Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Heilsugæslan stefnir að því að taka strax upp tvöfalda skimun

Heilsugæslan stefnir að því að taka strax upp tvöfalda skimun

„Ég hef skilið þetta þannig að verk­efnið sé þrí­þætt; eitt er að halda utan um gögnin, annað að sjá um að boða þá sem eiga að mæta og þriðja fram­kvæmdin,“ segir Óskar Sesar Reyk­dals­son, for­stjóri Heilsu­gæsl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, um leg­hálskrabba­meins­skimun­ina sem flyst yfir til heilsu­gæsl­unnar.

Hann segir fram­kvæmd­ina verða þá sömu að því leyti að það verða áfram ljós­mæður sem sjá um að taka strok en hins vegar sé í kort­unum að taka strax upp tví­þætta skimun; þ.e. hefð­bundna smá­sjárs­skoðun þar sem leitað er að frumu­breyt­ingum og mótefna­mæl­ingu fyrir HPV-veirunni.

Lang­flest leg­hálskrabba­mein má rekja til HPV-veirunnar, sem um 80% ein­stak­linga fá ein­hvern tím­ann á lífs­leið­inni og smit­ast við kyn­mök. Að sögn Óskars er næmi þeirrar skimunar sem nú er stunduð um 60% en mótefna­mæl­ing fyrir HPV er talin þó nokkuð nákvæm­ari, um 85%, og menn telja að kom­ast megi ansi nærri 100% með því að fram­kvæma báðar rann­sóknir. Um til­rauna­verk­efni verður að ræða en Óskar seg­ist efins um að til­hög­unin sé til fram­tíðar; víða sé stefnt að því að HPV-mæl­ing­arnar komi í stað hefð­bund­innar skimunar. Tækni og þekk­ingu hafi fleygt fram og þá muni bólu­setn­ingar gegn HPV eiga stóran þátt í því að til­fellum sjúk­dóms­ins fækki. „Þetta er sjúk­dómur sem okkur á að takast að útrýma,“ segir Óskar.

Óskar Sesar Reyk­dals­son for­stöðu­maður heilsu­gæsl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu
„Þetta er sjúk­dómur sem okkur á að takast að útrýma.“

Hann segir margt óljóst hvað varðar skipu­lag, t.d. hvort Skimun­ar­mið­stöð verði fund­inn staður innan heilsu­gæsl­unnar, eins og lagt hefur verið til. Þá hefur ekki verið ákveðið hvort skimunin verður í boði á öllum 19 starfs­stöðvum heilsu­gæsl­unnar eða hvort hún verður á færri höndum. „Það eru kostir og gallar við báða mögu­leika. Það er kostur að hafa allt á einum stað og hraða vinnslu. En við höfum einnig verið að hvetja fólk til að mæta á eigin heilsu­gæslu­stöð. Svo snýr þetta líka að gæðum; hvað þarftu að taka mörg sýni til að vera í góðri þjálfun til að taka góð sýni? Það er eitt af því sem gæti haft áhrif á það hvernig þetta verður,“ segir Óskar. Hann segir mögu­legt að boðið verði upp á þjón­ust­una ákveðna daga í viku en þetta sé eitt­hvað sem verði útfært í sam­ráði við starfs­fólk.

Hvað segja tölurnar?

Um þriðj­ungur Íslend­inga fær krabba­mein á lífs­leið­inni en helm­ingur allra meina grein­ist eftir 65 ára aldur. Yfir fjórð­ungur dán­ar­meina eru af völdum krabba­meina.

Á árunum 2014 til 2018 greindust árlega að með­al­tali 220 konur með brjóstakrabba­mein.

Á sama tíma greindust að með­al­tali 184 ein­stak­lingar með krabba­mein í ristli og/eða enda­þarmi á hverju ári.

Með­al­aldur kvenna við grein­ingu brjóstakrabba­meins var 63 ár.

Konum á aldr­inum 40 til 69 ára er boðin þátt­taka í hóp­leit að brjóstakrabba­meini á tveggja ára fresti en hóp­leit að leg­hálskrabba­meini stendur til boða konum á aldr­inum 23 til 65 ára á þriggja ára fresti.

Dregið hefur úr þátt­töku kvenna í skimun fyrir brjóstakrabba­meini síð­ustu ár. Hún var 79% árið 2013 en um 60% árin 2015 til 2018.

Þátttaka í skimun fyrir leg­hálskrabba­meini er um 67%.

Með átaki tókst hins vegar að fjölga þeim sem tóku þátt í skimun árið 2019. Í sept­em­ber það ár höfðu 29% fleiri farið í skimun fyrir brjóstakrabba­meini en á sama tíma­bili 2018 og 19% fleiri farið í skimun fyrir leg­hálskrabba­meini.

Krabba­meins­fé­lagið ákvað m.a. að bjóða tveimur árgöngum upp á ókeypis skimun árið 2019, sem skil­aði sér í því að komum 23 ára í leg­háls­skimun fjölg­aði um 92% frá fyrra ári og komum 40 ára í brjósta­skimun fjölg­aði um 90%.

Þrátt fyrir margra ára umræðu og und­ir­bún­ing af hálfu stjórn­valda hefur skimun fyrir krabba­meinum í ristli og enda­þarmi enn ekki haf­ist. Talið er að skimunin geti bjargað fjölda manns­lífa en meinin valda dauða eins Íslend­ings í viku hverri.

Konur bíða jafnan í um mánuð eftir fram­halds­skoðun í kjöl­far óeðli­legra nið­ur­staða úr brjóstakrabba­meins­skoðun. Alþjóð­leg við­mið kveða á um fimm daga bið að hámarki.

Löggjöf um skimanir?

Í áliti skimun­ar­ráðs segir m.a. mik­il­vægt að setja lög­gjöf um skimanir. „Það gefur verk­efn­inu skýr­ari far­veg ásamt því að veita verk­efn­inu nauð­syn­legan stöð­ug­leika. Jafn­framt tryggir það betur öryggi þátt­tak­enda, gæða­eft­ir­lit og fjár­mögnun.“

Þess ber að geta að eng­inn við­mæl­enda Mannlífs hafði heyrt af því að lög­gjöf væri í und­ir­bún­ingi.

„Við ítrekum einnig mik­il­vægi þess að starf­sem­inni fylgi fjár­magn, þekk­ing og mannauður, sér­stak­lega er mik­il­vægt að huga að þessu ef skimanir fara til stofn­ana sem þegar hafa önnur skil­greind verk­efni.“

Þá segir einnig:

„Við höfum í vinnu okkar sér­stak­lega íhugað aðkomu þriggja aðila að skimunum en þeir eru: Krabba­meins­skrá, Krabba­meins­fé­lag Íslands og Heilsu­gæslan. Við teljum mik­il­vægt að halda í þá þekk­ingu og reynslu sem hjá þessum aðilum býr. Við teljum rétt að allir hafi þær aðkomu að skimun í íslenskri heil­brigð­is­þjón­ustu. Mik­il­vægt er þó að skerpa betur hlut­verk þeirra og ábyrgð­ar­svið ásamt því að setja skýr­ari línur varð­andi sam­starf og upp­lýs­inga­miðlun.“

„[…] þá ítrekum við mik­il­vægi þess að í útfærslu verk­efn­is­ins verði ávallt gætt nauð­syn­legs sam­ráðs við þá aðila sem að máli koma. Tekist sé á við verk­efnið í lang­tíma­skipu­lagi og það unnið í þrepum. Við ítrekum einnig mik­il­vægi þess að starf­sem­inni fylgi fjár­magn, þekk­ing og mannauður, sér­stak­lega er mik­il­vægt að huga að þessu ef skimanir fara til stofn­ana sem þegar hafa önnur skil­greind verk­efni.“

Lestu umfjöll­un­ina í heild í nýjasta Mannlífi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina