Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Ef ég smitast þá smitast ég og þá tækla ég það“

„Ef ég smitast þá smitast ég og þá tækla ég það“
María Dungal

María Dungal líf­færa­þegi er ein margra Íslend­inga sem eru í auk­inni smit­hættu af COVID-19 kór­óna­veirunni vegna und­ir­liggj­andi sjúk­dóma. Dags­dag­lega þarf hún að passa upp á sig og forð­ast flensu og aðrar pestir, en núna er aukin hætta vegna kór­óna­veirunnar og kannski ekki síst vegna þess að fregnir ber­ast af því að Íslend­ingar sem koma erlendis frá reyna í ein­hverjum til­vikum að koma sér undan því að vera í sótt­kví.

„Maður áttar sig ekki alveg á þessu en það eru rosa­lega margir ónæm­is­bældir á land­inu, bæði þeir sem hafa þegið líf­færi, þeir sem eru í loka­með­ferð vegna krabba­meins, gigt­veikir og aðrir. Það er stór hópur sem er ónæm­is­bældur,“ segir María sem situr í stjórn Nýrna­fé­lags­ins.

„Ég er búin að fá upp­lýs­ingar hjá Land­spít­al­anum og í raun er ekki vitað hvernig kór­óna­veiran hegðar sér og hvort að ónæm­is­bældir muni veikj­ast verr af henni en aðrir, þar sem að hún er svo ný. Þannig að óvissu­þátt­ur­inn er mjög stór hjá okkur. Stærsti vand­inn er sá að það er ein­hver sjúk­dómur sem veldur því að þú ert ónæm­is­bældur, sá sjúk­dómur getur haft alls konar hlið­ar­afleið­ingar. Eins og ég sem var með nýrna­bilun, en ég er hins vegar mjög heppin að það er ekk­ert að mér lík­am­lega fyrir utan að ég fékk nýtt nýra. En nýrna­bilun getur oft leitt til of hás blóð­þrýst­ings, hjarta- og æða­vanda­mála og svo eru syk­ur­sjúkir mjög oft með nýrna­bilun. Það eru þessir und­ir­liggj­andi sjúk­dómar sem geta gert það að verkum að þeir sem eru með ónæm­is­bæl­ingu geta dáið ef þeir fá kór­óna­veiruna.“

„Það er glatað ef ein­hver sem er með und­ir­liggj­andi sjúk­dóm eða ofnæm­is­bæl­ingu fær veiruna út af svona fram­komu“

Hætt að mæta á fjölfarna staði

María sem er í dag 47 ára, greind­ist í jan­úar árið 2016 með nýrna­bilun. „Þegar þú ert með nýrna­bilun þá er það eina sem ger­ist að nýrna­starf­semin versnar, þú veist að enda­punkt­ur­inn er að þú þarft að fara í blóð­skilun til að halda þér á lífi og þú þarft að fá nýra á end­anum.“

María fékk loks nýra í sept­em­ber árið 2019 og segir hún það lyk­il­at­riði að hugsa vel um sig, og með­al­líff­tími nýra líkt og ann­arra gjafa­líf­færa er mis­langur. „Hann er 12-15 ár og það eru ein­stak­lingar sem hafna nýra eftir eitt ár og aðrir sem eru með það í 40 ár. Þannig að það er á mína eigin ábyrgð að fara eins vel með lík­ama minn og ég mögu­lega get,“ segir María, sem er á lyfjum sem bæla ofnæm­is­kerfið í henni og tekur hún lyfja­kok­teil á hverjum degi til að tryggja að lík­am­inn vilji halda nýr­anu.

„Ég hef verið í einka­þjálfun hjá Birni Þóri Sig­ur­björns­syni frá því áður en ég fékk nýrað, ég veit samt ekki alveg hvernig mér tókst að kom­ast þangað í byrjun. Hann hefur verið alveg ómet­an­legur, hefur kynnt sér allt um nýrna­bilun og ígræðslu til að hjálpa mér sem best og veita mér ráð­gjöf í takt við það.“

Vegna grein­ingar COVID-19 veirunnar hér á landi sér María sig hins vegar nauð­beygða til að hætta að mæta í lík­ams­rækt­ar­stöð­ina. „Eins og staðan er núna þá er verið að grípa öll til­felli á Kefla­vík­ur­flug­velli en nú fer að stytt­ast í að veiran fari að smit­ast á meðal almenn­ings. Staðir þar sem margir koma saman verður alltaf sýk­ing­ar­bæli. Þannig að núna neyð­ist ég til að hætta að mæta í nokkrar vikur og er alveg miður mín yfir því. Ég er bara að æfa heima,“ segir María. „Ég ætla ekki að stíga inn í lík­ams­rækt­ar­stöð fyrr en ástandið hefur gengið yfir. Ég ætla ekki í bíó, sund, leik­hús eða aðra á fjöl­menna staði, það er bara algjör óþarfi. Ef ég fæ vírus­inn þá gæti ég orðið miklu veik­ari en aðrir, það gæti haft alvar­legar afleið­ingar og við þurfum að passa okkur sér­stak­lega vel.“

Vinnustaðurinn búinn að gera áætlun vegna COVID-19

María mætir til vinnu og segir að á vinnu­stað hennar sé búið að gera aðgerð­ar­á­ætlun og allir sam­starfs­menn hennar séu mjög með­vit­aðir um stöð­una. „Ég er alltaf með spritt­brúsa á mér sjálf, en hér eru spritt­brúsar á öllum borðum og leið­bein­ingar hanga uppi um hvernig eigi að standa að hand­þvotti. Ég tek stöð­una bara frá degi til dags, ef það fer að bera mikið á smitum meðal almenn­ings, þá getur komið að því að ég fari að vinna heiman frá mér. Ég er með ótrú­lega góða vinnu­veit­endur sem eru með­vit­aðir um stöðu mína og einnig að hér eru aðrir starfs­menn með und­ir­liggj­andi sjúk­dóma. Það er búið að gera áætlun hvernig hægt verði að bregð­ast við og hverjir þurfa að hafa teng­ingu að heiman og slíkt,“ segir María. „Ég er búin að vinna hér í fjögur ár og er í dag að heyra um sam­starfs­menn sem eru með und­ir­liggj­andi sjúk­dóma, sem ég hafði ekki hug­mynd um að væru með þá. Þessi hópur er bara miklu stærri sem er með ónæm­is­bæl­ingu eða und­ir­liggj­andi sjúk­dóma en við gerum okkur grein fyrir. Ég þarf alltaf að fara var­lega, nú fer ég bara enn var­legar. Ef ég smit­ast þá smit­ast ég og þá tækla ég það. Ég ætla ekki að eyða tím­anum fram að því í að hafa áhyggjur. Það kemur á óvart hvað maður er mikið á fjöl­mennum stöðum án þess að gera sér grein fyrir því.“

Hvað finnst þér að heyra um ein­stak­linga sem eru að koma sér undan því að fara í sótt­kví og jafn­vel að gorta sig af því á sam­fé­lags­miðlum?

„Mig langar svo að segja hvaða fávitar eru þetta, en svo stígur maður aðeins yfir það. Þetta er auð­vitað bara ofboðs­leg fáfræði og ofboðs­leg sjálf­hverfa. Þetta er bara ég um mig frá mér til mín í sinni hrein­ustu mynd og ég finn hrein­lega til með þeim ein­stak­lingum sem haga sér svona. Það er glatað ef ein­hver sem er með und­ir­liggj­andi sjúk­dóm eða ofnæm­is­bæl­ingu fær veiruna út af svona fram­komu. Það er bara skelfi­legt,“ segir María. „Fyrst var stemn­ingin þannig í þjóð­fé­lag­inu að þetta væri bara tauga­veiklun og þetta skipti engu máli. Núna held ég að fólk sé farið að gera sér grein fyrir alvar­leik­anum, en samt hegðar fólk sér svona. Ef þú hagar þér svona þá ertu bara lægst í virð­ing­ar­stig­anum hvað mig varðar.

Við verðum að vera skyn­söm og sam­fé­lags­lega ábyrg án þess að panika.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina