Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Útfararsálmur til mannkynsins

Útfararsálmur til mannkynsins

Hljóm­sveitin Hatari sem vakti heims­at­hygli í Eurovision­keppn­inni í fyrra, hefur í nógu að snú­ast og var meðal ann­ars að senda frá sér plöt­una Neyslutrans, sem er liður í áætlun Hatara um „að kné­setja kap­ít­al­ismann og afhjúpa þver­sagnir í svika­myllu hvers­dags­leik­ans“.

„Síðbúin iðrun, höfnun, mis­beit­ing valds, sjálfs­fyr­ir­litn­ing, sorg og hatur, þetta eru á meðal þemu plöt­unnar og hún hentar allri fjöl­skyld­unni,“ segir Matthías Tryggvi Har­alds­son, annar tveggja söngv­ara Hatara, þegar hann er spurður nánar út í plöt­una og hann tekur fram að fjöldi lista­manna hafi komið að gerð hennar. „Við fengum til liðs við okkur fjöl­breyttan hóp tón­list­ar­manna, þar á meðal Bashar Murad söngv­ara, rappsveit­ina Cyber, stór­stjörn­una GDRN, rapp­ar­ann Svarta Laxness, Pétur Björns­son fiðlu­leik­ara, Friðrik Mar­grét­ar­son, tón­skáld og kór­stjóra, og fleiri.“

„Fram­tíðin ber enda­lok mann­kyns í skauti sér sem og ein­stakt tæki­færi til að fjár­festa í miðum á útgáfu­tón­leika Hatara í Austurbæ núna í febr­úar.“

Neyslutrans er fyrsta platan í fullri lengd sem Hatari lætur frá sér, en hún inni­heldur bæði lög sem hafa áður litið dags­ins ljós í stakri útgáfu og áður óút­gefnar tón­smíðar. Spurður hvort hún sé hápóli­tísk svarar Matthías hik­laust að Neyslutrans sé útfar­ar­sálmur til mann­kyns­ins og vöggu­vísa, enda sé farið að stytt­ast í enda­lokin. „Það er í sjálfu sér hafið yfir póli­tík, enda er það vís­inda­lega sannað að allt líf­ríki jarðar verður útmáð innan nokk­urra ára. Flest annað er póli­tískt í eðli sínu, ekki síst þessi plata og tón­leika­ferða­lagið sem við ætlum í, Evrópa mun hrynja, í kjöl­far útgáf­unnar,“ segir hann og vísar þar í fyr­ir­hug­aðan túr sveit­ar­innar. „Við ætlum að ferð­ast til 20 borga víðs vegar um rústir álf­unnar ásamt áður­nefndri Cyber, sem eru nýj­ustu sam­starfs­að­ilar Svika­myllu ehf. Þær deila því mark­miði okkar að hámarka gróða rétt á meðan mann­kynið klórar í bakk­ann.“

Hvað er Svika­mylla ehf.? Svona fyrir þá sem ekki vita það. „Svika­mylla ehf. er alþjóð­legt fram­leiðslu­fyr­ir­tæki og eig­endur Hatara. Markmið Svika­myllu ehf. eru nið­ur­rif á síðkap­ít­al­ism­anum, marg­miðlun, fast­eigna­við­skipti og lána­starf­semi, útgáfa á íslenskum og erlendum dóms­dagskveð­skap og ráð­gjafa­þjón­usta,“ svarar hann og bætir við að stjórn Svika­myllu ehf. haldi svip­unni á lofti til að minna sveit­ina á að ekk­ert sé sjálf­sagt. „Okkur er refsað dags­dag­lega fyrir afglöp í starfi. Samhliða þessu sinnum við fjöl­skyldu­líf­inu og erum mjög ham­ingju­söm.“

Það var tals­vert fjallað um Hatara í heims­press­unni í tengslum við Eurovision-keppn­ina í Tel Aviv og mikil spenna vegna loka­kvölds­ins, þar sem heyrst hafði að þið í sveit­inni væruð með eitt­hvað óvænt í bígerð. Sem reynd­ist svo rétt. Þið flögg­uðuð palest­ínska fán­anum í beinni og allt varð vit­laust. Voruð þið ein­hvern tím­ann hrædd um öryggi ykkar? „Allt fór sam­kvæmt áætlun,“ svarar Mattías sall­ar­ó­legur. „Við tökum bara heils­hugar undir með grein­ar­höf­undi breska stór­mið­ils­ins The Guardian sem skrif­aði að palest­ínski fán­inn eigi mik­il­vægt erindi við Eurovision.“

Nú er Hatari orðin ein vin­sælasta sveit lands­ins, bjugg­ust þið við þessum vin­sældum? „Já.“

Eitthvað að lokum? Hvað ber fram­tíðin í skauti sér? „Fram­tíðin ber enda­lok mann­kyns í skauti sér sem og ein­stakt tæki­færi til að fjár­festa í miðum á útgáfu­tón­leika Hatara í Austurbæ núna í febr­úar.“

Texti / Sigrún Guðjohn­sen
Mynd / Snorri Björns

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Menning

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Hrósar lýsingum Laxness á íslenskri náttúru og árstíðunum
Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu