Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Guðmundur Franklín segir að allir vinstri menn séu hálfgerðir sóðar

Guðmundur Franklín segir að allir vinstri menn séu hálfgerðir sóðar

Guð­mundur Franklín Jónsson for­seta­fram­bjóð­andi segir að allir vinstri menn séu hálf­gerðir sóðar, nátt­úru­vernd­ar­sóðar og krefst þess jafn­framt að kosn­inga­stjóri Guðna Th. Jóhann­es­sonar for­seta biðj­ist afsök­unar á því að hafa kallað hann ras­ista.

„Þarna í gær kemur mark­aðs­mað­ur­inn hans, kosn­inga­stjór­inn Sveinn Waage, þetta er mik­ill maður og hann er þarna í ein­hverjum þætti á einni stöð­inni, og hann gefur í skyn að ég sé ras­isti. Það er alltaf í rest­ina þegar menn eru orðnir alveg tómir með allt, sem þeir eiga ekk­ert eftir, þá spila þeir ras­istasplinu. Mér finnst þetta svo lág­kúru­legt … Það gæti ekk­ert verið fjarri lagi sann­leik­anum,“ sagði Guð­mundur Franklín Jónsson for­seta­fram­bjóð­andi í beinni á Facebook-síðu í morgun og bætti um betur með að segja að Sveinn hefði rang­lega gefið í skyn í þætt­inum að Guð­mundur væri stofn­andi Íslensku þjóð­fylk­ing­ar­innar. Það væri frá­sinna.

„Hann vildi meina að ég væri ras­isti og að ég hefði stofnað Íslensku þjóð­fylk­ing­una,“ sagði Guð­mundur og und­ir­strik­aði að flokk­ur­inn sem hann stofn­aði á sínum tíma Hægri græn ætti ekk­ert skylt við Íslensku þjóð­fylk­ing­una heldur hann hafi þvert á móti fyrst og fremst verið nátt­uru­vernd­ar­flokkur.

„Við vorum hægri sinn­aðir. Vegna þess að mér finnst og mér fannst og finnst að þeir sem eru vinstra megin í póli­tík séu hálf­gerðir sóðar, nátt­úru­vernd­ar­sóðar. Við þurfum ekki nema líta á sög­una … Þá er ég að tala um hrika­lega meng­un­ar­sögu mann­kyns. Hvar var meng­un­ina mest að finna? Mest í Aust­an­tjalds­löndum og Sov­ét­ríkj­unum sál­ugu þótt þau hafi þrifið upp margt eftir sig. Síðan er hann núna að finna í Kína og hvað er Kína? Kína er ekki bara komm­ún­ista­ríki. Það er alræð­is­ríki. Þannig að vinn­stri­mennska hefur í för með sér sóða­skap á svo mörgum, mörgum öðrum sviðum heldur en mál­flutn­ingi, bara svo menn hafi það í huga. Ég er s.s. að tala um öfga vinstri menn.“

„Ég ætla að biðja Svein Waage, þennan stóra lygara, stór­lygara, rað­lygara að biðja mig afsök­unar.“

Guð­mundur seg­ist hafa verið far­inn úr landi þegar Íslenska þjóð­fylk­ingin hafi verið stofnuð og hafi ekki vitað um hana. „Síðan fer ég erlendis. Tveimur árum seinna, mað­ur­inn sem tók við flokknum mínum stofnar annan flokk. Þá sagði þessi maður, kosn­inga­stjóri Guðna að ég hefði stofnað Íslensku þjóð­fylk­ing­una … Ég veit ekki einu sinn hvort Íslenska þjóð­fylk­ingin er til, var ekki í henni og vissi ekk­ert um hana. Hún er stofnuð tveimur árum eftir að ég fer úr landi, til Dan­merkur. Þannig að þessi maður verður aðeins að athuga sinn gang.“

Þá sagði Guð­mundur að gagn­stætt því sem sumir héldu fram væru Íslend­ingar ekki ras­istar og hann allra síst. „Það skiptir ekki máli fyrir mig hvað þú heitir, hvort þú ert kona eða karl, svartur eða hvítur, gulur eða grænn. Það skiptir máli hvað þú segir, hver þú ert, hvernig þú hagar þér, hvað þú vilt gera, hverjir eru draumar þínir. Það er það sem skiptir máli. … Þetta var það alversta sem þau gátu komið með, Guðna menn og Guðna fólk, vegna þess að Guðni hefur kallað Íslensku þjóð­ina ras­ista,“ sagði hann og vitn­aði í fyr­ir­lestur sem Guðni flutti á Bifröst 2013.

„Mikið er gjört úr því að íslensk stjórn­völd hafi mikil áhrif á þróun haf­réttar með því að leiða kröf­una um 50 mílur ’72 og síðan 200 mílu ’75. Þetta nálg­ast ein­hvers konar ras­isma. Því ríki róm­versku Ameríku voru farin að færa út í 200 mílur 1948,“ las Guð­mundur upp úr téðum fyr­ir­lestri. „Þannig að núna er hann að segja í þessu að Íslend­ingar séu ras­istar fyrir það eina að vilja færa út efna­hags­lög­sög­una sína.“

Þá fór Guð­mundur fram á að kosn­inga­stjóri Guðna bið­ist afsök­unar og spar­aði ekki stóru orðin. „Ég ætla að biðja Svein Waage, þennan stóra lygara, stór­lygara, rað­lygara að biðja mig afsök­unar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina