Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fuglinn í fjörunni hann heitir Hrafn

Fuglinn í fjörunni hann heitir Hrafn

Hug­sjóna­mað­ur­inn Hrafn Jök­uls­son stendur í stór­ræðum við að hreinsa fjörur á Ströndum. Tugir sjálf­boða­liða eru til hjálpar.

Hrafn Jök­uls­son, hug­sjóna­maður og skák­fröm­uður, hefur gert það að sínu stærsta bar­áttu­máli að hreinsa fjörur í Árnes­hreppi þar sem plast og annar úrgangur berst jafnan á land. Hreins­un­ar­starfið hófst í vor og mættu tugir sjálf­boða­liða til að leggja mál­efn­inu lið. Mannlíf ræddi við Hrafn þar sem hann stik­aði um fjörur í Árnesi með gogg í hendi og eld­móð í hjarta. Ósjálfrátt kemur upp í hug­ann gömul vísa: Fuglinn í fjör­unni, hann heitir már. En þessi heitir auð­vitað Hrafn.

„Kolgraf­ar­vík hefur á síð­ustu vikum eign­ast marga og góða vini sem ætla að hjálpa mér að taka til í fjörum Tré­kyllis­víkur,“ segir Hrafn Jök­uls­son sem und­an­farið hefur staðið í ströngu við að hreinsa fjörur í Árnes­hreppi.

„Ég ætla að end­ur­gjalda Kolgraf­ar­vík, fóstru minni, fyrir öll ævin­týrin í gegnum árin og taka til.“

Hrafn hefur sett í gang sér­stakt átak í Kolgraf­ar­vík sem er í landi Stóru-Ávíkur þar sem hann var í sveit sem barn og hefur síðan haldið tryggð við. Fjöl­margir hafa lagt Hrafni lið í átak­inu. Hann seg­ist vera þakk­látur fyrir und­ir­tekt­irnar. „Ferða­fé­lag Íslands stendur svo sann­ar­lega undir nafni sem menn­ingar- og fram­fara­fé­lag og sendi til mín vaskan hóp sjálf­boða­liða 17.-20. júní. Það var upp­lifun að kynn­ast því magn­aða fólki sem kom um langan veg með bros á vör til að hreinsa fjörur og frelsa nátt­úr­una úr fjötrum. Okkur bætt­ist svo heldur betur liðs­auki þegar heill göngu­hópur Ferða­fé­lags­ins kom með okkur í fjörur Finn­boga­staða og dró saman ókjör af plasti. Ég er Ferða­fé­lag­inu, jafnt starfs­mönnum sem sjálf­boða­liðum og göngu­fólki, óend­an­lega þakk­látur fyrir lið­veisl­una. Og það var hrein­lega eins og almættið hefði smellt fingrum þegar Tómas Knútsson, stofn­andi Bláa hers­ins, kom askvað­andi með alla þekk­ingu sína og eld­móð. Ekki er minna um vert að Þórarinn Ívarsson, krafta­verka­mað­ur­inn bak við Ver­ald­ar­vini, ætlar að senda hópa sjálf­boða­liða til mín í sumar, og ég hlakka mikið til að kynn­ast því góða fólki,“ segir Hrafn.

Kristín Sig­urð­ar­dóttir, sund­kenn­ari af Sel­tjarn­ar­nesi og sjálf­boða­liði Ferða­fé­lags­ins, tók þátt í fjöru­hreinsun og fjár­sjóðs­leit að hætti Krumma Klaka­sonar.

Hrafn nefnir líka kraft­mik­inn hóp frá Bæ í Tré­kyllis­vík sem hafi lagt til tugi vinnu­stunda í fjörum Finn­boga­staða og Stóru-Ávíkur. Félag Árnes­hrepps­búa og Rjúkandi og Græni her­inn og fleiri sam­tök eru einnig búin að bjóða fram krafta sína.

„Nú eru aðeins 40 dagar síðan ég vann það heit í Kolgraf­ar­vík að hreinsa ævin­týra­heim bernsku minnar og forða honum frá því að verða ösku­haugar minna efri daga. Í sam­ræmi við þetta er ég að end­ur­skipu­leggja til­ver­una svo ég geti helgað mig fjöru­hreinsun og fjár­sjóðs­leit á Ströndum. Svo er ég líka að draga saman efni í nýja bók um Árnes­hrepp og von­ast til að geta verið þar sem mest,“ segir Hrafn.

Hann kom fyrst í Árnes­hrepp átta ára gam­all vinnu­piltur þjóð­há­tíð­ar­árið 1974. Hann segir að eng­inn staður í heim­inum skipti sig meira máli, nema Skáholt í Vesturbæ Reykja­víkur þar sem hann ólst upp.

„Ég ætla að end­ur­gjalda Kolgraf­ar­vík, fóstru minni, fyrir öll ævin­týrin í gegnum árin og taka til. Í þess­ari ægi­fögru og stór­brotnu vík, sem breiðir faðm mót íshaf­inu, hafa safn­ast upp ókjör af plasti og rusli, sem vetr­ar­brimið hrærir saman við drumba og spýtur í þess­ari miklu reka­vík. Áður voru trén frá Síberíu mjög mik­il­væg auð­lind en nú eru fúa­sprek og ónýt tré að kaf­færa fjörur og grundir. Ég ætla að skila af mér Kolgraf­ar­vík eins og hún var þegar ég kom þangað fyrst fyrir 46 árum. Þá var hvert sprek notað, í hverri spýtu bjó smíð­is­gripur, í hverjum drumbi girð­ing­ar­staurar eða bygg­ing­ar­efni. Fjöru­kambar og grundir voru ósnortin af plasti og rusli svo þarna var dásam­legur heimur – sem við ætlum að end­ur­heimta,“ segir Hrafn.

Hann er með ótal hug­myndir um það hvernig megi breyta fjör­urusl­inu í verð­mæti. Hugs­an­legt sé að kurla reka­við­inn niður og nota í göngu­stíga. Eða jafn­vel vinna hann með öðrum hætti. Aðal­at­riðið sé að hreinsa fjör­urnar af aðskota­efn­inu. Og það er ekk­ert sem stöðvar Hrafn, fugl­inn í fjör­unni. Hann stefnir að útrás fyrir Vini Kolgraf­ar­víkur.

„Vinir Kolgraf­ar­víkur láta ekki staðar numið þar – á næstu vikum verður hreinsað til í öllum fjörum Finn­boga­staða og Stóru-Ávíkur, en það eru líka fleiri spenn­andi fjörur fram undan. Ef við getum tekið til í einni vík hljótum við að geta tekið til í öllum víkum Íslands undir kjör­orðum Vina Kolgraf­ar­víkur: Saman erum við sterk­ari,“ segir hann.

Hópur Ferða­fé­lags Íslands kom við í fjör­unni og lagði hreins­un­ar­starf­inu lið. Þetta skilti af banda­rískum tund­ur­spili fann Árný Lind Jóns­dóttir í fjör­unni. For­ing­inn var afar ánægður með það og boð­aði vakta­skipti.

Myndir / Jóhanna Engilráð og Reynir Trausta­son

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina