Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Gerðu þjóðlagapoppútgáfu af laginu Húsavík úr Eurovisionmyndinni

Gerðu þjóðlagapoppútgáfu af laginu Húsavík úr Eurovisionmyndinni

Drengirnir í hljóm­sveit­inni Góða fólkið gerðu sér lítið fyrir og færðu hið geysi­vin­sæla lag Húsavík úr mynd­inni The Eurovision Song Contest: The Story of Fire Saga í bún­ing þjóð­laga­popps og er óhætt að segja að það hljómi býsna ólíkt því sem heyra má í mynd­inni. Það er Eyvindur Karlsson, söngv­ari og gít­ar­leik­ari Góða fólks­ins sem á heið­ur­inn af þess­ari útgáfu, hvernig datt honum þetta í hug?

„Ég horfði á Eurovision mynd­ina eins og hálf þjóðin um síð­ustu helgi og fannst hún alveg ynd­is­leg. Og af því að við erum að fara að spila á Café Ros­en­berg sendi ég skila­boð á strák­ana og sagði að við yrðum að taka Ja Ja Ding Dong. Því ég vissi bara að ein­hver myndi kalla á okkur: „Spilið þið Ja Ja Ding Dong!““ útskýrir Eyvindur. „En af því að Ármann er svo rosa­lega mik­ill Hús­vík­ingur heimt­aði hann að lagið Húsavík yrði frekar fyrir val­inu. Ég held reyndar að hann hafi haldið að ég væri að grín­ast. En ég lagð­ist strax yfir þetta og kom með til­lögu að þjóð­laga­popp­aðri útsetn­ingu á lag­inu, og við kýldum bara á þetta. Þetta er nefni­lega frá­bært lag, og virkar held ég alveg jafn vel sem þjóð­laga­popp og Eurovision­ball­aða.“

Fimmtu­dag­inn 2. júlí munu pilt­arnir sem mynda Góða fólkið halda sína fyrstu tón­leika á árinu og verða þeir á hinu nýupp­risna Café Ros­en­berg, Vest­ur­götu 3. Góða fólkið er, auk Eyvindar, Loftur S. Loftsson bassa­leik­ari, Guð­mundur Atli Pét­urs­son mand­ólín­leik­ari, Ármann Guð­munds­son gít­ar­leik­ari og Vignir Pálsson banjó­leik­ari sem reyndar verður fjarri góðu gamni í þetta sinn.

Auk lags­ins Húsa­víkur sam­anstendur efn­is­skrá tón­leik­ana af blöndu af ekta þjóð­lagatón­list og allra handa popp­lögum sem færð hafa verið í þjóð­laga­bún­ing.

Hér má hlusta á Húsavík Góða fólks­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina