Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Við þurfum aðgerðir. Mennskunnar vegna“

„Við þurfum aðgerðir. Mennskunnar vegna“
Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir

„Nú hafa Evr­ópu­lönd á borð við Finnland, Frakk­land, Portúgal og Lúx­em­borg með Angelu Merkel og Þýska­land í far­ar­broddi, svarað kall­inu og und­ir­strikað vilja til að taka á móti allt að 1500 börnum á flótta frá Grikk­landi. Á sama tíma kepp­ist rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur við að vísa að minnsta kosti fimm fjöl­skyldum og börnum þeirra, í mjög við­kvæmri stöðu til Grikk­lands. Rauði kross­inn hafði mót­mælt fyr­ir­hug­uðum brott­vís­unum og það höfum við í Viðreisn einnig gert,“

segir Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir for­maður Við­reisnar í pistli sínum í Mannlíf.

Þor­gerður bendir á þá stað­reynd að tug­millj­ónir barna séu á flótta vegna stríðs­á­taka, nátt­úru­ham­fara eða ann­arra neyð­ar­að­stæðna í leit að öryggi, skjóli og vernd. Þor­gerður segir fólk ekki flýja heim­ili sín að gamni sínu, heldur af neyð. „Börn á flótta eru sér­stak­lega ber­skjölduð. Þau eru lík­legri til að lenda í klóm barna­þrælk­unar, man­sali og ofbeldi. Slíkur hryll­ingur er ekki vandi sem ein­skorð­ast við landa­mæri. Lönd, þar með talið Ísland, sem hafa und­ir­geng­ist alþjóð­legar skuld­bind­ingar m.a. barna­sátt­mál­ann og mann­rétt­inda­sátt­mál­ann bera mikla ábyrgð og eiga að bregð­ast við.“

Sum mál flóttabarna rata í íslenska fjölmiðla, önnur ekki

„Á hverju ári leita börn á flótta og fjöl­skyldur þeirra til Íslands að vernd. Á hverju ári er fjölda þess­ara barna vísað frá því þau upp­fylla ekki skil­yrði stjórn­valda og eiga því ekki laga­legan rétt á vernd á Íslandi. Sum mál rata í fjöl­miðla. Önnur ekki. Fyrsti við­komu­staður margra fjöl­skyldna á flótta er Grikk­land,“ segir Þor­gerður og bendir á að þar sé ástandið núna óboð­legt; lítið pláss og skortur á almenni­legri aðstöðu eða tæki­færum. Amnesty International, UNICEF og fleiri hafi kallað eftir því að Grikk­land og önnur Evr­ópu­ríki reyni að bregð­ast við með því að rýma flótta­manna­búðir sem áttu að rúma 5000 flótta­menn, en þar búa í dag um 40 þús­und.

„Helstu mann­rétt­inda­sam­tök heims­ins mót­mæla því að end­ur­senda fólk til Grikk­lands. Svo ein­falt er það. Þess vegna er algengt að fólk reyni að kom­ast til ann­arra landa og leita þar að vernd, það er ekki flókið að setja sig í þeirra spor og skilja hvers vegna.“

Óljóst hvað verður um fjölskyldurnar

„Svo komu fram fréttir um frestun brott­vís­unar, í fyrstu var haldið fram að það væri vegna þess að Grikkir gátu ekki tekið á móti þeim vegna aðstæðna. En það tók um klukku­stund fyrir íslensk stjórn­völd að ítreka að svo væri ekki. Það hefði ekki láðst að fá sam­þykki frá réttu stjórn­valdi ytra, og úr því hafi verið bætt. Nú er með öllu óljóst hvað verður um þessar fjöl­skyldur. Það er óvið­un­andi,“ segir Þor­gerður.

„Það er póli­tísk ákvörðun hjá Merkel og öðrum þjóð­ar­leið­togum að taka á móti börnum á flótta. Mannúðin er sálin í Evrópu segir Merkel. Í enn eitt skiptið stimplar hún sig inn sem fram­sýnn og mennskur þjóð­ar­leið­togi. Það er líka póli­tísk ákvörðun að aðhaf­ast ekk­ert, líkt og rík­i­s­tjórnin gerir. Ef lögin og reglu­gerðir heim­ila ekki mann­úð­ar­mið­aða nálgun, þarf ein­fald­lega að breyta þeim. Það þarf ekki fleiri nefndir eða aðrar fjar­vist­ar­sann­anir til þess að þurfa ekki að taka póli­tískar ákvarð­anir. Við þurfum aðgerðir. Mennsk­unnar vegna.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina