Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Hinsegin dagar og Bandaríska sendiráðið slíta samstarfi

Hinsegin dagar og Bandaríska sendiráðið slíta samstarfi

Stjórn Hinsegin daga hefur slitið sam­starfi við Banda­ríska sendi­ráðið, sem hefur um ára­bil verið einn stærsti styrkt­ar­að­ili hátíð­ar­hald­anna. Formaður stjórnar segir ákvörð­un­ina tekna að vel ígrund­uðu máli. Ekki lengur sé hægt að taka við fjár­styrkjum frá banda­rískum stjórn­völdum á meðan þau stundi árásir á rétt­indi hinsegin fólks.

„Þetta átti sér nokkurn aðdrag­anda. Und­an­farin ár, í raun frá því að núver­andi for­seti sett­ist á for­seta­stól í Banda­ríkj­unum, hefur stjórn Hinsegin daga rök­rætt hvort þiggja ætti styrki frá sendi­ráð­inu hér á landi. Sendi­ráðið hefur styrkt Hinsegin daga í all­mörg ár, en við valda­töku Donalds Trump urðu skýr skil í afstöðu banda­rískra stjórn­valda til hinsegin fólks,“ segir Vil­hjálmur Vil­hjálms­son, for­maður stjórnar Hinsegin daga, þegar hann er spurður hvers vegna stjórnin hafi ákveðið að slíta sam­starfi við Banda­ríska sendi­ráðið.

„Sem dæmi má nefna að í Banda­ríkj­unum hefur verið unnið mark­visst að því að draga úr vernd hinsegin fólks á vinnu­stöðum, með þeim full­yrð­ingum að lög gegn mis­munun nái ekki til hinsegin fólks,“ bendir hann á. „Þá kom Trump því til leiðar að trans fólki var meinað að gegna her­þjón­ustu og stjórn hans hefur dregið til baka vernd­ar­á­kvæði sem ætlað var að bæta rétt­indi og aðbúnað trans fólks í skóla­kerf­inu. Hann til­nefnir fólk til dóm­ara­emb­ætta og ann­arra opin­berra emb­ætta sem hefur ítrekað unnið gegn hinsegin fólki í störfum sínum og auð­vitað verður það til þess að hinsegin fólk á erf­ið­ara með að leita réttar síns.“

Vil­hjálmur segir að list­inn sé mun lengri. Trump hafi sem dæmi dregið úr rétt­indum HIV smit­aðra og undir stjórn hans fær­ist í auk­ana að hinsegin fólki sé neitað um rétt­indi og þjón­ustu með vísan til trú­ar­legrar sann­fær­ingar. Haldi sú þróun áfram geti læknar og hjúkr­un­ar­fræð­ingar til dæmis neitað hinsegin fólki um heil­brigð­is­þjón­ustu. „Á sama tíma lætur Trump stjórnin sem hún sé að beita sér gegn því að sam­kyn­hneigð sé refsi­verð ann­ars staðar, en þar beitir stjórnin sér ein­göngu gegn póli­tískum and­stæð­ingum sínum í Íran, en stuggar hvorki við Sádí-Arabíu né Ísrael svo dæmi séu tekin.“

Vilja ekki taka þátt í tvískinnungi bandarískra yfirvalda

Vil­hjálmur segir stjórn Hinsegin daga hafa til­kynnt Banda­ríska sendi­ráð­inu ákvörðun sína þann 4. júní. Áður hafi þó komið til tals að slíta sam­starf­inu, til dæmis á síð­asta ári þegar gagn­rýni á Hinsegin daga vegna styrks­ins frá sendi­ráð­inu var hávær. Nú hafi hins vegar verið algjör sam­staða um þessa ákvörðun innan stjórnar vegna fyrr­greindra ástæðna.

Banda­ríska sendi­ráðið hefur verið styrkt­ar­að­ili Hinsegin daga síðan 2012 en ári fyrr gekk starfs­fólk þess í fyrsta skipti í Gleði­göng­unni og hefur síðan þá tekið þátt sem einn hópur eða með öðrum sendi­ráðum í göng­unni. Vil­hjálmur segir að stjórn Hinsegin daga hafi átt í góðu sam­starfi við starfs­fólk Banda­ríska sendi­ráðs­ins á Íslandi. Það vegi eflaust þungt í því að ákvörðun um að slíta sam­starf­inu var ekki tekin fyrr. „Við gátum hins vegar ekki látið sam­starf við þá ein­stak­linga ráða för og þegar litið var fram­hjá því var ákvörð­unin alls ekki þung­bær.“

Hann tekur fram að ýmsir hafi þó bent á á að sýni­leiki Banda­ríska sendi­ráðs­ins á Hinsegin dögum hafi veitt banda­rísku hinsegin fólki, sér í lagi fólki búsettu hér­lendis, vissan sýni­leika og við­ur­kenn­ingu. Eins hafi stjórn Hinsegin daga nýtt fjár­magnið frá sendi­ráð­inu til góðra hluta í þágu hinsegin sam­fé­lags­ins. „En stóru lín­urnar eru alveg skýrar og við viljum ekki taka þátt í tví­skinn­ungi banda­rískra yfir­valda. Það er líka rétt að taka fram að við höfum fengið jákvæð við­brögð frá hinsegin fólki í Banda­ríkj­unum vegna þess­arar ákvörð­unar.“

Verða af verulegri fjárupphæð

Hversu hárri upp­hæð sjáið þið á eftir með því að slíta sam­starf­inu?

„Þetta hefur verið veru­leg upp­hæð fyrir Hinsegin daga,“ svarar hann, „og meðal ann­ars staðið undir kostn­aði við að tryggja aðgengi allra að tón­leikum í Hljóm­skála­garð­inum og kostn­aði við árlega Fjöl­skyldu­há­tíð hinsegin daga.“

Vil­hjálmur segir von­ast til að stjórn Hinsegin daga gef­ist sem fyrst tæki­færi til að end­ur­skoða þessa ákvörðun. „Það myndi nefni­lega þýða, að banda­rísk stjórn­völd hefðu breytt stefnu sinni gagn­vart hinsegin fólki. Sam­starfið við starfs­fólk sendi­ráðs­ins hefur alltaf verið með miklum ágætum og ef banda­rísk stjórn­völd sýndu hinsegin fólki og rétt­inda­málum þess virð­ingu þá tækjum við sam­starfi fagn­andi á ný. En þar til það verður munu Hinsegin dagar ekki þiggja styrki frá banda­rískum stjórn­völdum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina