Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Það þarf að gera eitthvað núna. Ekki á morgun. Því stórslys er í aðsigi.“

Í leið­ara Mannlífs í dag fjallar Roald Eyvinds­son útgáfu­stjóri um ástandið á bráða­mót­töku Land­spít­al­ans. Veltir hann fyrir sér hvað þurfi til að ein­stak­lingar hætti að benda hver á annan þegar staðan er gagn­rýnd og taki raun­veru­lega á vand­anum?

„Það þarf að gera eitthvað núna. Ekki á morgun. Því stórslys er í aðsigi.“

Þarf fleiri dauðsföll af völdum álagsmistaka?

„Auðvitað er með ólík­indum og til hábor­innar skammar að svona skuli staðan vera í nútíma­sam­fé­lagi. Sam­fé­lagi þar sem ráða­menn leyfa sér að hreykja sér af því út um allar koppa­grundir hversu fram­ar­lega Ísland standi í hinu og þessu á meðan stofnun sem er jafn­mik­il­væg sam­fé­lag­inu og bráða­móttakan er í molum. Hvað þarf eig­in­lega til svo þetta góða fólk hætti að þrugla um hag­ræð­ingu og sparnað og stór fram­tíð­ar­á­form sem eigi að bjarga öllu þegar málið ber á góma. Hvað þarf til svo það hætti að benda hvert á annað þegar staðan er gagn­rýnd og taki raun­veru­lega á vand­anum. Faraldur? Eða kannski fleiri dauðs­föll af völdum álags­mistaka? Maður hrein­lega spyr sig. Því það er löngu orðið ljóst að svona gengur þetta ekki lengur. Að það þarf að gera eitt­hvað núna. Ekki á morgun. Því stór­slys er í aðsigi.“

Fregnir sem eru ekki nýjar af nálinni

„Þetta er auð­vitað ekki í fyrsta sinn sem fregnir ber­ast af hættu­á­standi á bráða­mót­tök­unni. Í fyrra lýsti hjúkr­un­ar­fræð­ingur í pistli, sem vakti athygli, hörm­ung­ar­degi á spít­al­anum föstu­dag­inn 13. sept­em­ber. Þá hafi „nýtt og ömur­legt“ met verið slegið á bráða­mót­tök­unni þegar 41 sjúk­lingur var lagður inn en á deild­inni eru 36 rúm. Ekkert svig­rúm hafi verið fyrir starfs­fólkið að taka á móti nýjum sjúk­lingum sem streymdu þó á spít­al­ann. Kennslu­stjóri bráða­lækn­inga á Land­spít­al­anum tók undir þau orð í við­tali stuttu síðar og sagði að ástandið á bráða­mót­tök­unni hefði verið slæmt lengi en nú væri það orðið „far­sa­kennt,“ segir Roald.

Land­spít­al­inn er ein af grunn­stoðum íslenskt sam­fé­lags og þar ríkir grafal­var­legt ástand. „Já, ástandið þarna er búið að vera slæmt svo lengi að í des­em­ber 2018 sá Embætti land­læknis sig knúið til að láta gera úttekt á stöð­unni. Sú úttekt leiddi í ljós að bráða­móttakan glímdi meðal ann­ars við mann­eklu, ófull­nægj­andi starfs­að­stöðu og útskrift­ar­vanda, þar sem við­eig­andi legu­deildir á spít­al­anum gátu ekki tekið við sjúk­ling­unum vegna pláss­leysis. Með öðrum orðum reynd­ist vax­andi álag ár frá ári, und­ir­mönnun og skortur á hjúkr­un­ar­rýmum vera nokkrar af ástæðum þess að allt var komið í bull­andi rugl á deild­inni. Teymið sem gerði úttekt­ina var­aði við því að ástandið gæti stofnað öryggi sjúk­linga í hættu,“ skrifar Roald.

„Ég hef miklar áhyggjur af vetr­inum. Það er fyr­ir­sjá­an­legt að þetta getur ekki farið vel. Það er full ástæða til að vara við því.“ Með þessum hætti lýsir Már Krist­jáns­son, yfir­læknir á smit­sjúk­dóma­deild Land­spít­al­ans, stöð­unni sem nú er komin upp á bráða­mót­tök­unni. Deildin sé þegar yfir­full. Sprungin. Sýk­ing­ar­varnir brostnar. Og stór­slys í aðsigi.

„Það þarf að gera eitt­hvað núna. Ekki á morgun. Því stór­slys er í aðsigi.“

Bráðamóttökunni líkt við slömmin í London

Og ekki virt­ust nið­ur­stöð­urnar koma þeim sér­stak­lega á óvart sem til þekktu. Einn læknir gekk meira að segja svo langt að líkja ástand­inu á bráða­mót­tök­unni við slömmin í London á tímum Dickens í pistli sem birt­ist á vef Kvenna­blaðs­ins í jan­úar í fyrra. Ef ein­hver ætlar að reyna að halda því fram að sú lýs­ing sé stór­lega ýkt þá hefur sá hinn sami varla þurft að gera sér ferð niður í Fossvog nýlega og séð ástandið með eigin augum. Það hefur und­ir­rit­aður gert þegar hann hefur fylgt fjöl­skyldu­með­limum þangað og getur stað­fest að þar er ekki gæfu­legt um að lít­ast. Her­bergin troð­full af sjúk­lingum og rest­inni komið fyrir í rúmum frammi á göng­unum eða á setu­stofu til bráða­birgða. Og þótt starfs­fólkið geri ævin­lega sitt allra­besta er hverjum manni ljóst sem er með sjón­ina í sæmi­legu lagi að blessað fólkið er að kikna undan álagi.

Sjá leið­ar­inn í heild sinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina