Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ungt fólk öflugustu málsvararnir fyrir umferðaröryggi

Ungt fólk öflugustu málsvararnir fyrir umferðaröryggi
Fjögur íslensk ung­menni taka þátt í ráð­stefnu YOURS. Frá vinstri: Kolbrún Guðný Þor­steins­dóttir

Sigurður Ingi Jóhanns­son, sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra, ávarp­aði síð­degis í gær ráð­stefnu YOURS, sam­taka ung­menna sem berj­ast fyrir umferð­ar­ör­yggi, sem haldin er í Stokk­hólmi. Ráðherra tók einnig þátt í vinnu­stofu þar sem ung­menni og fólk í áhrifa­stöðum ræddu um leiðir til að efla umferð­ar­ör­yggi. Vinnu­stofan sem Sigurður Ingi tók þátt er und­an­fari og hluti 3. heims­þings um umferð­ar­ör­yggi sem haldið er í Stokk­hólmi næstu daga.

Kemur þetta fram í til­kynn­ingu á vef Stjórn­ar­ráðs­ins.

Fjögur íslensk ung­menni sitja ráð­stefn­una en yfir­skrift hennar útleggst á íslensku „Hingað og ekki lengra“ (e. Enough is enough). Yfir­skriftin vísar til þeirrar kröfu ung­menna um allan heim að stjórn­völd og sam­fé­lag taki höndum saman um að fækka alvar­legum slysum og dauða­slysum í umferð­inni.

Á ráð­stefn­unni hafa um 200 ung­menni frá 75 löndum hvaðanæva úr heim­inum sagt frá reynslu sinni og bar­áttu­málum. Staðan væri mjög ólík eftir heims­hlutum en á heims­vísu lát­ast 500 börn á dag í umferð­ar­slysum. Þátt­tak­endur voru sam­mála um mik­il­vægi þess að ung­menni væru þátt­tak­endur í stefnu­mótun og ákvarð­ana­töku í umferð­ar­ör­ygg­is­málum og  að ungt fólk yrði að vera þar í for­ystu.

Sigurður Ingi Jóhanns­son, sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra, á vinnu­stofu ráð­stefn­unnar þar sem ung­menni og stjórn­mála­fólk ræddi umferð­ar­ör­yggi.

Ungt fólk öflugustu málsvararnir

Sigurður Ingi hrós­aði ungu fólki og þátt­tak­endum ráð­stefn­unnar fyrir að taka frum­kvæði í bar­átt­unni fyrir bættu umferð­ar­ör­yggi. Breyta þurfi hug­ar­fari og umferð­ar­menn­ingu um heim allan og þar muni ungt fólk verða öfl­ug­ustu málsvar­arnir. Ráðherra sagði stefnu íslenskra stjórn­valda mjög skýra. Öryggi væri leið­ar­ljós í sam­göngu­á­ætlun lands­ins og liggi til grund­vallar í allri stefnu­mótun, aðgerða­á­ætlun og fram­kvæmdum til að tryggja öryggi allra veg­far­enda í umferð­inni.

Ráðherra sagði frá góðri reynslu stjórn­valda að auka sam­ráð og sam­starf við ungt fólk við stefnu­mótun. Full­trúar ung­menna hafi verið á sam­göngu­þingi unga fólks­ins og nú væri í fyrsta sinn unnið með börnum og ung­mennum við mótun nýrrar sam­göngu­á­ætl­unar. Einnig hafi ráð­stefna sem haldin var í haust um börn og sam­göngur með þátt­töku ung­menna haft mikla þýð­ingu, sem ráðu­neytið stóð að í sam­vinnu við Sam­göngu­stofu, Vega­gerð­ina og Samband íslenskra sveit­ar­fé­laga.

Frá ráð­stefnu YOURS, sam­taka ung­menna sem berj­ast fyrir umferð­ar­ör­yggi í Stokk­hólmi.

Fjögur íslensk ungmenni á ráðstefnunni

Lands­björg hefur átt í nánu sam­starfi við YOURS og á þeirra vegum fóru tveir full­trúar ungu kyn­slóð­ar­innar; Atli Þór Jónsson (15 ára) og Fannar Freyr Atlason (15 ára) sem báðir eru virkir í ung­liða­starfi Lands­bjargar og félagar í ung­linga­deild­inni Árnýju í Reykja­vík. Með þeim er einn starfs­maður Lands­bjargar. Sam­göngu­stofa sendi sömu­leiðis tvö ung­menni á ráð­stefn­una, Emblu Líf Halls­dóttur (19 ára), björg­un­ar­sveit­ar­konu sem einnig situr í ung­menna­ráði Mos­fells­bæjar og Karín Ólu Eiríks­dóttur (19 ára), sem situr í ung­menna­ráði Grinda­víkur en hún stóð að umferð­ar­ör­ygg­is­ráð­stefn­unni STOPP í Grinda­vík í fyrra. Með þeim fór starfs­maður úr fræðslu­deild Sam­göngu­stofu sem sér um fræðslu og for­varnir umferð­ar­ör­ygg­is­mál.

Um YOURS

YOURS eru frjáls félaga­sam­tök sem starfa á heims­vísu og sinna umferð­ar­ör­yggi. YOURS var stofnað árið 2009 í fram­haldi af fyrstu ráð­stefn­unni fyrir ungt fólk um umferð­ar­ör­yggis (e. First World Youth Assembly for Road Safety) sem haldin var árið 2007 undir merkjum Alþjóða Heil­brigð­is­stofn­un­ar­innar og fleiri aðila. YOURS er rödd ungs fólks og félagi í United Nations Road Safety Collaboration (UNRSC). Markmið YOURS er að finna leiðir til að virkja ungt fólk til verka í umferð­ar­ör­ygg­is­málum. YOURS kemur með vinnu­smiðjur í hvert land fyrir sig og skilur eftir hug­mynda­banka og verk­færakistu sem unga fólkið vinnur með áfram sem miðar að því að gera sam­fé­lagið örugg­ara fyrir þau sjálf og alla aðra sem að mál­inu koma. Í fram­hald­inu fylgir YOURS vinn­unni eftir og styður við það unga fólk sem hefur tekið við kefl­inu í sínu landi.

Vefur ráð­stefn­unnar

Vefur YOURS – Youth for Road Safety

Heims­þing um umferð­ar­ör­yggi í Stokk­hólmi

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina