Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Sjónvarpsframleiðandi tvísaga um fjárveitingu frá Samherja

Sjónvarpsframleiðandi tvísaga um fjárveitingu frá Samherja
Skjáskot / RÚV

Samherji hefur birt stiklu með upp­tökum af Helga Seljan frétta­manni og er þar um að ræða brot úr Sam­herja­þáttum sem sýndir verða um meinta mútu­starf­semi fyr­ir­tæks­ins við Afr­íku­veiðar. Áður hafa verið gerðir sjón­varps­þættir um fyr­ir­tækið þar sem fjallað var um hús­leit Seðla­banka Íslands hjá því og voru þeir þættir sýndir á sjón­varps­stöð­inni Hring­braut. Sigurður Kristinn Kol­beins­son sá um þá þætti fyrir sjón­varps­stöð­ina og hann vís­aði því á bug í sam­tali við Mannlíf að hafa verið feng­inn til verks­ins af Samherja eða að hafa fengið greitt fyrir gerð þátt­anna frá fyr­ir­tæk­inu. Aðspurður sagð­ist hann ekki koma nálægt gerð hinna nýju þátta.

„Nei, nei, nei. Það er langt síðan ég gerði þessa þætti og þeir hafa ekk­ert með þessi mál að gera. Ég kem ekki nálægt því. Ég var ekki feng­inn til verks­ins og þeir áttu ekki hug­mynd­ina að þeim. Ég fram­leiddi þetta sjálfur fyrir Hring­braut. Því fer fjarri að ég hafi verið feng­inn til þess eða fengið greitt fyrir frá Samherja, ekk­ert svo­leiðis,“ sagði Sigurður Kristinn í sam­tali við Mannlíf.

Sjá hér: Samherji greiddi ekki fyrir sjón­varps­þátt á Hring­braut. 

Þessar full­yrð­ingar stang­ast aftur á móti á við fyrri til­svör Sigurðar Kristins, þá í sam­tali við Stundina. Þar kemur fram að Samherji borg­aði og stýrði efn­isvali að hluta til vegna gerð þátt­anna og virð­ist Sigurður Kristinn ganga við því að þættir Hring­brautar um meint gjaldreyr­is­brot Samherja hafi verið kostuð af útgerð­ar­fyr­ir­tæk­inu að ein­hverju leyti. Mál Seðala­banka Íslands gegn Samherja var á end­anum látið niður falla. „Samherji kost­aði þann þátt að lang­mestu leyti. Í þeim þætti var meira að segja kannski svo­lítið langt gengið þar sem birt var sam­tal Þor­steins Más Bald­vins­sonar við Má Guð­munds­son seðla­banka­stjóra án þess að hann vissi af því. Hann við­ur­kenndi það þegar við vorum að vinna þátt­inn að þetta væri brot á reglum en hann ákvað að taka á sig alla ábyrgð og skaða jafn­vel þó Hring­braut hefði þurft að lúta í lægri haldi ef þetta hefði orðið eitt­hvað,“ sagði Sigurður Kristinn.

Mannlíf sló aftur á þráð­inn til Sigurðar Kristins í dag til að bera það undir hann hvor útgáfan sé sú rétta varð­andi styrkt­arfé frá Samherja. Samtalið var á þess leið:

Blaða­maður: Sæll Sigurður, Trausti heiti ég, blaða­maður Mannlífs á nýjan leik. 

Sigurður: Já bless­aður.

Blaða­maður: Fyr­ir­gefðu ónæðið. 

Sigurður: Ég er dáldið mikið upp­tek­inn Trausti, ég er að reyna að reka fyr­ir­tæki hérna. Var ég ekki búinn að svara þér öllu um þetta mál? 

Blaða­maður: Ég þarf bara að spyrja þig að einu. Eftir að við töl­uðum saman fór ég aðeins að grúska og fann hérna umfjöllun um þessa þætti, eldri umfjöllun. Þar sem þú ert kvót­aður um að Samherji hafi borgað þessa þætti að mestu leiti? 

Sigurður: Já, nei, það er eld­gam­alt mál og teng­ist Hring­braut. Ég ætla ekk­ert að tjá mig um það. Þeir voru ekk­ert að borga mér neitt, það er ekk­ert svo­leiðis. Ég er búinn að fá alveg nóg af þessu máli. Það kemur ekk­ert því við sem þú ert að skrifa um útaf ein­hverjum þætti sem er verið að sýna á RÚV á morgun. Ég er búinn að kynna mér þetta, hringdi niður á Hring­braut, en þetta er ein­hver þáttur sem þeir hafa fram­leitt sjálfir og RÚV er að sýna. 

Blaða­maður: Algjör­lega. Enda er ég ekk­ert að tengja þig við þá þætti. Fréttin er hins vegar um það hvort þeir hafi greitt fyrir fyrri þætti. 

Sigurður: Ekkert svo­leiðis. Ég vil ekk­ert ræða þetta mál frekar. 

Blaða­maður: Þú sagðir við mig fyrr í dag að þú hefðir ekk­ert fengið greitt en svo sé ég kvót í þig þar sem þú segir að Samherji hafi greitt fyrir þessa fram­leiðslu. 

Sigurður: Það var blaða­maður sem var alveg útúr korti og rang­túlk­aði það sem ég hafði sagt og það var ekki hægt að leið­rétta þetta. Ég fékk miklar skammir fyrir þetta því þetta kom svo ansa­lega útúr mér. 

Blaða­maður: Reyndir þú að lag­færa þetta? 

Sigurður: Þú mátt ekki hafa neitt eftir mér í því. Þú ert ekki að eiga neitt við­tal við mig, það er á hreinu. 

Blaða­maður: En ég þarf nátt­úr­lega að bera þetta undir þig. 

Sigurður: Já. Heyrðu, ég ætla að slíta sam­tal­inu. 

Og með því lauk sam­tal­inu.

Þess bera að geta geta að Fjöl­miðla­nefnd tók þetta mál og aðra dag­skrár­gerð Hring­brautar til umfjöll­unar og sektaði sjón­varps­stöð­ina um alls tvær millj­ónir króna í fjórum aðskildum ákvörð­unum. Komst hún að þeirri nið­ur­stöðu að kostandi þátt­anna, Samherji hf., hafi haft áhrif á inni­hald og efn­is­tök hins kost­aða frétta­tengda efnis og að um hafi verið að ræða ein­hliða umfjöllun sem ekki hafi verið í sam­ræmi við hlut­lægni­kröfur laga um fjöl­miðla.

Eins og áður sagði verður á morgun sýndur fyrsti þáttur Sam­herja­þátta sem taka munu á ásök­unum um mútur við veiðar í Afríku. Heim­ildir Mannlífs herma að eitt af meg­in­mark­miðum þátt­anna sé að afhjúpa Helga Selja frétta­mann og var Þorbirni Þórð­ar­syni, fyrrum frétta­manni Stöðvar 2, falið það verk­efni. Frétta­mað­ur­inn fyrr­ver­andi er í hópi þeirra að­ila sem veita Sam­herja að­stoð í kjöl­far upp­ljóstr­ana um meintar mútu­greiðsl­ur í Namib­íu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina