Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Eins og í bandarískri bíómynd

Eins og í bandarískri bíómynd

Doktor Erla Björns­dóttir er ein af þessum ofur­konum sem virð­ast geta allt. Rúmleg þrí­tug var hún orðin fjög­urra barna móðir með dokt­ors­próf og nýstofnað fyr­ir­tæki sem bauð upp á nýj­ungar í svefn­með­ferðum og síðan hefur hún skrifað bækur, haldið fyr­ir­lestra og rekið með­ferð við svefn­vanda­málum með góðum árangri.

Í haust kemur út hennar fyrsta skáld­verk, barna­bók um svefn, og hún seg­ist hafa ótal aðrar hug­myndir í poka­horn­inu sem munu verða að veru­leika á næstu árum. Hún segir ást­ar­sögu sína og eig­in­manns­ins vera nán­ast eins og úr banda­rískri bíó­mynd.

„Ég er fædd og upp­alin í Vesturbæ Reykja­víkur,“ segir Erla spurð um bak­grunn sinn og upp­runa. „En flutt­ist svo austur á Nes­kaup­stað þegar ég var fimmtán ára. Pabbi er læknir og fékk stöðu á sjúkra­hús­inu þar og fjöl­skyldan flutti austur. Það var mikið áfall að flytja á Nes­kaup­stað úr borg­inni, það var ekki gaman fyrir fimmtán ára ung­ling­inn. En ég var mjög fljót að aðlag­ast og leið vel fyrir austan, var þar einn vetur en fór svo í Mennta­skól­ann á Akureyri og var þar á vet­urna en fyrir austan á sumri. Þegar ég var átján ára hitti ég síðan mann­inn sem er mað­ur­inn minn enn í dag fyrir austan, þannig að þetta var gæfu­spor í lífi mínu þegar upp var staðið.“

Erla er á for­síðu Vikunnar.

Eig­in­mað­ur­inn, Hálfdán Stein­þórs­son, er fæddur og upp­al­inn á Nes­kaup­stað og bjó nán­ast í næsta húsi við Erlu þegar þau kynnt­ust og ekki nóg með það heldur urðu bróðir Erlu og systir hans líka hjón.

„Þetta var ást við fyrstu sýn,“ full­yrðir Erla. „Við byrj­uðum strax að vera saman og sex mán­uðum seinna byrj­aði systir hans að vera með bróður mínum og þau eru líka hjón í dag. Þau systk­inin bjuggu hinum megin við göt­una og við sáum bók­staf­lega hvort annað út um eld­hús­glugg­ana heima hjá okkur, þannig að þetta var svo­lítið svona eins og í banda­rískri bíó­mynd. Í dag eigum við fjóra stráka og systk­ini okkar eiga þrjár stelpur á nákvæm­lega sama aldri, við áttum alltaf von á börnum á sama tíma og fólki fannst þetta allt saman dálítið skrítið. En við höfum alltaf öll verið rosa­lega náin og ef ein­hvern í hópnum vantar nýra þá erum við í mjög góðum málum,“ bætir hún við og skelli­hlær.

„Þetta var ást við fyrstu sýn.“

Erla var ekki gömul þegar fyrsti son­ur­inn fædd­ist og sama ár giftu þau Hálfdán sig. Bæði voru þá enn í námi, en hún segir það hafa hentað sér mjög vel að eign­ast dreng­ina sam­hliða nám­inu.

„Ég var tutt­ugu og eins árs þegar við giftum okkur og elsti strák­ur­inn fædd­ist, við vorum ekk­ert að hangsa við hlut­ina,“ segir hún bros­andi. „Svo komu þeir koll af kolli, strák­arnir og sá yngsti er sex ára í dag og sá elsti sextán ára. Tveir þeir elstu kom þegar ég var í BS-námi í sál­fræði og svo fórum við til Dan­merkur þar sem ég tók meist­ara­námið og þegar ég var að klára það kom sá þriðji. Sá yngsti kom svo þegar ég var í dokt­ors­nám­inu og ég var bara nýbúin að eign­ast hann þegar ég varði dokt­ors­rit­gerð­ina. Það hent­aði mér mjög vel að vera í barn­eignum sam­hliða nám­inu og mér fannst það bara eðli­leg­asti hlutur í heimi.“

Erla er á for­síðu nýj­ustu Vikunnar sem kemur í versl­anir í dag. 

Kaupa blað í vef­verslun

Myndir / Hallur Karlsson

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu