Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Tesla vill leggja hleðslustöðvar um land allt

Tesla vill leggja hleðslustöðvar um land allt

Teslu-umboðið vill leggja hleðslu­stöðvar fyrir raf­bíla um land allt. Málið er til skoð­unar hjá Orku­stofnun.

„Þeir eru að leita hóf­ana með að koma upp hleðslu­stöðvum,“ segir Guðni A. Jóhann­es­son orku­mála­stjóri í sam­tali við Mannlíf. „Það er verið að kanna mögu­legar stað­setn­ingar og annað. Þetta eru nátt­úru­lega afl­miklar stöðvar.“

Spurður hversu margar hleðslu­stöðvar Teslu-umboðið vilji leggja og hvar á land­inu og hversu lengi málið hafi verið á borði Orku­stofn­unar seg­ist Guðni ekki getað rætt það á þessu stigi máls­ins. „Þetta er bara allt saman í vinnslu,“ segir hann. „Annars vísa ég þessu til Teslu-umboðs­ins á Íslandi. Það er ágætt að þeir svari þessu.“

Mannlíf hefur heim­ildir fyrir því að hleðslu­stöðv­arnar gagn­ist ein­göngu Teslu-eig­endum og séu hluti af áfram­hald­andi sam­starfi Tesla og N1, sem hafa þegar und­ir­ritað sam­starfs­samn­ing um upp­setn­ingu á Tesla hrað­hleðslu­stöðvum á völdum N1 stöðvum umhverfis Ísland.

„Já, þetta er rétt og það stendur til að gera þetta í nokkrum fösum,“ segir Hinrik Örn Bjarna­son, fram­kvæmda­stjóri N1.

Spurður um hversu margar hleðslu­stöðvar sé að ræða vill hann ekki til­greina fjöld­ann – að svo stöddu. „En þetta er áður óþekktur fjöldi hleðslu­stöðva sem þeir ætla að setja upp,“ segir hann, „þannig að þetta mun þjón­usta Teslu-eig­endur vel. Auðvitað þarf að vera nægt raf­magn og það þarf að huga að fleiru þegar þetta er sett upp.“

Spurður hversu lengi málið hafi verið til skoð­unar hjá Orku­stofnun, seg­ist hann ekki vilja full­yrða neitt um það, en að við­ræður á milli N1 og Teslu hafi staðið yfir í um tvo mán­uði.

Eins og fyrr segir hafa N1 og Tesla þegar gert sam­komu­lag um upp­setn­ingu slíkra stöðva á lóðum N1, en þær gera eig­endum Teslu-bif­reiða kleyft að hlaða sína bíla þegar ekið er um þjóð­veg 1, eins og Vísir greindi frá 8. maí. Þar kom fram að ráð­gert væri að fyrsta stöðin yrði komin í rekstur snemma sum­ars 2020, en í sam­tali við Vísi sagði Hinrik Örn Bjarna­son, fram­kvæmda­stjóri N1, að verið væri að skoða fleiri stað­setn­ingar „með því mark­miði að dekka hring­veg­inn“.“ Í sam­tali við Mannlíf seg­ist hann reikna með að fyrsta stöðin opni á lóð N1 í Fossvogi eftir tvær vikur, gangi allt upp, og þar á eftir verði önnur von­andi opnuð hjá Stað­ar­skála.

„Þessu til við­bótar erum við með eigin plön. Þannig ætlum við að taka yfir ON hleðslu­stöðv­arnar með haustinu og svo ætlum við að setja upp eigin hleðslu­stöðvar sem munu þjón­usta alla bíla. Við munum opna fyrstu stöð­ina á lóð Elko í Lindunum innan 10 daga.“

Fréttin hefur verið upp­færð. Ekki náð­ist í tals­mann Teslu á Íslandi við vinnslu hennar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina