Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Aðfluttir á Spáni uggandi vegna verkjalyfs

Aðfluttir á Spáni uggandi vegna verkjalyfs
Mariah Carey er með samn­ing við Caesars Palace í Las Vegas og mun koma fram á átta tón­leikum í febr­úar 2020. Mynd / EPA

Nolotil er vin­sælt verkja­lyf á Spáni, sem er ávísað á heilsu­gæslu­stöðvum og sjúkra­húsum og jafn­vel hægt að nálg­ast án lyf­seð­ils. Vís­bend­ingar eru um að áhættan á alvar­legum auka­verk­unum sé mis­mikil milli ein­stak­linga, mögu­lega vegna erfða, og hefur ferða­mönnum verið ráðið frá því að nota lyfið.

Nokkur umræða er meðal Íslend­inga á Spáni um lyfið Nolotil, m.a. á Facebook. Nolotil virð­ist í ein­hverjum til­vikum mega nálg­ast án lyf­seð­ils á Spáni en þá er því einnig ávísað, bæði á heilsu­gæslum og sjúkra­húsum, við verkjum og hita. Umræðan snýr að öryggi lyfs­ins en það getur m.a. valdið kyrn­inga­þurrð (e. agranulocytosis); fækkun og skorti á hvítum blóð­kornum, og leitt til blóð­eitr­unar og jafn­vel dauða. Virka efnið í lyf­inu er metamizole og hafa mörg ríki tak­markað eða bannað notkun þess vegna þess hve auka­verk­an­irnar geta verið alvar­legar.

The Times greindi frá því í ágúst 2018 að a.m.k. tíu Bretar hefðu lát­ist eftir notkun Nolotil, sem er eitt vin­sælasta verkja­lyfið á Spáni. Fjöldi Breta býr þar í landi og sam­kvæmt Times höfðu fleiri en 100 Bretar og Írar upp­lifað alvar­legar auka­verk­anir vegna notk­unar lyfs­ins. Í umfjöllun blaðs­ins er m.a. sagt frá Graeme Ward, 75 ára, sem missti eig­in­konu sína Mary í mars árið 2006, eftir að hún greind­ist með kyrn­inga­þurrð og aðra fylgi­kvilla í kjöl­far notk­unar á Nolotil. Lyfinu fékk hún ávísað á einka­stofu í Alicante. Þá segir einnig frá William Smyth, 66 ára Íra, sem lést af völdum blóð­eitr­unar og líf­færa­bil­unar eftir að hafa verið ávísað Nolotil vegna axl­ar­verkja.

Metamizole ekki verið í sölu á Íslandi

Cristina Garcia del Campo, lög­giltur skjala­þýð­andi í Alicante, hóf að rann­saka málið eftir að hún komst að því að fjöldi Breta og Íra á Costa del Sol og Costa Blanca höfðu þjáðst af blóð­eitrun. Þeir áttu eitt sam­eig­in­legt: að hafa notað Nolotil. „Hjá sumum höfðu útlimir verið fjar­lægðir og þeir lifað. Aðrir dóu. Breskt fólk á ekki að taka þetta lyf. Sumir þola það en áhættan er of mikil,“ sagði hún í sam­tali við Times.

Lyfja­yf­ir­völd á Spáni hafa bannað ávísun Nolotil til ferða­manna og hafið rann­sókn á því hvort ein­stak­lingar frá norð­ur­hluta Evrópu séu við­kvæm­ari fyrir lyf­inu en þeir sem búa sunnar. Rann­sóknir á metamizole hafa skilað ólíkum nið­ur­stöðum hvað varðar áhætt­una á kyrn­inga­þurrð; á milli einn af milljón og einn af 1.439. Samkvæmt rann­sókn frá 2013 má rekja þennan mun til þess hvar í heim­inum rann­sókn­irnar voru fram­kvæmdar og þá kann að vera að erfðir eigi hlut að máli.

Mannlíf leit­aði upp­lýs­inga um Nolotil og metamizole hjá Land­lækn­is­emb­ætt­inu og Lyfja­stofnun. Samkvæmt svörum frá land­lækn­is­emb­ætt­inu hafa engar ábend­ingar verið skráðar varð­andi metamizole og sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá Lyfja­stofnun eru engin lyf á mark­aði hér­lendis sem inni­halda metamizole. „Við skoð­uðum auk þess sölu und­an­þágu­lyfja aftur til árs­ins 2011 og við sjáum ekki að lyf með þessu virka efni hafi verið notuð hér á landi,“ segir í svar­inu frá stof­un­inni. Þar sagði sömu­leiðis að stofn­unin hefði ekki tekið afstöðu til metamizole, t.d. hvað varðar öryggi, og þá væri eng­inn þar inn­an­húss sem þekkti til þess.

Læknar án landamæra mæla gegn notkun metamizole

Á Spáni er Nolotil mark­aðs­sett sem val­kostur við íbú­p­rófen og para­seta­mól og gjarnan notað við verkjum og hita. Það fæst enn afgreitt án lyf­seð­ils þrátt fyrir að það hafi verið bannað. Að sögn Garcia er vanda­málið m.a. að spænskir heil­brigð­is­starfs­menn telja lyfið enn öruggt, þrátt fyrir vís­bend­ingar um annað. Í júlí 2019 sagð­ist hún hafa safnað upp­lýs­ingum um 200 Breta og Íra sem hefðu orðið fyrir alvar­legum auka­verk­unum í tengslum við notkun Nolotil og þar af væru 20 dauðs­föll.

Í bar­áttu sinni gegn almennri notkun lyfs­ins hefur Garcia notið stuðn­ings mið­ils­ins The Olive Press, sem er á ensku og ætl­aður aðfluttum íbúum Spánar. Mál­flutn­ingur þeirra fær m.a. vigt frá sam­tök­unum Læknum án landamæra og sam­an­tekt Sam­ein­uðu þjóð­anna yfir lyf sem eru ýmist bönnuð, ósam­þykkt eða sæta tak­mörk­unum í ein­hverjum ríkja heims.

Á heima­síðu Lækna án landamæra segir m.a. að metamizole eigi aðeins að ávísa sjúk­lingum sem eru undir eft­ir­liti og að þar sem auka­verk­anir séu alvar­legar og aðrir örugg­ari val­kostir séu til, eigi aðeins að ávísa lyf­inu þegar önnur úrræði eru full­reynd. Samtökin segja einnig að nota eigi lyfið í eins skamman tíma og mögu­legt er en það geti valdið kyrn­inga­þurrð, sem getur leitt til dauða, án til­lits til skammta­stærðar. Þá er ítrekað að lyfið sé ekki á lista Alþjóða­heil­brigð­is­mála­stofn­un­ar­innar yfir nauð­syn­leg lyf.

Nolotil er fram­leitt af Boehrin­ger Ing­el­heim, einum stærsta lyfja­fram­leið­anda í heimi og þeim stærsta í einka­eigu. Tals­maður fyr­ir­tæk­is­ins sagði í sam­skiptum við Times að metamizole væri fáan­legt undir ýmsum lyfja­heitum í Evrópu. Það ætti ekki að selja án ávís­unar. Ekkert benti til þess að ákveðnir hópar væru lík­legri en aðrir til að upp­lifa auka­verk­anir.

Fjallað er um málið í helg­ar­blað­inu Mannlíf.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina