Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Að fá loksins frelsið var stórkostleg tilfinning“

„Að fá loksins frelsið var stórkostleg tilfinning“
|

„Mér fannst ég heyra í öllum heims­ins fuglum á leið­inni og var ekki viss um hvort þeir væru að fagna því að mann­fólkið væri nú aftur komið á kreik eða hvort þeir væru að kall­ast á að nú væri frið­ur­inn úti hjá þeim. Hvort sem það var, þá var dásam­legt að hlusta á þá,“ segir Rún Kor­máks­dóttir, far­ar­stjóri á Tenerife, sem í dag fékk að fara út að hreyfa sig í fyrsta skipti í þær 7 vikur sem útgöngu­bann hefur staðið yfir á Spáni. Hún skellti sér í fjall­göngu og sagði frels­is­til­finn­ing­una stór­kost­lega.

„Við skelltum okkur beint í fjall­göngu og nutum hvers ein­asta skrefs og fag­urs útsýnis upp til fjalla, yfir bæinn okkar og til sjávar. Ég fyllt­ist hrein­lega þakk­læti yfir þessu frelsi. Sann­kölluð sælu­til­finn­ing. Ég er mik­ill nátt­úru­unn­andi og því hefur mér reynst einna erf­ið­ast að kom­ast ekki í okkar reglu­legu fjall­göngur. Mér leið eins og litlu barni sem bíður eftir jól­unum og að kom­ast út í frelsið eftir 48 daga í útgöngu­banni var stór­kost­leg til­finn­ing,“ segir Rún sem reif fjöl­skyld­una eldsnemma á fætur í morgun til að full­nýta þann tíma sem spænsk yfir­völd hafa gefið til hreyf­ingar og úti­vistar. COVID-19 hefur leikið landið grátt en ástandið hefur verið mun skárra á Kanarí­eyjum bendir Rún á. Aðspurð segir hún að útgöngu­bannið hafi vissu­lega tekið á þar sem óvissan var erf­ið­ust en að á sama tíma hafi hún haft næg tæki­færi til að sinna áhuga­mál­unum.

Rún

„Ótrúlegt en satt að þá hefur mér bara liðið vel. Allt sem heitir óvissa er hins vegar ekki minn tebolli. Um leið og dag­setn­ingar skýrð­ust, þá varð allt miklu létt­ara en síð­asta vikan var trú­lega erf­ið­ust. Við fjöl­skyldan ræddum vand­lega saman um ástandið og tókum strax þá ákvörðun að þetta væri verk­efni sem við myndum leysa í sam­ein­ingu með jákvæðn­ina að leið­ar­ljósi. Hér gerðu sér líka allir grein fyrir þeirri hættu sem fylgir þess­ari veiru og því ekk­ert annað í boði en að taka þessu alvar­lega,“ segir Rún og svarar því til að þrátt fyrir að dag­arnir væru nú orðnir 48 í útgöngu­banni hefði henni aldrei leiðst á tíma­bil­inu.

„Ég er svo heppin að hafa áhuga á svo mörgu, m.a. á list­ræna svið­inu, þannig að ég fór beint í að skipu­leggja alla daga þannig að ég gæti sinnt áhuga­mál­unum, sem hafa fengið að sitja pínu­lítið á hak­anum í gegnum tíð­ina. Ég hef verið dug­leg að mála en með þeirri iðju hef ég farið dag­lega í hug­anum í fjörð­inn minn fagra, Borg­ar­fjörð eystri. Þá er ég búin að vera nokkuð dug­leg að æfa mig á fiðl­una mína og spila ýmis tríólög með dætrum mínum tveimur, sem spila á fiðlu og selló. Þá hef ég verið dug­leg að lesa, hug­leiða í sól­inni, elda góðan mat, heyra í góðum vinum og ætt­ingjum í gegnum hin ýmsu sam­skipta­for­rit. Við erum t.d. búin að fara í gegnum nokkrar spurn­inga­keppnir og núna síð­ast hittum við vini okkar í mat­ar­klúbbi, þar sem við eld­uðum og borð­uðum öll það sama, nema bara í sitt­hvoru land­inu.“

Rún segir það hafa hjálpað mikið til að hafa haft ver­önd og garð við heim­ili sitt. „Það eru algjör for­rétt­indi að hafa haft útsýni til fjalla og sjávar heiman frá mér. Við vitum til fólks, sem býr hér á eyj­unni og víðar sem hefur þurft að halda sig innan íbúð­ar­innar sinnar allan tím­ann, þar sem það hefur ekki einu sinni svalir til að viðra sig á í góða veðr­inu og það hlýtur að hafa reynt á sál­ar­tetrið,“ segir Rún.Rún seg­ist hafa náð að við­halda and­legri og lík­am­legri heilsu þrátt fyrir útgöngu­bannið. Til þess hafi fjöl­skyldan reyndar þurft að fara á svig við til­mæli yfir­valda. „Ég verð því miður, þrátt fyrir að vera strang­heið­ar­legur borg­ari með mikla rétt­læt­is­kennd sem Víðir hefði verið stoltur af hefði ég verið á Íslandi, að við­ur­kenna brot mitt. Málið er að við fjöl­skyldan erum frekar ofvirk þegar kemur að hreyf­ingu og því var sú til­hugsun að fá ekki að fara út að hreyfa sig nán­ast óbæri­leg. Við ákváðum því að láta á það reyna að taka okkur göngu- og hlaupa­t­úra í bíla­kjall­ar­anum sem er hér undir fjöl­býl­is­hús­inu sem við búum í. Þar gengum við og hlupum reglu­lega yfir allt tíma­bilið, ell­efu hringi í hvert skipti, sem töldu um 5 kíló­metra leið. Það virt­ist vera þegj­andi sam­komu­lag á meðal íbú­anna um þetta athæfi.“Rún leggur á það áherslu að tveggja metra reglan hafi verið virt í hví­vetna niðri í bíla­kjall­ar­anum góða. „Um leið og ein­hver bætt­ist í hóp­inn þá virtum við tveggja metra regl­una og ef fleiri en tveir íbúar bætt­ust við í hóp­inn þá fórum við og völdum annan tíma. Þetta voru í raun algjör for­rétt­indi að geta hreyft sig svona,“ segir Rún og bætir því við að í útgöngu­bann­inu hafi hún líka selt bif­reið sína og þurfti kaup­and­inn einnig að brjóta gegn útgöngu­banni. „Við seldum bíl­inn okkar á dög­unum og það er svo sem ekki í frá­sögu fær­andi nema fyrir þær sakir að kaup­and­inn þurfti jú að skoða bíl­inn áður en hann keypti hann og til þess að kom­ast í það verk í bann­inu, þá kom hann hingað á vinnu­bílnum sínum, útfar­ar­bílnum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina