Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Auðmenn bíða á bak við tjöldin

Auðmenn bíða á bak við tjöldin
|

Umsvifa­miklir íslenskir fjár­festar bíða á bak við tjöldin og eru til­búnir til að stíga fram og veita flug­fé­lag­inu Play umtals­verðan fjár­stuðn­ing, grípa þannig mark­aðstæki­færið sem fælist í því ef Icelandair end­aði alfarið í faðmi rík­is­ins. Svo herma heim­ildir Mannlífs sem telja fjár­fest­ana jafn­framt lík­lega til þess að hverfa á braut nái síð­ar­nefnda flug­fé­lagið sér á strik.

Grannt er fylgst með fram­vindu mála í björg­un­ar­ferli Icelandair og heyrst hefur að á meðal þeirra sem fylgj­ast spenntir með séu íslenskir fag­fjár­festar. For­svars­menn flug­fé­lags­ins Bláfugls og Play segja bæði félögin til­búin til að hefja far­þega­flug fari Icelandair í þrot. Á meðan útlit er fyrir að fátt bjargi flug­fé­lag­inu annað en rík­is­að­stoð og aðkoma líf­eyr­is­sjóð­anna með almannafé er altalað að fjár­sterkir aðilar sjái mikil tæki­færi í öðrum flug­rekstri í sam­keppni við rík­is­rekið og hæg­burða Icelandair. Mest er talað um aðkomu fjár­fest­inga­fé­lag­anna Novators sem er í eigu Björg­ólfs Thors Björg­ólfs­sonar, og Stoða.

Örlögin í höndum flugfreyja?

Jón Þór Þor­valds­son, for­maður Félags íslenskra atvinnu­fluga­manna, hefur stað­fest að lítið beri á milli í við­ræðum við Icelandair og er búist við að samn­ingar við flug­menn tak­ist um helg­ina. Samkvæmt heim­ildum Mannlífs kveður samn­ing­ur­inn á um 25% launa­lækkun flug­manna og hafa þeir gefið eftir frí­daga og eru til­búnir til að auka vinnu­fram­lag.
Enn er allt stál í stál á milli Icelandair og flug­freyja. Samkvæmt heim­ildum Mannlífs eru kröfur Icelandair mun væg­ari en komið hefur fram í fjöl­miðlum, eða nokkuð í anda þess sem flug­mönnum hefur boð­ist. Grunn­laun flug­freyja eru þó tals­vert lægri en flug­manna.
Þá herma heim­ildir Mannlífs einnig að stjórn og for­stjóri Icelandair hafi nú þegar lækkað laun sín um 30 pró­sent og allir helstu stjórn­endur félags­ins um 20 pró­sent.

Bíða átekta

Svo virð­ist sem flug­freyjur standi einar eftir gegn Icelandair. Á meðan fylgj­ast for­svars­menn Play náið með fram­gangi mála og náist ekki samn­ingar við flug­freyjur eru þekktir fjár­festar til­búnir til að stíga fram og veita félag­inu umtals­verðan fjár­hags­stuðn­ing, grípa þannig mark­aðstæki­færið.

Augljós vand­ræði Icelandair hafi vakið sterkan áhuga fyrr­nefndra fjár­festa á mögu­legri aðkomu að fyr­ir­tæk­inu. Heim­ildir Mannlífs herma að aðkoma nýrra fjár­festa sé hins vegar ekki tryggð og taki meðal ann­ars mið af fram­gangi við­ræðna við flug­freyjur og hvernig Icelandair tak­ist til við að end­ur­reisa félagið.

Ekki í fyrsta sinn

Ekki í fyrsta sinn Björgólfur Thor hefur áður verið orð­aður við flug­rekstur því fjallað var um aðkomu hans með lán­veit­ingum til WOW flug­fé­lags­ins fallna og að hann hafi verið laus undan þeim lán­veit­ingum eða ábyrgðum við síð­asta hluta­fjár­út­boð félags­ins. Tals­maður Björg­ólfs Thors neit­aði aftur á móti aðkom­unni á sínum tíma. Júlíus Þor­finns­son, fram­kvæmda­stjóri Stoða, vildi hvorki stað­festa né hafna því í sam­tali við Mannlíf að við­ræður við Play flug­fé­lagið hafi átt sér stað um inn­komu fjár­fest­inga­fé­lags­ins á næst­unni. „Við fylgj­umst með þessu eins og ýmsu öðru í íslensku við­skipta­lífi. Eðli máls­ins sam­kvæmt erum við alltaf opnir fyrir tæki­færum og hljótum því að fylgj­ast með þessu.“

Löng flugsaga

Löng flug­saga Stoðir voru reistar á grunni félags­ins FL Group sem á sínum tíma var einn stærsti eig­andi Icelandair sem nú berst í bökkum, og einnig einn stærsti hlut­hafi í American Airlines fyrir gjald­þrot félags­ins. Stjórn­ar­for­maður félags­ins er Jón Sig­urðs­son sem var einnig for­stjóri FL Group áður. Meðal ann­arra fjár­festa Stoða eru Magnús Ármann, Þor­steinn M. Jónsson, oft­ast kenndur við Kók á Íslandi, og Örvar Kærne­sted hjá TM sem allir til­heyrðu FL Group áður en félagið fór á haus­inn. Það er því ljóst að djúpa vasa og mikla flug­sögu er að finna í þessum fjár­fest­inga­hópi en Stoðir eru einnig meðal stærstu eig­enda Arion banka.

Nánar er fjallað um málið í nýjasta tölu­blaði Mannlífs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina