Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ljósið innleiðir stafræna lausn frá Proency sem metur andlega heilsu einstaklinga

Í byrjun vik­unnar tók Ljósið end­ur­hæf­ing­ar­mið­stöð fyrir krabba­meins­greinda nýja staf­ræna heilsu­lausn í gagnið sem þróuð var af íslenska sprota­fyr­ir­tæk­inu Proency.

Ljósið innleiðir stafræna lausn frá Proency sem metur andlega heilsu einstaklinga
Erna

Ákveðið var að flýta inn­leið­ingu kerf­is­ins, sem metur and­lega heilsu þjón­ustu­þega með vís­inda­lega við­ur­kenndum aðferðum, til að gefa þjón­ustu­þegum tæki­færi á að fylgj­ast betur með eigin líðan á meðan Ljósið er lokað vegna Covid19.

„Við byrj­uðum á að inn­leiða þetta fyrir starfs­manna­hóp­inn til að fá til­finn­ingu fyrir hvernig það virk­aði, hversu mikil vinna þetta væri fyrir not­endur og hvort að upp­lýs­ing­arnar nýtt­ust þeim. Það er óhætt að segja að allir hafi verið ánægðir,“ segir Erna Magn­ús­dottir, for­stöðu­kona Ljóssins.

„Það eru mikil verð­mæti í því að vita að fólkið manns getur fylgst með líðan sinni í gegnum tíð og tíma, gert æfingar heima og annað sem miðar að því að halda jafn­vægi. Fyrir mig sem stjórn­anda eru verð­mætin mikil því lausnin gefur mynd af líðan hóps­ins sem heild og tæki­færi til að bregð­ast við ef streita hóps­ins er til að mynda orðin of mikil.“

Erna Magn­ús­dottir, for­stöðu­kona Ljóssins, og eig­endur Proency, Sigrún Þóra Sveins­dóttir sál­fræð­ingur og Stefnir Krist­jáns­son fyrir framan Ljósið Mynd / Aðsend

En hvernig mun þetta nýt­ast ljós­berum?

Fyrir þjón­ustu­þega Ljóssins er þetta tól til þess að meta eigin líðan og fá fræðslu um aðferðir sem eru væn­legar til þess að bæta líðan. Í kerf­inu er meðal ann­ars kennsla í núvit­und, þakk­læt­is­skrifum og mark­miða­setn­ingu ásamt hug­leiðslum og and­legri þjálfun að mörgu tagi.

,,Það er mik­il­vægt að fá tæki­færi til þess að vinna og hlúa að eigin and­legri heilsu og sér­stak­lega fyrir skjól­stæð­inga Ljóssins. Ljósið spilar stórt og mikið hlut­verk í end­ur­hæf­ingu og bata­ferli ein­stak­linga sem grein­ast með krabba­mein og við viljum hjálpa Ljósinu að hlúa að skjól­stæð­ingum sínum núna á þessum tímum þar sem fjar­lægðin og öryggi þeirra skiptir mestu máli,“ segir Sigrún Þóra Sveins­dóttir einn af stofn­endum Proency.

Þjón­ustu­þegar Ljóssins hafa nú fengið póst þar sem þeir geta skráð sig inn í kerfið með ákveðnum kóða. Því næst svara þeir spurn­inga­listum sem leggja grunn­inn að þeirra veg­ferð ásamt því að móta sjón­rænt mæla­borð að eigin líðan.

Nánustu aðstand­endum Ljósbera stendur einnig til boða aðgangur að kerf­inu.

Sýn­is­horn af stjórn­borði Mynd / Aðsend

Persónuvernd virt

„Fyrir okkur var það mjög mik­il­vægt að upp­lýs­ingar væru ekki rekj­an­legar og per­sónu­vernd virt í hví­vetna.Við getum með engu móti séð hverjir svara hverju en við sjáum hvernig líðan hóps­ins er á hverri stundu. Við erum virki­lega spennt fyrir tæki­fær­unum sem lausnin býður upp á og að geta með þessu bætt þjón­ustu Ljóssins gagn­vart ljós­berum og fjöl­skyldum þeirra,“ segir Erna.

Ljósið er end­ur­hæf­ingar- og stuðn­ings­mið­stöð fyrir ein­stak­linga sem greinst hafa með krabba­mein og aðstand­endur þeirra. Í Ljósinu fá ein­stak­lingar þver­fag­lega end­ur­hæf­ingu sem gerir þeim kleift að takast á við lífið í breyttum aðstæðum.

Á meðan núver­andi ástand gengur yfir í sam­fé­lag­inu stendur fyr­ir­tækjum og stofn­unum til boða að þiggja þjón­ustu Proency ókeypis. Hægt er að hafa sam­band við Sigrúnu Þóru í gegnum net­fangið [email protected].

Á heima­síðu Proency má skoða lausn­ina frekar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina