Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Rukkuð fyrir það sem þau borðuðu ekki

Rukkuð fyrir það sem þau borðuðu ekki

Nú ferð­ast flestir inn­an­lands, enda fátt annað í boði og landið okkar dásam­legt!

Þó er það nú þannig að margir reyna að maka krók­inn og neyt­endur fá stundum illa á bauk­inn þegar hungrið sverfur að. Þetta fékk Herdís Inga Ósk­ars­dóttir að reyna er hún pant­aði sér borg­ara á Húsavík í kvöld, ásamt fjöl­skyldu sinni.

Sann­gjarnt getur talist að rukkað sé fyrir við­bót­ar­á­legg, t.d. á borg­ara eða flat­böku, en hingað til hefur ekki tíðkast að inn­heimt sé fyrir mat sem sleppt er. Á Facebook-síð­unni Mat­ar­tips hefur færslan um Veit­inga­húsið Sölku á Húsavík (færsla Herdísar) vakið gríð­ar­leg við­brögð og hafa nokkrir bent á að von­andi sé um mis­tök að ræða. Hér má sjá færsl­una:

Sé þetta allt á mis­skiln­ingi byggt má þó velta fyrir sér hvort eðli­legt geti talist að rukka 150 krónur fyrir hvert það græn­meti sem við­skipta­vinur óskar eftir á borg­ar­ann. Að því gefnu að ekk­ert græn­meti var á borg­ar­anum sem ber­stríp­aður kost­aði 2.350 krónur.

Hafi maður, skv. færslu, verið svo óláns­samur að panta ost­borg­ara og ekki viljað ost­inn þá kostar það 150 krónur að láta fjar­lægja ost­inn.

Sem fyrr segir létu við­brögðin ekki á sér standa á Facebook og ekki má nú van­meta gildi sam­fé­lags­miðla. Hér gefur að líta örfá dæmi um við­brögð við færsl­unni:

„Takk fyrir að deila þessu. Hafði einmitt hugsað mér að heim­sækja þennan stað í sumar. En ég ætla að sleppa því.“
„Einn laukur kostar um 20 krónur úti búð.. just say­ing 😶 Þetta er galið verð og fárán­legt að það sé rukkað fyrir að sleppa eh… Sem betur fer voru þið ekki með börn þið hefðuð farið á haus­inn 😅“

„hvernig er hægt að rétt­læta það að RUKKA við­skipta­vin fyrir það td að vilja ekki ost á borg­ar­ann?? Eru þeir gerðir fyr­ir­fram og þarf að fara í þá aðgerð að fjar­lægja ost­inn??“

Ekki náð­ist í fólkið í brúnni á veit­inga­staðnum Sölku á Húsavík við vinnslu frétt­ar­innar en von­andi er við­bragða að vænta áður en langt um líður. Eftir sem áður verður að telj­ast nokkuð dýrt að borga 150 krónur fyrir rauð­lauk á ham­borg­ara og 450 krónur fyrir 0.3l af app­el­síni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina