Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Borgarbyggð verði barnvænt sveitarfélag

Borgarbyggð verði barnvænt sveitarfélag
Ásmundur Einar Daðason

Mikil eft­ir­vænt­ing ríkti í Borg­ar­byggð í gær þegar Ásmundur Einar Daðason félags- og barna­mála­ráð­herra, Berg­steinn Jónsson, fram­kvæmda­stjóri UNICEF á Íslandi, og Magnús Smári Snorra­son for­maður fræðslu­ráðs Borg­ar­byggðar, und­ir­rit­uðu sam­starfs­samn­ing um verk­efnið Barnvæn sveit­ar­fé­lög. En með und­ir­skrift­inni bæt­ist Borg­ar­byggð í ört stækk­andi hóp sveit­ar­fé­laga sem hefja inn­leið­ingu Barna­sátt­mála Sam­ein­uðu þjóð­anna með stuðn­ingi félags­mála­ráðu­neyt­is­ins og UNICEF á Íslandi. Kemur þetta fram í til­kynn­ingu frá UNICEF.

„Það er ómet­an­legt að upp­lifa hversu mik­ill áhugi er meðal sveit­ar­fé­laga á Íslandi á að ganga til sam­starfs við okkur og inn­leiða þetta mik­il­væga verk­efni. Eft­ir­spurn eftir stuðn­ingi við inn­leið­ingu Barna­sátt­mál­ans hefur verið mikil og vil ég gera allt sem í mínu valdi stendur til að svara þeirri eft­ir­spurn. Barna­sátt­mál­inn er átta­vit­inn sem allt starf með og fyrir börn á að byggja á,“ segir Ásmundur Einar Daðason, félags- og barna­mála­ráð­herra. „Það er afar gleði­legt að sjá Borg­ar­byggð setja mál­efni barna og fjöl­skyldna í svo skýran for­gang.“

„Það gaman að segja frá því að það voru nem­endur og starfs­menn Klepp­járns­reykja­deildar Grunn­skóla Borg­ar­fjarðar sem lögðu fram erindi til sveit­ar­stjórnar fyrr á árinu, þar sem skorað var á Borg­ar­byggð að hefja form­legt inn­leið­ing­ar­ferli á samn­ingi Sam­ein­uðu þjóð­anna um rétt­indi barns­ins. Tók sveit­ar­stjórn vel í erindið og byggir þátt­taka Borg­ar­byggðar í verk­efn­inu þannig á frum­kvæði barna sem hér búa,“ segir Magnús Smári Snorra­son, for­maður fræðslu­ráðs Borg­ar­byggðar, að þessu til­efni.

Þátttaka Borg­ar­byggðar í Barn­vænum sveit­ar­fé­lögum er liður í að byggja upp breið­fylk­ingu sveit­ar­fé­laga á Íslandi sem láta sér mann­rétt­indi barna varða, með Barna­sátt­mál­ann að leið­ar­ljósi og auknu sam­starfi milli ríkis og sveit­ar­fé­laga. „Með und­ir­rit­un­inni í dag skuld­binda full­trúar Borg­ar­byggðar sig til þess að setja upp „barna­rétt­inda­gler­augun“ og vinna að því að for­sendur Barna­sátt­mál­ans gangi sem rauður þráður í gegnum alla þjón­ustu sveit­ar­fé­lags­ins. Við hjá UNICEF á Íslandi erum ákaf­lega stolt af því að Borg­ar­byggð bæt­ist í hóp metn­að­ar­fullra sveit­ar­fé­laga um allt land sem vinna með okkur að þessu verð­uga verk­efni,“ segir Berg­steinn Jónsson, fram­kvæmda­stjóri UNICEF á Íslandi.

Öll sveitarfélög verði Barnvæn sveitarfélög

Akureyri hóf vinnu við að verða Barnvænt sveit­ar­fé­lag árið 2016, fyrst sveit­ar­fé­laga á Íslandi. Í kjöl­farið fylgdu Kópa­vogur (2018) og Hafn­ar­fjörður (2019).  Áhugi á þátt­töku í verk­efn­inu hefur verið mik­ill og biðlistar mynd­ast, þar sem UNICEF hefur hingað til ekki getað annað eft­ir­spurn áhuga­samra sveit­ar­fé­laga. Þann 18. nóv­em­ber 2019, í til­efni að 30 ára afmæli Barna­sátt­mála Sam­ein­uðu þjóð­anna gengu félags- og barna­mála­ráð­herra og UNICEF á Íslandi til sam­starfs við fram­kvæmd verk­efn­is­ins undir for­merkjum Barnvæns Íslands. Markmið sam­starfs­ins er að tryggja aðgengi allra sveit­ar­fé­laga að stuðn­ingi við inn­leið­ingu Barna­sátt­mála Sam­ein­uðu þjóð­anna á næstu tíu árum. Á næstu tveimur árum er stefnt að því að 18 ný sveit­ar­fé­lög bæt­ist í hóp­inn. Félags­mála­ráðu­neytið og UNICEF á Íslandi sendu öllum sveit­ar­fé­lögum lands­ins fyrir stuttu form­legt erindi með boði um þátt­töku og hafa við­tökur verið vonum framar.

Þau sveit­ar­fé­lög sem taka þátt munu fá aðgang að mæla­borði um vel­ferð barna, en það hefur að geyma safn mæl­inga úr rann­sóknum á vel­ferð og stöðu barna og ung­menna innan sveit­ar­fé­lags­ins, mæl­ing­arnar eru 80 tals­ins. Mæla­borðið var þróað af Kópa­vogsbæ í sam­starfi við Félags­mála­ráðu­neytið og UNICEF á Íslandi,  en það hlaut nýlega alþjóð­lega við­ur­kenn­ingu UNICEF (Child Friendly Cities Ini­ti­ative Inspire Awards) fyrir fram­úr­skar­andi lausn og nýsköpun í nærum­hverfi barna. Verð­launin voru veitt á ráð­stefnu í Köln sem haldin var haustið 2019. Á næsta ári er stefnt að því að öll sveit­ar­fé­lög  geti nýtt sér mæla­borðið.

Barnvæn sveitarfélög vinna markvisst að því að uppfylla réttindi barna

Hug­mynda­fræði Barn­vænna sveit­ar­fé­laga byggir á alþjóð­legu verk­efni UNICEF, Child Friendly Cities, en það hefur verið inn­leitt í hund­ruðum sveit­ar­fé­laga um allan heim. Barnvæn sveit­ar­fé­lög vinna mark­visst að því að upp­fylla rétt­indi barna og UNICEF á Íslandi styður sveit­ar­fé­lögin í inn­leið­ingu sinni á Barna­sátt­mál­anum.

Nánari upp­lýs­ingar um Barnvæn sveit­ar­fé­lög eru aðgengi­legar á vef­síð­unni www.barnvaensveitarfelog.is og geta áhuga­samir ein­stak­lingar, kjörnir full­trúar og starfs­fólk sveit­ar­fé­laga nálg­ast þar allar nauð­syn­legar upp­lýs­ingar um inn­leið­ingu Barna­sátt­mál­ans. Sveit­ar­fé­lög sem hafa áhuga á að hefja mark­visst ferli við inn­leið­ingu sátt­mál­ans geta einnig skráð sig til þátt­töku á vef­síð­unni.

Auglýst eftir umsóknum áhugasamra sveitarfélaga

Opnað hefur verið fyrir umsóknir og eru áhuga­söm sveit­ar­fé­lög um allt land hvött til að kynna sér verk­efnið og skrá sig til leiks. Verk­efn­is­stjóri Barnvæns Íslands, Hjördís Eva Þórð­ar­dóttir ([email protected]) veitir gjarnan allar nauð­syn­legar upp­lýs­ingar um verk­efnið en einnig bendum við á heima­síðu verk­efn­is­ins (www.barnvaensveitarfelog.is).

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina