Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Nemar grípa til sinna ráða vegna COVID-19

Nemar grípa til sinna ráða vegna COVID-19
Útskrift­ar­nemar í hönnun við Lista­há­skóla Íslands.

Kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn fær hönn­un­ar­nema til að hugsa út fyrir boxið.

„Í raun má segja að kór­óna­veiran setji mark sitt á sýn­ing­una og allt inni­hald hennar, því þarna eru nem­endur meðal ann­ars að takast á við þær tak­mark­anir sem COVID-19 hefur sett sam­fé­lag­inu,“ segir Kolbrún Þóra Löve sýn­ing­ar­stjóri HOW LONG WILL IT LAST?, um útskrift­ar­sýn­ingu meist­ara­nema í hönnun við Lista­há­skóla Íslands, sem opnar í Ásmund­ar­sal í kvöld klukkan 18.

Í ljósi hertra tak­mark­ana vegna COVID-19 mega ein­ungis 20 gestir vera á sýn­ing­unni í einu og því verður opn­un­inni og sýn­ing­unni streymt beint á netið, sem Kolbrún segir að geri til dæmis fólki kleyft að skoða hana heima hjá sér ef aðstæður kalla á það. „Þannig verða verkin sam­tímis stað­bundin í Ásmund­ar­sal og óstað­bundin þar sem þau birt­ast hverjum sem er í tölvu, síma eða snjall­tæki og þannig takst þau á við tog­streitu þess staf­ræna og hins efn­is­lega,“ lýsir hún.

„Í raun má segja að kór­óna­veiran setji mark sitt á sýn­ing­una og allt inni­hald hennar.“

Sex útskrift­ar­nem­endur taka þátt í sýn­ing­unni og eru verk­efnin af ýmsum toga, en eiga sam­kvæmt Kolbrúnu mörg sam­eig­in­legt að takast á við vissa tog­streitu milli and­stæðna. „Sem dæmi rann­sak­aði einn útskrift­ar­nem­inn, Argitxu Etchebarne, gagna­ver á Íslandi og tók sér­stak­lega fyrir sam­band þeirra við manns­lík­amann. Annar, Lu Li, rann­sak­aði mögu­leika þess að byggja upp nánd á milli fjar­lægra staða, en hún nýtir sér tækn­ina til þess að byggja brýr á milli Íslands og heima­lands hennar, Kína. Á meðan rann­sak­aði Sveinn Steinar sam­spil gerfi­greindar og manns­ins, og bjó til víd­eó­verk sem er afrakstur sam­skipta hans við gervi­greindar for­rit. Verkin eru því að mörgu leyti ólík en þó liggja aug­ljósir þræðir á milli þeirra.“

Aðspurð segir Kolbrún hug­mynd­ina að þem­anu á sýn­ing­unni hafa kviknað þegar fyrsta bylgja kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins skall á í mars á þessu ári. „Á síð­ustu önn neydd­umst við til að end­ur­hugsa öll okkar sam­skipta­munstur vegna COVID-19. Tak­mark­anir sem fylgdu í kjöl­far far­ald­urs­ins höfðu þær afleið­ingar að Lista­há­skól­anum var lokað og nem­endur urðu að end­ur­hugsa öll sam­skipti sín á milli og við kenn­ara og yfir­færa þau á staf­rænt form. Á viku­legum fjar­fundum ræddu þau og rann­sök­uðu tog­streit­una á milli hins staf­ræna og efn­is­lega og gerðu til­raunir með sam­skipta­for­ritið Teams frá Microsoft. Þaðan spratt sú hug­mynd að aðal­á­hersla sýn­ing­ar­innar í ár yrði rann­sókn á þess­ari tog­streitu á milli þess hvað er raun­veru­legt og hvað er ekki raun­veru­legt, ekki síst þegar kemur að sam­skiptum.“

Að sögn Kol­brúnar er meist­ara­nám í hönnun við Lista­há­skóla Íslands alþjóð­leg og þver­fag­leg náms­braut, sem þýðir að nem­endur koma að nám­inu með fjöl­breyttan bak­grunn hvað varðar fyrri menntun, þekk­ingu, þjóð­erni og menn­ingu. „Þessi fjöl­breyti­leiki ýtir undir þann mögu­leika að hóp­ur­inn getur kannað mörg verk­efni út frá mörgum sjón­ar­hornum, sem víkkar sjón­deild­ar­hring­inn og eykur skiln­ing þeirra á við­fangs­efn­inu,“ útskýrir hún og bætir við að hver útskrift­ar­hópur sé ein­stakur og hafi mikið að segja um það hvernig sýn­ing­arnar verða.

„Sýn­ing­arnar eru því eðli­lega mjög ólíkar milli ára, sem gerir þær meðal ann­ars spenn­andi, og fara allt eftir því hvað nem­endur eru að hugsa um og hver tíð­ar­and­inn í sam­fé­lag­inu er hverju sinni. Í þetta sinn markar COVID-19 sýn­ing­una og allt inni­hald hennar.“

Eins og áður segir eiga sex útskrift­ar­nemar verk á sýn­ing­unni, þau Argitxu Etchebarne, Christopher Dake-Outhet, Harpa Hrund Páls­dóttir, Lu Li, Ma Kowasz og Sveinn Steinar Bene­dikts­son. Sýningin verður opnuð í í Ásmund­ar­sal í kvöld klukkan 18 og stendur yfir til 16. ágúst næst­kom­andi. Hægt verður að horfa á streymið á síðu meist­ara­náms­ins hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni