Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Engar sannanir fyrir því að COVID-19 smit berist með gæludýrum

Engar sannanir fyrir því að COVID-19 smit berist með gæludýrum

Þóra Jóhanna Jón­as­dóttir, dýra­læknir hjá MAST, segir að hverf­andi líkur séu á því að gælu­dýr geti smitað eig­endur sína af COVID-19 – eða öfugt.

Hún segir að fjöldi fyr­ir­spurna hafi borist stofn­un­inni vegna COVID-19 far­ald­urs­ins og því hafi þótt ástæða til að taka saman upp­lýs­ingar á heima­síðu MAST til að svara spurn­ingum gælu­dýra­eig­enda sem til þeirra hafa leitað.

„Við höfum sett upp spurn­ingar og svör varð­andi það hvort sé ástæða til að ótt­ast þessi smit, ann­að­hvort að dýrin geti smitað eig­endur eða þá öfugt. Það eru hverf­andi líkur en það er fræði­legur mögu­leiki. Á heims­vísu hefur veiran aðeins fund­ist í þremur til­vikum í gælu­dýrum, í tveimur hundum og einum ketti. Hund­arnir sýndu engin sjúk­dóms­ein­kenni. Kött­ur­inn sýndi önd­un­ar­færa- og melt­ing­ar­ein­kenni, sem óvíst er hvort tengd­ist smit­inu, en náði sér hratt,“ segir Þóra Jóhanna.

„Vissu­lega þarf að skoða þetta betur og það er verið að setja upp fleiri rann­sóknir í nokkrum löndum þess efnis. En að svo stöddu er ekk­ert sem bendir til þess að gælu­dýr beri smit á milli. Það er samt auð­vitað rétt að hafa allan vara á og þvo vel hend­urnar eftir snert­ingu við dýr eins og annað, og einnig áður en matur er útbú­inn fyrir dýrið.“

Tveir sýktir hundar og einn köttur

Ítar­legri umfjöllun í helg­ar­blað­inu Mannlíf.

Þótt talið sé að kór­ónu­veiran sé upp­runnin í dýrum og hafi færst yfir í menn, hefur ekki verið sýnt fram á að smit hafi borist frá hús­dýrum eða gælu­dýrum til manna eða ann­arra dýra.

Í tveimur til­fellum hefur veiran greinst í sýnum sem tekin voru úr hundum sýktra ein­stak­linga, en hund­arnir sjálfir veikt­ust aldrei. Í báðum til­fellum var um að ræða hunda sem sýkt­ust af eig­endum sínum í Hong Kong. Sá fyrri var af pomer­anian-kyni og var smit hans stað­fest 28. febr­úar síð­ast­lið­inn en eig­and­inn, 60 ára kona, hafði þá líka verið greind með smit og þótti það sannað að dýrið hafði smit­ast af eig­and­anum. Hund­ur­inn sýndi engin ein­kenni og veikt­ist ekki af völdum veirunnar en lést hins vegar um miðjan mars­mánuð, þá 17 ára að aldri. Konan hefur ekki leyft krufn­ingu á dýr­inu og því er dán­ar­or­sök ókunn. Í hinu til­fell­inu var um að ræða þýskan fjár­hund sem greind­ist jákvæður af veirusmiti og sannað að hann hafi einnig sýkst af eig­anda sínum í Hong Kong.

Þá greind­ist nýlega belgískur heim­il­is­köttur með COVID-19 og talið er að eig­andi hans hafi borið smitið yfir í dýrið en eig­and­inn hafði greinst jákvæður viku áður. Kött­ur­inn var með sjúk­dóms­ein­kenni í önd­un­ar­færum og melt­ingu en ekki hefur verið stað­fest að þau hafi verið vegna veirunnar. Engar vís­bend­ingar eru um að þessi dýr hafi borið smit í fólk eða önnur dýr.

Hreinlæti skiptir máli

Samkvæmt ráð­legg­ingum Mat­væla­stofn­unar skal ávallt þvo hendur eftir snert­ingu við dýr, sér­stak­lega áður en mat­væla er neytt og almennt ætti að forð­ast að leyfa hundum að sleikja and­lit fólks og hendur. Það er í lagi að fara út með hund­inn að því gefnu að leið­bein­ingum um sótt­kví og ein­angrun sé fylgt.

Nánar er fjallað um málið í helg­ar­blað­inu Mannlíf.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina