Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Frjáls félagasamtök fá styrki upp á 140 milljónir króna

Frjáls félagasamtök fá styrki upp á 140 milljónir króna
Ásmundur Einar við afhend­ingu styrkj­anna.

Ásmundur Einar Daðason, félags- og barna­mála­ráð­herra, veitti í dag styrki af safn­liðum fjár­laga til 33 félaga­sam­taka og nam heild­ar­fjár­hæð styrkja alls tæp­lega 140 millj­ónum króna. Styrkjum af safn­liðum fjár­laga hefur verið úthlutað árlega um langt skeið en þeir eru veittir til félaga­sam­taka sem vinna að verk­efnum á sviði félags- og vel­ferð­ar­mála.

Í ár var lögð sér­stök áhersla á verk­efni sem lúta að mál­efnum barna og fjöl­skyldna. Meðal þeirra eru verk­efni á vegum Barna­heilla, Rauða kross­ins á Íslandi, KFUM og KFUK og styrkt­ar­fé­lags lamaðra og fatl­aðra. Einnig voru veittir styrkir til verk­efna sem heyra undir önnur mál­efna­svið félags- og barna­mála­ráð­herra sem lúta m.a. að mál­efnum fatl­aðs fólks, fátækt, geð­heilsu, félags­legri virkni og ofbeldi.

Dreka­slóð, Geðhjálp, Lands­sam­tökin Þroska­hjálp og Vímulaus æska-for­eldra­hús fá hæstu styrk­ina í ár.

Í ávarpi sínu við úthlutun styrkj­anna á Nauthóli í dag tal­aði ráð­herra um það verð­mæta starf sem frjáls félaga­sam­tök sinna á degi hverjum í þágu sam­fé­lags­ins, einkum þau sem vinna að að því að gæta hags­muna þeirra sem standa höllum fæti í sam­fé­lag­inu. Þá sagði ráð­herra mik­il­vægt að til staðar sé sjóður til þess að sækja í, bæði til þess að geta við­haldið góðum verk­efnum en ekki síst til þess að geta þróað ný verk­efni. „Styrkirnir fela í sér mikil tæki­færi fyrir frjáls félaga­sam­tök. Frjáls félaga­sam­tök eru afar mik­il­væg sam­fé­lagi okkar og þróa oft nýjar og góðar hug­myndir eða útfærslur á eldri hug­myndum sem við til­einkum okkur öll í kjöl­farið. Frjáls félaga­sam­tök gegna oft burð­ar­hlut­verki í ýmsum mála­flokkum sem varða heilsu og vel­ferð fjöl­skyldna á Íslandi og nauð­syn­legt er að við­ur­kenna það góða starf sem þar fer fram og veita því braut­ar­gengi“ sagði Ásmundur Einar.

Við úthlut­anir styrkj­anna síð­ustu ár er orðin hefð fyrir því að fá valda styrk­þega til þess að kynna verk­efnin sem þau hljóta styrk fyrir. Að þessu sinni voru kynnt tvö verk­efni sem hafa verið í gangi um ára­bil og reynst vel þeim sem á hafa þurft að halda. Annars vegar er um ræða sum­ar­búðir KFUM og KFUK fyrir börn með sér­þarfir og hins­vegar Systk­ina­smiðj­una, sem býður upp á sér­stök nám­skeið fyrir systk­ini barna með sér­þarfir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina