Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Samskiptaörðugleikar og óraunhæfar kröfur

Samskiptaörðugleikar og óraunhæfar kröfur
||||||

Fjöl­skyldan er lif­andi fyr­ir­bæri. Hún vex þegar nýir ein­stak­lingar koma til sög­unnar og dregst saman þegar ást­vinir hverfa á braut. Í raun er rétt­ast að tala um fjöl­skyldur, frekar en fjöl­skyldu, þar sem sam­setn­ing þeirra er fjöl­breytt­ari en nokkru sinni fyrr. Allar eiga þær það þó sam­eig­in­legt að ganga í gegnum erf­iða tíma og krefj­andi áskor­anir.

Verst þegar fólk kemur of seint

„Það er mjög algengt að annar aðil­inn sé búinn að tala um það lengi að aðstoðar sé þörf en að mak­inn átti sig ekki á alvar­leika máls­ins. Það er ekki fyrr en það kemur í ráð­gjöf að fólk upp­götvar hversu alvar­legt ástandið er,“ segir Ragn­heiður Kristín Björns­dóttir, hjúkr­unar- og fjöl­skyldu­fræð­ingur, sem sér­hæfir sig í para­sam­böndum. Hún segir vanda fólks oft­ast byggja á sam­skipta- og virð­ing­ar­leysi en hrað­inn í þjóð­fé­lag­inu geri það að verkum að fólk gefi sér ekki tíma til að rækta sam­bandið við mak­ann. „Það heldur að mak­inn verði alltaf þarna og fer að for­gangs­raða rangt,“ segir hún. Fólk sé upp­tekið við að koma sér þaki yfir höf­uðið og ala upp börnin en þegar hægir á liggi sú spurn­ing í loft­inu hvort fólk eigi eitt­hvað sam­eig­in­legt lengur. Þá sé fólk oft löngu búið að tapa nánd­inni í sam­band­inu.

„Mér finnst við bæði vera að fá unga fólkið sem er undir mik­illi pressu og svo fólk á miðjum aldri, segir Ragn­heiður. Til að byrja með svífi unga fólkið um á bleiku skýi ást­ar­innar, svo komi skuld­bind­ing­arnar; þak yfir höf­uðið og börn, og allt í einu sé fólk farið að spyrja sig að því hvort það hafi farið of hratt í sam­bandið. Margt geti spilað þar inn í, t.d. ein­hver per­sónu­ein­kenni eða hegðun hjá mak­anum sem við­kom­andi kann ekki við.

Verst sé þó þegar fólk er að koma allt of seint. „Makinn hefur kannski átt við ein­hverja erf­ið­leika að stríða og upp­lifir að hann hafi ekki fengið stuðn­ing á sínum erf­ið­asta tíma í líf­inu. Það kann að vera sökum vinnu hins aðil­ans … og það deyr bara eitt­hvað. Þegar allt er yfir­staðið rankar mak­inn við sér og upp­götvar að hann vill ekki missa við­kom­andi en þá er það stundum orðið of seint af því að þú varst ekki til staðar þegar þörf var á.“ Ragn­heiður segir hæg­lega hægt að vinna skaða á sam­band­inu sem erfitt er að laga en það sé oft ekki fyrr en þriðji aðili er kom­inn í málið að fólk fari að hlusta.

„Ég segi oft við foreldra: Þorið að vera foreldrar“

Ragn­heiður segir sam­skipta­vanda­mál eina stærstu ástæðu þess að fólk leitar sér aðstoðar en hann geti verið milli ólíkra ein­stak­linga; innan fjöl­skyld­unnar, við tengda­fjöl­skyld­una og svona mætti áfram telja. Stundum séu málin komin í því­líkt óefni að fólk sé hætt að mæta í fjöl­skyldu­boð. Þá segir hún stjúp­fjöl­skyld­una mikla áskorun en það hafi m.a. auk­ist að for­eldrar séu að láta afstöðu barna á ung­lings­aldri hafa áhrif á hegðun sína eftir skilnað.

„Mér finnst orðið meira um að eldri börn séu að skipta sér af; pabbi og mamma megi ekki hitt og þetta. Þau eru búin að vera ein og nýi mak­inn kannski ekki við­ur­kenndur og allt reynt til að stía þeim í sundur. Mér finnst [ung­ling­arnir] hafa orðið allt of mikil áhrif; fólk setur ekki sjálft sig í for­gang heldur leyfir þeim að ráða. Og það leyfir stjúp­for­eldr­inu kannski ekki að taka þátt í upp­eld­inu,“ segir Ragn­heiður. Hún segir afar mik­il­vægt að fólk sé sam­stiga og mik­il­vægt að leyfa mak­anum að vera þátt­tak­andi í upp­eld­inu.

En hvað veldur?

„Þetta er oft sam­visku­bit yfir skiln­að­inum … sam­visku­bit og með­virkni. Ég segi oft við for­eldra: Þorið að vera for­eldrar. Það er það besta sem við gerum fyrir börnin okkar; að veita þeim ramma en á kær­leiks­ríkan hátt.“ Ragn­heiður seg­ist verða tölu­vert vör við það að börn séu ekki látin axla neina ábyrgð. „Ég held að kyn­slóðin núna ætli að vera ofboðs­lega góð við börnin sín og gerir jafn­vel of mikið, sem letur börnin til sjálf­stæðis. Við ætlum að vera svo góð en það snýst upp í and­hverfu sína. Við þurfum að vera til staðar en við þurfum líka að leyfa þeim að standa á eigin fótum.“ Hún segir hjón stundum ósam­mála um hvernig nálg­ast beri upp­eldið að þessu leyti, ekki síst í stjúp­sam­böndum.

„Að elska er ákvörðun og maður þarf að vinna í því að halda ást­inni við.“

Ragn­heiður segir nokkuð um að fólk leiti aðstoðar vegna hegð­un­ar­vanda­mála barna. Oftar en ekki megi rekja hegð­un­ina til van­líð­unar og erfitt sé fyrir for­eldra að horfa upp á börnin sín en geta ekki hjálpað.

„Streita getur verið af hinu góða en hún getur líka verið hættuleg heilsunni“

Spurð að því hvort hún verði vör við nýjan hugs­un­ar­hátt þegar kemur að para­sam­band­inu; hvort fólk sjái fyrir sér að eiga í mörgum lang­tíma­sam­böndum yfir ævina, svarar Ragn­heiður neit­andi. Fólk á miðjum aldri velti fyrir sér fram­hald­inu, það geri kröfur um ham­ingju og vellíðan, en yfir­leitt sé mark­miðið að bjarga sam­band­inu sem það sé í. Hún segir margan vand­ann mega rekja til hrað­ans og álags­ins í nútíma­sam­fé­lagi. Kulnun sé ekki eitt­hvað sem sé bundið við vinnu­stað­inn, heldur eigi erf­ið­leikar heima við og í einka­líf­inu einnig sinn þátt í að fólk brenni út.

„Þegar þetta leggst saman þá er voð­inn vís,“ segir Ragn­heiður. „Streita getur verið af hinu góða en hún getur líka verið hættu­leg heils­unni og það getur tekið tvö til þrjú ár að vinna sig út úr kulnun. Ónæm­is­kerfið hrynur og það er ekk­ert grín. Fólk þarf að hafa vit fyrir sjálfu sér.“

En hvernig geta með­ferð­ar­að­ilar hjálpað?

Hvað varðar para­sam­bandið segir Ragn­heiður allar björg­un­ar­að­gerðir fyrst og fremst snú­ast um vilja pars­ins. „Ég bið fólk að skoða hug sinn og til hvers það er komið og hvað það vill fá aðstoð við. Fólk þarf að vera í þessu af heilum hug. Ég kem ekki með töfra­sprota en ég get leið­beint fólki gegnum dimman dal. Vinnan liggur hjá því sjálfu. Að elska er ákvörðun og maður þarf að vinna í því að halda ást­inni við. Maður þarf að vanda sig og hlúa að sam­band­inu; þetta er vinna alla tíð, því neist­inn getur slokknað og hann gerir það. Og stundum veit fólk ekki hvernig það á að kveikja hann aftur en það er hægt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina