Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Galin harka flugfreyja gagnvart Icelandair

Galin harka flugfreyja gagnvart Icelandair
Mynd / EPA Ásdís Ýr Pét­urs­dóttir

„Það er nátt­úr­lega mjög áhuga­vert að hér á landi eru til tvö félög og í íslenskum lögum er ekk­ert sem segir að það skuli semja við flug­freyjur um starf á Íslandi við Flug­freyju­fé­lag Íslands og engan annan,“ segir Jón Karl Ólafsson, stjórn­ar­for­maður Heims­ferða og fyrrum for­stjóri Icelandair, um mögu­leika Icelandair að leita annað náist ekki samn­ingar við Flug­freyju­fé­lag Íslands.

Icelandair horfir til þess að semja við annað íslenskt flug­freyju­fé­lag, Íslenska flug­stétta­fé­lagið, ÍFF, til að tryggja fram­tíð flug­fé­lags­ins eftir að Flug­freyju­fé­lag Íslands, FFÍ, gekk frá samn­inga­borð­inu á loka­metr­unum í vik­unni. Svo herma heim­ildir Mannlífs. Hið nýja flug­stétt­ar­fé­lag hefur nú þegar samið við flug­fé­lagið Play sem hyggst fara í loftið innan tíðar og herma heim­ildir Mannlífs að þeir samn­ingar séu næstum helm­ingi hag­stæð­ari fyrir flug­fé­lagið heldur en núgild­andi samn­ingar Icelandair við flug­freyjur. Í við­tali við Mannlíf í dag segir for­maður ÍFF, Vignir Örn Guðnason, alla vel­komna til félags­ins.

„Það sem mér finnst síðan ennþá asna­legra er að þetta sama félag hefur í gegnum tíð­ina samið við sam­keppn­is­að­ila Icelandair um sam­bæri­leg störf á miklu betri kjörum.“

Jón Karl bendir á að opinn mark­aður geri ráð fyrir að í raun eigi að vera hægt að sækja vinnu­afl hvert sem er. Það sem FFÍ hangi stíft á sé ára­tuga­gam­alt for­gangs­rétt­ar­á­kvæði samn­inga sem hann telur úrelt í dag. „Þetta er ára­tuga­gam­alt ákvæði sem ég hef verið að benda á að stang­ist á við opinn markað í dag. Um félaga­frelsi hafa fallið fullt af dómum. Ég held því fram að þetta ákvæði muni ekki stand­ast neina skoðun og að ekki sé lengur hægt að hanga á ára­tuga­gam­alli reglu um for­gang. Ég bara trúi því ekki.“

Jón Karl Ólafsson, stjórn­ar­for­maður Heims­ferða og fyrrv. for­stjóri Icelandair

Aðspurður segir Jón Karl það vekja furðu að félags­menn FFÍ hafi áður samið betur við sam­keppn­is­að­ila Icelandair. Hann ber fyrir því fulla virð­ingu að fólk vilji ekki auð­veld­lega gefa frá sér áunnin rétt­indi. „Gildandi samn­ingar eru byggðir á ára­tuga upp­söfnun rétt­inda. Auðvitað eru þetta áunnin rétt­indi og ég skil það vel að fólk vilji ekki gefa það frá sér. En þessir samn­ingar hafa byggst upp á löngum tíma og oft í umhverfi þegar sam­keppnin var allt önnur. Mér finnst flug­freyju­fé­lagið hljóta frekar slæma ráð­gjöf í þá veru að vilja heldur kné­setja félagið en semja við það um betri kjör.“

„Það sem mér finnst síðan ennþá asna­legra er að þetta sama félag hefur í gegnum tíð­ina samið við sam­keppn­is­að­ila Icelandair, fyrst Iceland Express, svo WOW og núna semja flug­freyjur líka við Play, um sam­bæri­leg störf á miklu betri kjörum. Það finnst mér algjör­lega galið,“ segir Jón Karl.

Eins og áður segir telur Jón Karl uppi áhuga­verða stöðu ver­andi með tvö lög­gilt flug­stétta­fé­lög á land­inu og ljóst að Icelandair hafi mögu­lega kost á því að leita annað. Fari illa fyrir flug­fé­lag­inu á end­anum segir hann pott­þétt að skarðið verði fyllt. „Icelandair hefur þarna annan kost en reyna þarf þá á for­gangs­rétt­inn enda hanga stétt­ar­fé­lögin mjög hart á því ákvæði. Það vita það allir að það kemur alltaf eitt­hvað í stað­inn fyrir Icelandair fari þetta illa. Ég hef engar áhyggjur af því að ekki verði flogið til og frá Íslandi. Það vita það líka allir að Flug­freyju­fé­lag Íslands mun ekki ná svona góðum samn­ingum við nýjan aðila.“

Nánar er fjallað um málið í nýjasta tölu­blaði Mannlífs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina