkt.

Styðjum hvor aðra – „Í hreinskilni sagt þá þorðum við varla að vona að við kæmumst áfram“

„Við þekkt­umst ekk­ert áður en Birgir [Stef­áns­son, innsk. blaða­manns] og Ragnar [Már Jónsson] fengu okkur til að koma með sér í þetta,“ segir Helga og Ísold við­ur­kennir að það hafi verið svo­lítið stressandi í upp­hafi að fara út í svona stórt verk­efni með ein­hverjum sem hún þekkti ekk­ert og hafi ekki unnið með áður. „En um leið og við hitt­umst féllum við saman eins og flís við rass,“ tekur hún fram. „Við gerðum strax sam­komu­lag um að styðja og hvetja hvor aðra áfram og vera alltaf hrein­skilnar. Í dag er ég virki­lega þakk­lát fyrir að hafa hana með mér í þessu ferli.“

Þegar for­vitn­ast er um tón­list­ar­legan bak­grunn þeirra, kemur í ljós að þær eru alveg hvor úr sinni átt­inni. „Ég er útskrifuð djass­söng­kona úr Tón­list­ar­skóla FÍH og fór í Complete Vocal Technique-nám í Kaup­manna­höfn og hef verið að semja og gefa út mína eigin tón­list; fyrsta lagið mitt kom á Spotify árið 2018 og heitir Midnight Sun. Fólk gæti munað eftir mér úr The Voice Ísland þar sem ég komst í und­an­úr­slit fyrir þremur árum og svo hef ég komið mikið fram með bróður mínum, Má Gunn­ars­syni,“ telur Ísold upp og getur þess að þau systk­inin eigi einmitt sig­ur­lagið úr Jóla­laga­keppni Rásar 2 árið 2019.

Ísold Wilberg Ant­ons­dóttir og Helga Ingi­björg Guð­jóns­dóttir flytja lagið Meet me halfway sem keppir til úrslita í Söngvakeppn­inni 29. febr­úar.

Helga seg­ist hafa verið syngj­andi alveg frá níu ára aldri, þótt hún sé ekki menntuð söng­kona. „Ég vann Söng­keppni fram­halds­skól­anna árið 2006 og gekk svo til liðs við Flug­freyjukór Icelandair undir stjórn Magnúsar Kjart­ans­sonar 2017. Þar lærði ég mikið á því að syngja í hóp og öðl­að­ist sjálfs­traust til að syngja ein.“

Spurðar hvernig Birgir og Ragnar hafi fengið þær til að taka þátt í Söngvakeppn­inni segir Ísold að það hafi nú ekki þurft mikið til. „Mig hefur alltaf dreymt um að taka þátt í Eurovision, ég elska glam­úr­inn og glimmerið þannig að það þurfti alls ekki að sann­færa mig um að vera með. Sér­stak­lega ekki eftir að ég heyrði lagið,“ segir hún og bætir við að hún hafi verið með það á heil­anum í viku eftir að hún heyrði demóið fyrst.

„Mig hefur alltaf dreymt um að taka þátt í Eurovision, ég elska glam­úr­inn og glimmerið þannig að það þurfti alls ekki að sann­færa mig um að vera með.“

Helga bendir á að Ísold hafa síðan sungið demó-útgáf­una sem strák­arnir sendu inn í keppn­ina. Hálfgerð til­viljun hafi ráðið því að hún sjálf var síðan fengin til að syngja á móti Ísold í keppn­inni. „Strák­arnir heyrðu mig syngja í partíi, þar sem Ingó veð­urguð var að skemmta. Hann tók þar m.a. lagið Shallow úr A Star is Born og óskaði eftir stelpu sem gæti sungið á móti honum og vin­konur mínar ýttu mér þá upp á svið. Þannig heyrðu strák­arnir mig syngja og nokkrum dögum seinna buðu þeir mér að taka þátt í atrið­inu,“ segir hún og bætir við að keppnin hafi verið ótrú­lega skemmti­leg og lær­dóms­rík en þetta líði allt of hratt.

Áttu þær von á að kom­ast í úrslit? „Í hrein­skilni sagt þá þorðum við varla að vona að við kæm­umst áfram, af því að keppnin í ár er ein sú besta sem ég man eftir og við erum báðar ný nöfn í brans­anum,“ játar Ísold. „Það var samt alltaf mark­miðið að kom­ast í úrslit og bara það að kom­ast þangað er mik­ill sigur út af fyrir sig, við erum svo þakk­látar öllum þeim sem höfðu trú á okkur og kusu okkur áfram.“

Ætlið þið að halda áfram sem dúó eftir að þessu öllu er lokið? „Ég er í raun­inni ekki farin að hugsa svo langt,“ svarar Helga. „Það er svo mikið í gangi að maður hugsar í raun­inni ekk­ert lengra en til 29. febr­úar.“

Talandi um það, nú eru úrslitin á morgun, við hverju má fólk búast? „Það sem ein­kennir þessa keppni, að mínu mati, er hversu fjöl­breytt lögin eru og atriðin öll svo ein­stök á sinn hátt,“ svarar Ísold. „Sam­keppnin í ár er hörð og það eru margir ótrú­lega flottir flytj­endur sem taka þátt en svo veit maður aldrei hvað ger­ist af því að það er alltaf ein­hver sem gæti komið skemmti­lega á óvart.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Menning

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Hrósar lýsingum Laxness á íslenskri náttúru og árstíðunum
Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu