Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Einn og einn sem ruglar inflúensu við kórónaveirusýkingu

Einn og einn sem ruglar inflúensu við kórónaveirusýkingu

Faraldur kór­óna­veiru (2019-nCoV) breið­ist hratt út en enn sem komið er hafa lang­flest til­fellin greinst í Kína. Eng­inn ein­stak­ling­ur hef­ur enn sem komið er greinst smit­aður af kór­óna­veirunni  2019-nCoV á Íslandi en for­stjóri heilsu­gæsl­unn­ar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu segir einn og einn rugla flensu við kór­óna­veiru­sýk­ingu.

Á vef Embættis Land­læknis er gerð til­raun til að svara þeim spurn­ingum sem kunna að vakna um þessa nýju kór­óna­veiru, m.a. spurn­ing­unni um hvort hægt sé að rugl­ast á kór­óna­veiru­sýk­ingu og inflú­ensu.

Í svari segir að ein­kenni kór­óna­veiru­sýk­ingu líkj­ast helst inflú­ensu­sýk­ingu í fyrstu þegar hósti, hiti, bein- og vöðva­verkir, þreyta gerir vart við sig.

Almanna­varnir ráð­leggja fólki að mæta ekki á bráða­mót­töku sjúkra­húsa eða á heilsu­gæslu­stöðvar ef grunur kviknar um kór­óna­veirusmit nema að fengnum ráð­legg­ingum í síma.

Eitt og eitt símtal

Aðspurður hvort margt fólk sé að hringja á heilsu­gæslur á höf­uð­borg­ar­svæð­inu vegna gruns um kór­óna­veirusmit þegar um flensu er að ræða segir Óskar Reyk­dals­son, for­stjóri heilsu­gæsl­unn­ar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, að eitt og eitt slíkt sím­tal sé að ber­ast.

„Það er mjög lítið um það. Þetta er ein og ein fyr­ir­spurn og ekk­ert áhyggju­efni. Það sem er ein­kenn­andi fyrir þessa veiki að það er eig­in­lega ekki hægt að fá hana nema að hafa verið að koma frá þessum héröðum í Kína þar sem flest til­fellin hafa verið að grein­ast,“ segir Óskar.

„Þetta er ein og ein fyr­ir­spurn og ekk­ert áhyggju­efni.“

Hann tekur fram að hefð­bundin inflú­ensa getur jafn­vel valdið sjúk­lingi meiri van­líðan fyrst um sinn heldur en kór­óna­veiru­sýk­ing. „Fólk verður yfir­leitt veik­ari af inflú­ensu fyrstu dag­ana heldur en af kór­óna­veirunni. Svo er talað um að fimmti hver ein­stak­lingur sem smit­ist af kór­óna­veiru finni fyrir alvar­legum ein­kennum eftir nokk­urra daga veik­indi og er það oft á 5. – 7. degi. Svo er mik­il­væg­ast af öllu að veiran smit­ast mest með snert­ismiti og hand­þvottur og spritt er þá mjög gagn­legt til for­varna.“

Mikilvægt að hringja fyrst

Óskar tekur fram að nokkur sýni hafa verið tekin af sjúk­lingum á Íslandi en þeir ekki reynst hafa verið veikir af kór­óna­veiru.

„Staðan er óbreytt og engin hefur greinst á Íslandi enn sem komið er. Allar heilsu­gæslu­stöðv­arnar eru til­búnar að taka við þessum sjúk­lingum eins og öllum öðrum en við viljum að fólk sem telur sig mögu­lega smitað af kór­óna­veiru hringi í sína heilsu­gæslu eða í síma 1700 í stað þessa að mæta á heilsu­gæslu­stöð­ina. Það er liður í að koma í veg fyrir mögu­lega útbreiðslu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina