Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Gamli“ rjómaosturinn – rýrari og dýrari

„Gamli“ rjómaosturinn – rýrari og dýrari

Það var mörgum fagn­að­ar­efni þegar „gamli“ rjóma­ost­ur­inn frá Mjólk­ur­sam­söl­unni kom aftur á markað í sumar eftir þó nokk­urt hlé. Sá ostur þykir henta vel til mat­ar­gerðar og í bakstur en hann er stíf­ari og þétt­ari í sér en sá nýi.

Ástæðan fyrir því að sá gamli er aftur kom­inn á markað er, að því er fram kemur á vef MS, að MS vildi verða við óskum neyt­enda, sem þótti miður að hann skyldi hverfa af mark­aði.

Það er sann­ar­lega góðra gjalda vert og er það virki­lega gott þegar fyr­ir­tæki sjá sóma sinn í að bregð­ast við kalli neyt­enda. Hins vegar hafa ýmsir furðað sig á að nú er ost­ur­inn kom­inn í mun smærri pakkn­ingu, eða 250 gramma pakkn­ingu í stað 400 gramma áður.

Það væri kannski í lagi ef verð­lagið væri eftir því en svo er ekki. Hann kostar um 600 krónur en hinn, venju­legi rjóma­ost­ur­inn, sem er 400 gr. kostar um 650 krónur. Svo er til það sem kall­ast hreinn rjóma­ostur. Hann er í 200 gramma pakkn­ingu og kostar um 530 krónur. Það vantar því ekki úrvalið en hins vegar vantar sam­ræmi í verð­lagn­ingu.

Í athuga­semd frá Sunnu Gunn­ars­dóttur, sam­skipta­stjóra MS, segir: „Við seljum vör­una frá okkur til versl­ana í heild­sölu sem sjá svo sjálfar um að verð­leggja til neyt­enda. Það er þó verð­munur á vör­unni frá okkur og er ástæðan aðal­lega í hag­ræði í fram­leiðslu á 400g rjóma­ost­inum sam­an­borið við fram­leiðslu á Gamla rjóma­ost­inum, eins og ein­hverjir hafa bent á nú þegar. Gamli rjóma­ost­ur­inn er fram­leiddur í litlu upp­lagi í einu með annarri vinnslu­að­ferð. Rjóma­ost­ur­inn selst reyndar marg­falt á við þann gamla en við viljum reyna að koma til móts við sem flesta.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina