Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Tilgangurinn var ekki að græða peninga

Kári Stef­áns­son, for­stjóri Íslenskrar erfða­grein­ingar, segir útlit fyrir að sumt fólk haldi að hann og Íslensk erfða­grein­ing hafi ætlað að græða pen­inga á allri vinn­unni sem vís­inda­menn Íslenskrar erfða­grein­ingar lögðu til í krór­ónu­veiru­far­aldr­unum. Hann segir það vera ósatt og áréttar mis­skiln­ing­inn í færslu sem hann birtir á Facebook í dag.

Kári segir til­gang vinn­unnar alltaf hafa verið að taka þátt í að hemja útbreiðslu far­ald­urs­ins og tekur fram að vegna umræðu í fjöl­miðlum sjái hann sig knú­inn til að tjá sig um málið.

„Það bjó ekk­ert annað að baki þeirri skimun sem ÍE fram­kvæmdi eftir SARS-CoV-2 í íslend­ingum en löngun til þess að taka þátt í að hemja far­ald­ur­inn. Það sama á við um skimun­ina eftir mótefnum gegn veirunni. ÍE og eig­andi hennar Amgen hafa aldrei haft uppi áætl­anir um að búa til úr þess­ari vinnu sölu­vöru til þess hafa af fjárhagslegan ávinn­ing. Þegar ég hafði á sínum tíma sam­band við stjórn­endur Amgen og sagði að ég vildi hefja skimun var svarið sem ég fékk: „Í guð­anna­bænum gerðu það og bjóddu stjórn­völdum alla þá hjálp sem þú getur veitt.“ Það vill svo til að Covid-19 far­ald­ur­inn hefur laðað fram það besta í svo mörgum og meira að segja harðsvíruðum kap­ít­alistum eins og þeim sem stjórna lyfja­iðn­að­inum. Stærstu lyfja­fyr­ir­tæki heims hafa heitið því að gera sitt besta til þess að búa til eins fljótt og hægt er bólu­efni gegn veirunni og lyf til þess að lækna Covid-19 og dreifa þessu um allan heim án þess að græða á því fé. Þetta er ein­stakt og fal­legt og svona á heim­ur­inn að vera,“ skrifar hann í færsl­una.

Hann bætir við að löng­unin til að upp­götva eitt­hvað nýtt hafi svo rekið vís­inda­menn Íslenskrar erfða­grein­ingar áfram. Hann segir þá hafa fljótt farið að „fá eitt­hvað fyrir sinn snúð“.

„Það sem við fengum fyrir snúð­inn var sú gleði sem fylgir því að upp­götva eitt­hvað nýtt um eðli sjúk­dóma og heilsu. Við erum upp­götv­anafíklar og nýr sjúk­dómur sem ekk­ert er vitað um er hval­reki fyrir þá fíkn. Þetta var dópið beint í æð. Sem sagt við skimuðum ekki af góð­mennsku eða fórn­fýsi heldur til þess að hlúa að því sam­fé­lagi sem við búum og þannig að okkur sjálfum og síðan gerðum við það líka til þess að kom­ast í þá vímu sem við lifum fyrir.“

Færslu Kára má sjá hér fyrir neðan:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina