Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Steinunn, Jón Þorgeir og Kristín nýir stjórnendur hjá Þjóðleikhúsinu

Steinunn, Jón Þorgeir og Kristín nýir stjórnendur hjá Þjóðleikhúsinu
|Jón Þorgeir Krist­jáns­son|Kristín Ólafs­dóttir|Steinunn Þór­halls­dóttir

Eftir skipu­lags­breyt­ingar síð­ustu mán­aða í Þjóð­leik­hús­inu hafa nú verið ráðnir þrír nýir öfl­ugir stjórn­endur í Þjóð­leik­húsið. Störf þeirra koma í stað þriggja ann­arra starfa sem voru aflögð sem hluti af áherslu- og skipu­lags­breyt­ingum í leik­hús­inu.  Kemur þetta fram í til­kynn­ingu frá Þjóð­leik­hús­inu.

Nýju starfs­menn­irnir eru allir afar reynslu­miklir á sviði leik­húsa, menn­ingar og þjón­ustu. Steinunn Þór­halls­dóttir tekur við sem fram­kvæmda­stjóri leik­húss­ins, Jón Þorgeir Krist­jáns­son tekur við sem for­stöðu­maður sam­skipta og mark­aðs­mála og Kristín Ólafs­dóttir tekur við nýju starfi þjón­ustu- og upp­lif­un­ar­stjóra. Þau munu koma til starfa á næstu mán­uðum við að und­ir­búa nýtt, glæsi­legt leikár Þjóð­leik­húss­ins sem hefst í lok ágúst.  Þessar breyt­ingar nú koma í kjöl­far end­ur­nýj­unar í hópi list­rænna stjórn­enda leik­húss­ins og skipu­lags­breyt­inga sem kynntar voru í mars. Markmið breyt­ing­anna eru að bæta list­rænt starf og gæði, að opna leik­húsið og sækja nýja leik­hús­gesti og síð­ast en ekki síst að bæta þjón­ustu og upp­lifun leik­hús­gesta. Magnús Geir Þórð­ar­son tók við sem leik­hús­stjóri þann 1. jan­úar.

Steinunn Þór­halls­dóttir

Steinunn Þór­halls­dóttir er nýr fram­kvæmda­stjóri Þjóð­leik­húss­ins
Steinunn hefur víð­tæka reynslu af stjórnun og rekstri í íslensku lista- og menn­ing­ar­lífi. Frá 2017 hefur hún verið fram­kvæmda­stjóri hjá RÚV þar sem hún starf­aði hátt á annan ára­tug sem ferla- og skipu­lags­stjóri, verk­efna­stjóri umbóta­verk­efna, dag­skrár­gerð­ar­maður og fram­leið­andi. Hún var mark­aðs- og kynn­ing­ar­stjóri Lista­há­tíðar í Reykja­vík og Íslensku óper­unnar á árunum 2010-2014. Steinunn er með meistara­gráðu í menn­ing­ar­stjórnun frá Háskól­anum á Bifröst, B.A. gráðu í spænsku og bók­mennta­fræði frá Háskóla Íslands og lagði stund á háskóla­nám í mannauðs­stjórnun og leið­toga­fræðum í Danmörku. Hún hefur kennt nám­skeið um stefnu­mótun og hlut­verk menn­ing­ar­fyr­ir­tækja við Háskól­ann á Bifröst og unnið sem ráð­gjafi um staf­ræna umbreyt­ingu og jafn­rétt­is­mál fyrir EBU, European Broadcasting Union.

Jón Þorgeir Krist­jáns­son

Jón Þorgeir Krist­jáns­son er nýr for­stöðu­maður sam­skipta- og mark­aðs­mála Þjóð­leik­húss­ins
Jón Þorgeir er með ára­langa reynslu af mark­aðs­störfum, hönnun og leik­hús­störfum. Hann er með MBA próf frá Háskól­anum í Reykja­vík og BA gráðu í graf­ískri hönnun frá Lista­há­skóla Íslands. Jón Þorgeir er nú fram­kvæmda­stjóri ÍMARK – sam­taka mark­aðs­fólks á Íslandi. Þar á undan var hann mark­aðs­stjóri Borg­ar­leik­húss­ins auk þess hefur hann tekið þátt í fjölda leik­hús­upp­setn­inga bæði hér­lendis og erlendis bæði sem hönn­uður og/eða mark­aðs­sér­fræð­ingur. Einnig hefur hann hannað og fram­leitt aug­lýs­ingar fyrir mörg stærstu fyr­ir­tæki lands­ins.

Kristín Ólafs­dóttir

Kristín Ólafs­dóttir tekur við nýju starfi þjón­ustu- og upp­lif­un­ar­stjóra Þjóð­leik­húss­ins
Kristín Ólafs­dóttir hefur gríð­ar­lega reynslu sem þjón­ustu­stjóri, veit­inga­maður og ráðs­maður á Bessa­stöðum.   Kristín er með meistara­gráðu í fram­reiðslu, blóma­skreytir og hefur einnig lokið námi í við­burða­stjórnun frá Háskól­anum á Hólum.  Kristín var yfir­þjónn á Icelandair-hót­el­inu á Flúðum og Hótel KEA.  Kristín var ráðs­maður á Bessa­stöðum í níu ár, frá 2002-2011 og stýrði fram­húsi og veit­inga­sölu Borg­ar­leik­húss­ins á árunum 2013-2018.  Þá hefur hún ásamt eig­in­manni sínum rekið veiði­húsin við Laxá í Kjós, og síð­ustu ár veiði­húsin við Selá og Hofsá í Vopna­firði. Þá hefur hún einnig séð um þjón­ustu í Eldar-lodge, sem er í sér­flokki sem hágæða gisti­að­staða fyrir erlenda ferða­menn.

112 umsóknir bár­ust um störfin þrjú, þar af 32 í stöðu fram­kvæmda­stjóra, 38 í starf for­stöðu­manns sam­skipta og mark­aðs­mála og 42 í stöðu þjón­ustu- og upp­lif­un­ar­stjóra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina