Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fullyrt að 150 flugmenn Icelandair missi vinnuna

Fullyrt að 150 flugmenn Icelandair missi vinnuna

Menn sem gjör­þekkja til flug­rekst­urs á Íslandi full­yrtu í gær, áður en Donald Trump tók þá afdrifa­ríku ákvörðun að banna allt flug frá Evrópu til Banda­ríkj­anna í heilan mánuð, að rekstur Icelandair hafi ekki verið þyngri á öld­inni. Ástæðan sé, til við­bótar við Boeing-málið, efna­hags­þreng­ingar og sam­dráttur sem kór­óna­veiran hefur magnað.

Nokkrir heim­ild­ar­menn Mannlífs sögðu jafn­framt í gær að til stæði að segja á bil­inu 150 til 180 flug­mönnum en um 500 flug­menn hafa verið að störfum hjá flug­fé­lag­inu. Aðrar deildir færu ekki var­hluta af nið­ur­skurð­inum.

Icelandair boð­aði í gær til starfs­manna­fundar klukkan 13 í dag.

Ljóst má vera að ákvörðun Donalds Trump er síst til þess fallin að lækka þessar tölur, enda hafði Icelandair gert ráð fyrir að 490 flug­ferðir yrðu farnar til Banda­ríkj­anna á tíma­bil­inu. Það eru 27% allra fyr­ir­hug­aðra flug­ferða félags­ins. Áður hafði félagið til­kynnt um að 80 flug­ferðir myndu verða felldar niður.

Bogi Nils Bogason, for­stjóri, gaf fyrr í vik­unni til kynna að upp­sagnir væri á döf­inni. Nauð­syn­legt væri að taka ákvarð­anir sem væru „erf­iðar og sárs­auka­fullar“. Síðan þá hefur staðan versnað til mik­illa muna.

Sá orðrómur hefur verið hávær síð­ustu daga, hjá þeim sem til þekkja, að Icelandair muni neyð­ast til að leita á náðir rík­is­ins. Í raun má segja að það hafi verið altalað hjá þeim sem til flug­rekst­urs þekkja. Fjórir ótengdir heim­ild­ar­menn sem Mannlíf ræddi við í gær sögð­ust hafa heyrt að slík ákvörðun væri tíma­spurs­mál, jafn­vel daga­spurs­mál. Þeir töldu afar senni­legt að for­svars­menn Icelandair Group hefðu þegar sett sig í sam­band við rík­is­stjórn eða flug­mála­yf­ir­völd vegna stöð­unnar.

Sterk staða lausafjár

Með félag­inu vinnur að lausa­fjár­staðan er sterk. Í til­kynn­ingu frá Icelandair Group í morgun kom fram að það ætti 39 millj­arða króna í lausu fé. Á móti kemur að Icelandair mun ekki njóta þess í sama mæli og sum önnur flug­fé­lög að olíu­verð hefur hríð­fallið. Fram kom í fréttum árið 2018 að 54% af elds­neytis­kaupum Icelandair Group hafi það árið verið varin til 13-18 mán­aða. Í þessu felst að félagið hefur gert fram­virka samn­inga um inn­kaup á olíu. Þetta er gert til að verja sig fyrir verð­hækk­unum. Hin hliðin á þeim pen­ingi er að félagið nýtur ekki verð­lækk­ana.

Sér­fræð­ingar á flug­mark­aði áætla að vegna kór­óna­veirunnar sé eft­ir­spurn eftir flugi með Icelandair á bil­inu 50 til 70% minni en í eðli­legu árferði. Var­færn­asta áætlun sem Mannlíf heyrði var 30%. Þegar þessar tölur voru gefnar upp lágu tíð­indi næt­ur­innar ekki fyrir.

Samhliða þessum sam­drætti búast heim­ilda­menn Mannlífs við því að Icelandair muni minnka flota sinn, en félagið er með um 30 vélar í rekstri. Einn heim­ilda­maður sagð­ist í gær hafa heyrt að til stæði að fækka vél­unum um sjö.

Hlutabréfaverð hríðfellur

Hluta­bréfa­verð í Icelandair hefur sam­hliða þessum tíð­indum hríð­fallið síð­ustu daga. Verðið á hlut var á bil­inu 8 til 9 krónur um miðjan febr­úar. Í gær var verðið komið niður í rétt rúmar fimm krónur en þegar þetta er skrifað er verðið 3,89 krónur á hlut. Verðið lækk­aði um 22% við opnun við­skipta í morgun.

Þess má geta að í júní í fyrra stóð hlut­ur­inn í um 11 krónum en í apríl 2016 var hann í 39 krónum á hlut.

Vart þarf að taka fram að Icelandair er ekki eina flug­fé­lagið sem er í miklum vand­ræðum vegna kór­óna­veirunnar. Flest flug­fé­lög glíma við mik­inn sam­drátt og eng­inn hefur enn gert sér grein fyrir hver áhrifin gætu orðið á önnur íslensk ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæki.

Bjarni Bene­dikts­son sagði í Bítinu á Bylgj­unni í morgun að ákvörðun Donald Trump, um að banna allt flug til lands­ins frá Schengen-svæð­inu í heilan mánuð, væri gríð­ar­legt reið­ar­slag fyrir Ísland.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina