Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Krefst rannsóknar vegna virkjunar

Krefst rannsóknar vegna virkjunar
Elías Krist­ins­son sjó­maður.|Eva

Ekki er nóg að fram­kvæmdum við Hval­ár­virkjun hafi verið slegið á frest heldur þarf að fara fram opin­ber rann­sókn á  öllu ferl­inu. Elías Krist­inssson, sjó­maður á Dröngum í Árnes­hreppi á Ströndum, er sann­færður um að lög hafi verið brotin og krefst lög­reglu­rann­sóknar.

„Ég er nú bara trillu­karl á Ströndum en ef ég væri ríkur færi ég alveg á fullt í þetta því órétt­lætið er svo mikið. Málið verður að rann­saka ofan í kjöl­inn því ég er viss um að þarna hafa lög verið brotin,“ segir Elías sem heimtar opin­bera rann­sókn á öllu verk­ferl­inu hvað varðar Hval­ár­virkjun. Hann hefur með form­legum hætti óskað eftir því við Lög­reglu­emb­ættið á Suð­ur­nesjum, stjórn­endur HS Orku og stjórn­endur Líf­eyr­is­sjóðs­ins Gildi að allt ferlið verði rann­sakað frá upp­hafi til enda. Hann skilur ekk­ert í því af hverju engin svör fást frá við­kom­andi aðilum.

Enginn samanburður

„Ég er búinn að rita öllum þessum aðilum en fæ engin svör til baka frá neinum þeirra. Það finnst mér ótrú­legt. Þeir ættu að minnsta kosti að geta svarað mér því að ég sé bara að bulla, það er þó alla­veg­anna svar,“ segir Elías.

Sigurður Gísli Pálmason kaup­sýslu­maður hefur einnig gagn­rýnt hvernig staðið var að málum með Hval­ár­virkjun þar sem laga­skyldu hafi ekki verið sinnt með því að bera saman ólíka kosti. Hann bauðst á sínum tíma til að greiða úr eigin vasa mat á stofnun sér­staks UNESCO-þjóð­garðs í Árnes­hreppi á Ströndum og stendur við til­boð sitt verði til hans leitað. Sigurður Gísli telur að hugs­andi menn hafi á end­anum séð að þarna væri ekki á vetur setj­andi. „Í þessu til­felli var sam­an­burð­ar­kost­ur­inn svo­kall­aður núll­kostur. Það var eng­inn sam­an­burður og ég hef bent á að um það gildi laga­skylda. Ef fólk í Árnes­hreppi kemur til mín mun ég sann­ar­lega taka á móti því,“ sagði Sigurður Gísli í sam­tali við Mannlíf.

Verður að rannsaka

Elías seg­ist spyrja sjálfan sig að því hvaðan allir pen­ing­arnir hafi komið til Vest­ur­verks vegna fram­kvæmd­ar­innar. Hann segir allt of mörgum spurn­ingum ósvarað. „Það er því miður svo margt í þess­ari veg­ferð sem vekur upp stórar spurn­ingar. Til dæmis skil ég ekki þetta fyr­ir­tæki Vest­ur­verk. Samkvæmt árs­reikn­ingum þess virð­ist það eign­ar­laust félag með engar tekjur sem tekst að eyða millj­örðum í þetta verk­efni. Hvaðan komu pen­ing­arnir? Var þetta fyr­ir­tæki með óút­fylltan tékka frá HS Orku og líf­eyr­is­sjóð­unum?“ spyr Elías.

„Þetta verður auð­vitað að rann­saka því það er svo margt þarna skrítið. Að mínu viti er alveg pott­þétt að þarna hafa verið brotin lög, svo langt sem rétt­ar­vit­und almenns þegns nær. Ég krefst lög­reglu­rann­sóknar á þessu.“

Lítið um málið að segja

Jóhann Snorri Sig­ur­bergs­son, for­stöðu­maður við­skipta­þró­unar HS Orku, bendir á að þær fram­kvæmdir sem tengj­ast Hval­ár­virkjun séu fyrst og fremst mál­efni Vest­ur­verks að svara fyrir. Aðspurður seg­ist hann ekki tjá sig um ein­staka sam­skipti við aðila nema þau væru opin­ber. „Við reynum þó almennt að svara þeim fyr­ir­spurnum sem er beint til okkar og tengj­ast HS Orku. Annars höfum við í sjálfu sér ekk­ert um þetta að segja. Varðandi kröfu um opin­bera rann­sókn þá er að sama skapi lítið um það að segja annað en að til þess bær yfir­völd eru best til þess fallin að taka afstöðu til þess.“

Ólafur Helgi Kjart­ans­son, lög­reglu­stjóri á Suð­ur­nesjum, kann­að­ist ekki við að hafa fengið beiðni frá Elíasi um lög­reglu­rann­sókn þegar Mannlíf leit­aði við­bragða. Gylfi Gíslason, for­maður Líf­eyr­is­sjóðs­ins Gildi, kann­ast heldur ekki við að hafa fengið erindið til sín. „Muni erindið ber­ast verður tekin afstaða til þess,“ segir Gylfi.

Umdeildar framkvæmdir

Vest­ur­verk sem er að mestu í eigu HS Orku hugð­ist reisa Hval­ár­virkjun í Ófeigs­firði á Ströndum og virt­ist fátt koma í veg fyrir þær fyr­ir­ætl­anir. Skipu­lags­stofnun taldi að virkj­unin kæmi til með að hafa veru­leg nei­kvæð áhrif á óbyggð víð­erni Vest­fjarða. Óbyggða­nefnd hafði úrskurðað Drang­jökul sem þjóð­lendu og land­eig­endur stóðu í deilum vegna vega­gerðar og landa­merkja.

Eva Sig­ur­björns­dóttir.

Nátt­úr­fræði­stofnun bland­að­ist í málið eftir að and­stæð­ingar virkj­un­ar­innar vís­uðu á að frið­aðir stein­gerv­ingar væru á fram­kvæmda­svæð­inu. Fjögur íslensk nátt­úru­vernd­ar­sam­tök börð­ust gegn áformunum, Land­vernd, Nátt­úr­vernd­ar­sam­tök Íslands, Ungir umhverf­is­sinnar og Rjúkandi, með því að leggja tví­vegis fram kæru gegn deildu­skipu­lagi og fram­kvæmda­leyfi Hval­ár­virkj­unar. Alþjóð­legu nátt­úru­vernd­ar­sam­tökin tóku undir þá kröfu að svæðið beri að vernda. Úrskurð­ar­nefnd umhverfis- og auð­linda­mála hafn­aði stöðv­un­ar­kröf­unni í fyrra og til stóð að nefndin tæki afstöðu til seinni kæru nátt­úr­vernd­ar­sam­tak­anna fjög­urra. Á end­anum kom ekki til þess, fram­kvæmdum var slegið á frest í COVID-19 far­aldr­inum, en þær áttu að hefj­ast nú í sumar, skrif­stofu Vest­ur­verks var lokað og starfs­fólki sagt upp.

Í sam­tali við Mannlíf seg­ist Eva Sig­ur­björns­dóttir, odd­viti Árnes­hrepps á Ströndum, afar von­svikin. Hún segir nátt­úr­una skipta minna máli en orku­ör­yggi íbúa Vest­fjarða. „Í nútíma­sam­fé­lagi er þetta ekki ásætt­an­legt. Náttúran er bara lít­ill hluti af þessu máli. Að fá sæmi­legt orku­ör­yggi vegur miklu þyngra en þessi litli partur af Vest­fjörðum sem fer undir. Nema rík­is­stjórnin vilji flytja okkur hreppa­flutn­ingum suður. Við myndum svo sem ekki taka mikið pláss í Reykja­vík,“ segir Eva.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina