Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Ógeðslega heimskuleg ráðstöfun á almannafé“

„Ógeðslega heimskuleg ráðstöfun á almannafé“
|Halldóra Mogensen|Mynd / Hákon Davíð Björns­son

„Ég myndi aldrei reka heim­ilið mitt svona,“ segir Helga Vala Helga­dóttir, for­maður vel­ferð­ar­nefndar Alþingis, um þann veru­leika að rán­dýr rými á bráða­mót­töku séu yfir­full á meðan önnur rými standi tóm vegna sparn­aðar. Hættu­á­stand er dag­legur veru­leiki á Land­spít­al­anum, segja læknar, og for­maður ÖBÍ segir fólk kvíðið vegna máls­ins.

Helga Vala Helga­dóttir

„Það kostar hið opin­bera 250 þús­und krónur að hýsa sjúk­ling í sól­ar­hring á bráða­mót­töku. Á öðrum „hefð­bundnum“ deildum kostar það 70 þús­und og 40 þús­und á hjúkr­un­ar­heim­il­unum. Þetta er galið reikn­ings­dæmi,“ segir Helga Vala Helga­dóttir, for­maður vel­ferð­ar­nefndar Alþingis. „Ég er eng­inn stærð­fræð­ingur en ég skil þetta. Þetta fer allt úr sama vas­anum og er ógeðs­lega heimsku­leg ráð­stöfun á almannafé. Ég myndi aldrei reka heim­ilið mitt svona.“

Neyð­ar­á­stand ríkir á bráða­mót­töku Land­spít­al­ans og stór­slys í aðsigi, að sögn Más Krist­jáns­sonar, yfir­læknis smit­sjúk­dóma­lækn­inga á spít­al­anum. Fjöldi inn­liggj­andi sjúk­linga hefur þre­fald­ast á tveimur árum og „undir þessum aðstæðum skap­ast ófag­legar aðstæður, heil­brigð­is­starfs­fólki verður á og sjúk­lingar gjalda fyrir það,“ sagði Már í sam­tali við Lækna­blaðið.

Félag sjúkra­hús­lækna og Félag almennra lækna boð­uðu til fundar á mið­viku­dag þar sem þau álykt­uðu m.a. að hættu­á­stand væri fyrir löngu dag­legur veru­leiki á deildum spít­al­ans. „Fjöldi bráð­veikra ein­stak­linga er jafn­vel dögum saman í óvið­un­andi aðstæðum á stofu með fjölda ann­arra og á göngum spít­al­ans. Ástand þetta er full­kom­lega óboð­legt frá öllum hliðum séð og hefur nei­kvæð áhrif á líðan og öryggi sjúk­linga, spillir mögu­leikum á eðli­legri fag­legri þjón­ustu starfs­fólks og truflar skil­virkni starf­sem­innar,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Heilbrigðisstarfsfólk á harðahlaupum

„Við þurfum að gera eitt­hvað núna,“ segir Helga Vala, sem hefur boðað til þriggja nefnd­ar­funda í næstu viku með full­trúum Land­spít­al­ans og ann­arra heil­brigð­is­stofn­ana, land­lækni og fleirum. Hún segir ástandið ekki ein­skorð­ast við spít­al­ann; þegar heil­brigð­is­stofn­an­irnar á lands­byggð­inni fái ekki nauð­syn­legt fjár­magn, dragi þær úr þjón­ustu, sem bitnar á end­anum á Land­spít­al­anum.

„Þetta er ekki bara það að þú ert að vinna dag­vakt, færð smá­pásu og ferð svo aftur á næt­ur­vakt, heldur þarftu líka að hlaupa hraðar.“

Í mörg ár hefur verið rætt um frá­flæð­is­vanda á spít­al­anum, þ.e. að sjúk­lingar liggi inni af því að það er ekki hægt að útskrifa þá annað. Helga Vala segir vand­ann þó ekki snú­ast um pláss; for­vitni­legt væri að vita hvað gerð­ist ef stjórn­völd til­kynntu að þau væru reiðu­búin til að koma til móts við hjúkr­un­ar­fræð­inga varð­andi vakta­á­lag. „Þetta er ekki bara það að þú ert að vinna dag­vakt, færð smá­pásu og ferð svo aftur á næt­ur­vakt, heldur þarftu líka að hlaupa hraðar. Við gerðum þessar kröfur til þess­ara stétta í kringum hrunið þegar við vorum að reyna að bjarga öllu en það hefur ekk­ert breyst,“ segir hún. Leysa mætti hluta vand­ans með því að veita fjár­magni í að greiða laun og opna rými sem hefur verið lokað vegna sparn­aðar.

Þuríður Harpa Sig­urð­ar­dóttir

Pólitíkin ekki samstiga þjóðinni

„Þetta veldur nátt­úr­lega kvíða hjá fólki og er ekki til að skapa traust,“ segir Þuríður Harpa Sig­urð­ar­dóttir, for­maður Öryrkja­banda­lags Íslands, en innan vébanda banda­lags­ins eru fjöl­mörg sjúk­linga­sam­tök. Hún segir fólk hafa veru­legar áhyggjur af stöðu mála, ekki síst því að álagið sé orðið svo mikið að fólk sé sent heim til að deyja. Hún segir málið snú­ast um for­gangs­röðun. „Ég held að það sé vilji almenn­ings og okkar sem greiðum skatta að heil­brigð­is­kerfið sé gott og að ef við þurfum á því að halda þá fáum við bestu mögu­legu þjón­ustu. Ég held að pólítíkin tali ekki alveg í sömu átt … að aðgerð­irnar séu ekki í takt við vilja lands­manna.“

Heilsugæslan betur stödd en Landspítalinn

„Það er alveg sam­komu­lag okkar í milli, heilsu­gæsl­unnar og Land­spít­al­ans, að við reynum að beina þeim sem eiga heima á heilsu­gæsl­unni þangað,“ segir Óskar Sesar Reyk­dals­son, for­stjóri Heilsu­gæsl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Hann segir átak hafa orðið til þess að 20 til 40 manns á dag leiti nú til heilsu­gæsl­unnar sem leit­uðu áður á bráða­mót­tök­una.

Óskar Sesar Reyk­dals­son

Óskar segir heilsu­gæsl­una og lækna­vakt­ina telja sam­tals um 20 ein­ingar og aug­ljóst að það muni hana minna um að taka við 20 í við­bót, einn á hverja stöð, frekar en að fólk fari á spít­al­ann.

En hversu miklu getur heilsu­gæslan bætt við?

„Auðvitað er það hjá okkur eins og ann­ars staðar að fólk er á fullu og álagið hefur auk­ist mikið. En það er verið að styrkja heilsu­gæsl­una og fjár­magnið er meira en það var,“ svarar Óskar.

Hvað varðar til­lögur til úrbóta segir hann nokkrar góðar komnar fram en aug­ljós­lega vanti meira fjár­magn í kerfið. „Og miðað við að við notum minna af okkar pen­ingum í heil­brigð­is­þjón­ust­una en nágranna­þjóð­irnar væri ekk­ert skrýtið að það væri bætt í.“

Óskar segir að einn þáttur gæti verið að efla heima­þjón­ust­una. „Fólk á alla vega ekki að vera á bráða­mót­tök­unni,“ segir hann og segir rann­sóknir sýna að sjúk­lingum sé best borgið þegar þeir kom­ast fljótt og örugg­lega undir hendur við­eig­andi sér­fræð­inga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina