Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Viðhald og yfirferð hjóla fyrir sumarið

Það er alltaf nauð­syn­legt að yfir­fara hjólin vel áður en haldið er af stað en ef hjólið hefur staðið inni í geymslu óhreyft í ein­hverjar vikur eða mán­uði þarf að þrífa það vel og skoða gíra, keðjur og annað sem þarfn­ast smurn­ingar.

Viðhald og yfirferð hjóla fyrir sumarið
Mynd / Unsplash |Mynd / Unsplash |Mynd / Unsplash |Mynd / Unsplash |Mynd / Unsplash

Rétt eins og glugga­þvottur og þrif til­heyra vor­inu á mörgum heim­ilum þá þurfa hjólin á því að halda að farið sé nákvæm­lega inn í öll hólf, skorur og holur og hreinsað burtu ryk og óhrein­indi sem kunna að hafa safn­ast fyrir síð­asta sumar. Síðan er pumpað í dekkin og mælt hvort loft­þrýst­ingur í þeim sé ekki akkúrat eins og hann á að vera. PSI-núm­erið á dekk­inu gefur til kynna hvað hann á að vera hár.

Svo er keðjan smurð og athugað hvort herða þurfi skrúfur á pedölum, gjarð­ar­fest­ingum, hnakka og ann­ars staðar þar sem eitt­hvað er fest við stellið. Prófið brems­urnar nokkrum sinnum og farið yfir allar snúrur og tengsl í hemla­bún­að­inum.

Mynd / Unsplash

Farið líka yfir hjálm­inn, passar hann vel, er ein­hver sprunga eða merki um þreytu komin í fóður eða yfir­borð? Ef svo er gæti verið kom­inn tími til að skipta. Þetta er örygg­is­tæki og þarf að vera í full­komnu standi.

Fyrst á vorin er oft­ast mik­ill sandur á gang­stéttum og göngu­stígum eftir sand­burð vetr­ar­ins til að draga úr hálku. Hann getur smogið inn í við­kvæman búnað hjóls­ins og þess vegna gæti verið betra að hjóla á breið­ari dekkjum til að byrja með, eða þar til götu­sóparar bæj­ar­fé­lag­anna hafa hreinsað til, vegna þess að þá á sand­ur­inn ekki eins greiða leið að hjól­inu sjálfu. Þau springa líka siður ef smá­steinar eða annað rusl stingst í þau.

Mynd / Unsplash

Vanir hjóla­menn mæla með að hlusta á hjólið. Síðasta spöl­inn heim eftir góðan túr er gott að hlusta á hljóðin í hjól­inu; brak, ískur og högg geta gefið vís­bend­ingar um að eitt­hvað sé að bila eða þarfn­ist smurn­ingar eða hreins­unar eða að eitt­hvað þurfi að herða. Þetta er sér­stak­lega mik­il­vægt í fyrstu skiptin sem hjólin eru tekin út eftir vetr­ar­geymslu.

Sumir verja verstu vetr­ar­mán­uð­unum í einmitt þetta við­hald og geta þess vegna tekið hjólin full­kom­lega til­búin út úr bíl­skúrnum á vorin.

Mynd / Unsplash

Ef börnin þín hjóla með þér er nauð­syn­legt að skoða reglu­lega hvort hjólin þeirra passi þeim enn þá. Þau vaxa hratt og eru fljót að vaxa upp úr hjól­unum rétt eins og föt­unum. Þegar þau hjóla á of litlu hjóli reynir það á hnén og bakið og getur orðið til þess að þau þrói með sér vanda­mál í liðum.

Ef þið eruð ekki viss um hvort bún­að­ur­inn er í lagi ætti skil­yrð­is­laust að fara með hjólið á næsta verk­stæði eða í hjóla­verslun og biðja starfs­mann þar að fara yfir allt. En þegar allt þetta hefur verið gert er ekk­ert annað eftir en að hjóla af stað út í sum­arið og njóta.

Mynd / Unsplash
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina