Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Kajakarnir 22 eyðilögðust

Kajakarnir 22 eyðilögðust
Sigurður hefur ekki fengið bætur vegna kajaka hans sem eyðilögð­ust.

Þremur mán­uðum eftir að snjó­flóðin féllu á Flateyri í vetur hefur lítið gerst í þeim efnum að bæta tjónið. Reiði er meðal íbúa vegna slæ­legra vinnu­bragða þeirra er að mál­inu koma.

Hús sem talið var standa á öruggum stað í skjóli varn­ar­garða varð fyrir öðru flóð­inu. Björg­un­ar­sveita­fólk gróf þar stúlku upp úr flóð­inu og þótti mildi að ekki fór verr. Auk þessa ollu flóðin umtals­verðum skemmdum á munum, stórum sem smáum.

Eyði­legg­ingin varð mikil. Fyrir utan að bátar þorps­búa urðu allir fyrir tjóni eyðilögð­ust bílar, hús og margt fleira. Ljóst er af sam­tölum við fólk á Flateyri að eyði­legg­ingin er mun meiri en ráða hafði mátt af fréttum eftir að flóðin féllu.

Skiln­ingur þeirra Flat­eyr­inga sem Mannlíf hefur rætt við er að ráð­herrar, þing­menn og yfir­menn Ísa­fjarð­ar­bæjar hafi verið sam­mála um að allt tjón yrði bætt og ráð­ist í að tryggja betur öryggi íbúa þorps­ins vegna þeirrar nátt­úru­vár sem af snjó­flóðum stafar.

Kajakarnir 22 eyðilögðust

„Það kom skýrsla frá aðgerð­ar­hópi sem for­sæt­is­ráðu­neytið stofn­aði vegna snjó­flóð­anna á Flateyri í byrjun mars. Þar kom fram að kanna ætti tjón sem skap­ast hefði af völdum snjó­flóð­anna. Ég kann­ast ekki við að talað hafi verið við nokkurn mann hér á Flateyri um þessi mál í fram­haldi af skýrsl­unni,“ segir Sigurður J. Hafberg, ferða­fröm­uður á Flateyri.

Sigurður rak elstu kajaka­leigu lands­ins. Fyr­ir­tæki hans, Græn­höfði ehf. fagnar 20 ára afmæli á árinu og hefur notið mik­illa vin­sælda allt frá stofnun enda þykir Önund­ar­fjörður kjör­inn fyrir kajak­ferðir.

„Fyrst eftir flóðin var bær­inn í góðu sam­bandi við okkur hérna en nú virð­umst við gleymd.“

„Ég var með bát­ana okkar í gámi við hafn­ar­svæðið. Nú er allt ónýtt, gámur­inn og 22 bátar ásamt þeim bún­aði sem fylgir svona útgerð. Ég á enga mögu­leika á að koma fyr­ir­tæk­inu aftur af stað ef ekki fást neinar bætur fyrir það sem ónýtt varð. Það munar svo sann­ar­lega um hvert starf eins og staðan er núna hérna í pláss­inu. Svo er ferða­þjón­ustan hérna eins og keðja þar sem hvert styður annað, ef hlekk vantar í verða bara eftir bútar af keðju,“ segir Sigurður.

Fjallað er um málið í nýjasta tölu­blaði Mannlífs.

Ljóst er að um marg­millj­óna tjón er að ræða enda búið að taka tvo ára­tugi að koma fyr­ir­tæk­inu í þessa stærð. „Ég held því fram að þetta hafi verið elsta og virðu­leg­asta kajak­leiga lands­ins og því beri að varð­veita hana,“ segir hann.

Sigurður, eins og fleiri Flat­eyr­ingar, furðar sig á hversu inni­halds­laus lof­orð ráðamana eru. Hann segir van­mátt og reiði krauma meðal íbúa á Flateyri.

„Það stendur ekki steinn yfir steini í því sem sagt hefur verið og lofað. Ég sakna þess mjög að ekk­ert heyr­ist frá bæj­ar­yf­ir­völdum á Ísafirði. Fyrst eftir flóðin var bær­inn í góðu sam­bandi við okkur hérna en nú virð­umst við gleymd.

Ég spyr líka, hvar er fisk­vinnslan sem átti að opna hér um ára­mótin og Byggða­stofnun lét hafa 400 tonna kvóta til að hefja vinnslu. Það eru nokkrar vikur síðan að ára­mótin voru og það bólar ekki neitt á neinu í þeim efnum,“ segir Sigurður.

Lestu úttekt­ina í heild sinni í Mannlíf.

Texti / Guð­mundur Sig­urðs­son
Myndir / Guð­mundur Sig­urðs­son og Eyþór Jóvins­son

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina