Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Mál bakvarðarins sent saksóknara

Mál bakvarðarins sent saksóknara
Málið í hnot­skurn

Rannsókn á máli bak­varð­ar­ins fræga, Önnu Auroru Waage Ósk­ars­dóttir, er lokið hjá lög­regl­unni á Vest­fjörðum og málið verður sent áfram til hér­aðs­sak­sókn­ara þar sem tekin verður ákvörðun hvort gefin verði út ákæra. Það gefur ákveðnar vís­bend­ingar um að málið sé sent sak­sókn­ara í stað þess að lög­regla hafi hætt rann­sókn án frek­ari eft­ir­mála.

Rannsókn lög­reglu snéri að meintu skjala­falsi er Anna Aurora tók að sér starf í bak­varða­sveit Heil­brigð­is­stofn­unar Vest­fjarða í bar­átt­unni við COVID-19, en þar hún var hand­tekin vegna kæru um fölsun skjala um menntun sína og starfs­leyfi. Þá var lög­reglan einnig að rann­saka mein­tan þjófnað bak­varð­ar­ins og meint brot Önnu Auroru á hegn­ing­ar­lögum í þá veru að hún hafi unnið starf sem opin­bert leyfi þarf til. Rann­sókn­inni er í öllum atriðum lokið og hér­aðs­sak­sókn­ari ákveður fram­haldið.

Lýsir áfram sakleysi

Karl Ingi Vil­bergs­son, lög­reglu­stjóri á Vest­fjörðum, stað­festir að síð­ustu yfir­heyrslur hafi farið fram yfir Önnu Auroru fyrr í vik­unni og að rann­sókn sé lokið. Það verði nú sent hér­aðs­sak­sókn­ara en bak­vörð­ur­inn lýsir áfram yfir sak­leysi sínu. „Við erum að ganga frá mál­inu og munum senda það áfram. Málið telst upp­lýst og næsta skref að lesa það yfir með til­liti til þess hvort gefin verði út ákæra og það fari fyrir dóm,“ segir Karl Ingi.

Anna Aurora var hand­tekin að morgni föstu­dags­ins 10. apríl, en eftir hús­leit og yfir­heyrslur þann sama dag var henni sleppt úr haldi. Hún var svo yfir­heyrð aftur núna í byrjun vik­unnar og neitar áfram sök líkt og hún gerði í við­tali við Mannlíf skömmu eftir hand­tök­una. Þar boð­aði hún stefnur gegn bæði Gylfa Ólafs­syni, for­stjóra Heil­brigð­is­stofn­unar Vest­fjarða, og Karli Inga lög­reglu­stjóra.

Rannsakað til botns

Aðspurður svar­aði lög­reglu­stjór­inn því ját­andi hvort málið myndi ekki ósjálfrátt falla niður hafi rann­sóknin sýnt fram á að skjöl bak­varð­ar­ins væru ófölsuð. „Þá myndi málið falla niður jú. Almennt er það svo við rann­sókn lög­reglu að þegar við sjáum sem svo að eitt­hvað verði aldrei að máli og kæra eigi ekki við rök að styðj­ast þá hættum við rann­sókn. Í þessu máli gerðum við það ekki heldur full­kláruðum rann­sókn­ina og sendum frá okkur. Það var til­efni til þess. Það hlýtur því að vera eitt­hvað meira í þessu en almennt þegar kæru er vísað frá eða rann­sókn hætt,“ segir Karl Ingi.

Allt uppi á borðum

Anna Aurora full­yrti að hún hafi ekk­ert að fela og að hún hafi frá upp­hafi sýnt fulla sam­vinnu. „Ég lýsi algjör­lega yfir sak­leysi mínu. Ég sagði allan tím­ann frá því að ég væri með erlent próf en ekki íslenskt, sem ætti eftir að meta. Það voru allir með­vit­aðir um það enda til­kynnti ég það líka strax við kom­una vestur. Það gerði ég um leið og ég mætti og það stóð á öllum plöggum. Það var allt uppi á borðum frá upp­hafi, ég var alls ekk­ert að reyna að falsa neitt,“ sagði Anna Aurora.

Jón Bjarni Krist­jáns­son, lög­maður Önnu Auroru, vildi ekki tjá sig um málið þegar eftir því var leitað en hann hafði áður gefið út yfir­lýs­ingu þar sem sak­leysi bak­varð­ar­ins var lýst yfir. Við vinnslu frétt­ar­innar var leitað við­bragða Önnu Auroru en án árang­urs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina