Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Algjört hrun í sölu veiðileyfa

Algjört hrun í sölu veiðileyfa
Árni Bald­urs­son hjá Lax-á segir að tjóni hlaupi á tugum millj­óna.

Veiði­rétt­ar­hafar eru á meðal þeirra aðila í ferða­þjón­ustu sem horfa upp á algjört hrun vegna COVID-19. Tjónið hleypur hjá einum þeirra á tugum millj­óna.

„Þetta lítur hel­víti illa út,“ segir veiði­leyfasal­inn og leið­sögu­mað­ur­inn þaul­reyndi Árni Bald­urs­son. Hann á fyr­ir­tækið Lax-á, sem hefur um ára­bil leigt veiði­svæði og selt veiði­leyfi auk þess að bjóða upp á veiði­ferðir til landa eins og Rúss­lands og Noregs. Árni sér fram á tug millj­óna tjón vegna kór­ónu­veirunnar.

Venjan er sú að erlendur veiði­maður sem kaupir veiði­leyfi greiðir helm­ing­inn við bókun en seinni helm­ing­inn þegar nær dregur. Árni segir að allt fjár­streymi til fyr­ir­tæk­is­ins sé í frosti. Enginn greiði seinni helm­ing greiðsl­unnar og allir þeir sem ekki höfðu greitt helm­ing­inn hafi afbókað. Hann seg­ist hafa gert eina til­raun til að rukka fastakúnna síð­ustu dag­anna. „Are you out of your mind?“ var svarið sem hann fékk til baka, sem þýða mætti „Ertu viti þínu fjær?“ „Þar með lauk inn­heimtu minni í mars,“ segir Árni og hlær, þrátt fyrir allt.

„Þetta má ekki verða til þess að mark­aðs­starf til margra ára­tuga sé fyrir bý.“

Margir veiði­rétt­ar­hafar greiða helm­ing rent­unnar til land­eig­enda í apríl, á grund­velli samn­ings. Árni er einn þeirra. Hann á von á því að vor­greiðslan geti reynst mörgum fyr­ir­tækjum á þessum mark­aði erfið. „Það verður mik­ill hrist­ingur ef það kemur ekk­ert í kass­ann,“ útskýrir hann.

Eldri menn kaupa dýrustu ferðirnar

Árni segir að flestir þeir við­skipta­vinir sem mestu eyði í veiði­ferðir hjá Lax-á séu eldri menn sem eru vel stæðir. Þeir eru jafn­framt í áhættu­hópi vegna kór­ónu­veirunnar, fyrir ald­urs sakir. Ekki bæti úr skák að bresk stjórn­völd hafi sagt eldra fólki að ferð­ast ekk­ert næstu sex mán­uð­ina en Bretar eru nokkuð áber­andi við íslenskar veiðiár á sumrin. Einnig sé búið að ákveða að loka Rúss­landi fyrir veiði allt næsta sumar og að í Skotlandi, þar sem Lax-á er með árs­væði á leigu, sé bannað að veiða.

„Það er búið að hætta við allt í sumar,“ segir hann um þessi svæði en utan­lands­ferðir með veiði­menn hafa verið ein stærsta tekju­lind fyr­ir­tæk­is­ins. „Þetta lítur þess vegna hörmu­lega út,“ segir Árni. Hann er von­lít­ill um að júlí, ágúst og sept­em­ber verði í lagi. „Það þýðir ekki alveg að úti­loka það, en það yrði svaka­leg heppni. Ég held að þeir komi bara ekki. Heim­ur­inn verður ekki kom­inn á lapp­irnar svona fljótt.“

Færa menn á milli ára

Ítar­legri umfjöllun í helg­ar­blað­inu Mannlíf.

Árni segir að helsta úrræði veiði­leyfa­sala sé að færa menn á milli ára, sem greitt hafi helm­ing veiði­leyf­anna. Flestir kúnnar sum­ars­ins verði senni­lega færðir til næsta sum­ars. Það muni hins vegar skerða söl­una næsta sumar, svo tjónið sé mikið. „Við getum ekki borgað þeim til baka því við erum búnir að borga land­eig­endum aðra greiðsl­una. Pen­ing­ur­inn er far­inn frá okkur.“ Hann segir að tjónið hjá fyr­ir­tæk­inu hlaupi á tugum millj­óna króna og hann eigi von á því að fyr­ir­tækið nýti sér úrræði stjórn­valda um hluta­bætur. Fjórir starfs­menn vinna á skrif­stofu fyr­ir­tæk­is­ins. Þar hafi fólk ekk­ert að gera nema taka á móti afbók­unum. „Það eru allir í að slökkva elda. Þetta er algjör hryll­ingur.“

Árni á von á því að setj­ast niður með land­eig­endum og reyna að semja um málið. Það séu allir á sama báti. Hann segir að finna verði út úr því hvort ákvæði samn­inga um óvið­ráð­an­legar ytri ástæður gildi nú. „Menn verða að standa í lapp­irnar og greiða úr þessu. Þetta má ekki verða til þess að mark­aðs­starf til margra ára­tuga sé fyrir bý.“

Nánar er fjallað um málið í helg­ar­blað­inu Mannlíf.

Texti / Baldur Guð­munds­son

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina