Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Þorbjörg í nýju hlutverki: „Mér finnst tilgangurinn með lífinu skýr“

Þorbjörg í nýju hlutverki: „Mér finnst tilgangurinn með lífinu skýr“

Þorbjörg Haf­steins­dóttir, nær­ing­ar­þerapisti, lífs­mark­þjálfi, rit­höf­undur og yoga-kenn­ari með meiru, er orðin amma.

„Vinkonur mínar eru margar orðnar ömmur fyrir lif­andis löngu og hafa allar dásamað það og nú skil ég það. Það er dásam­legt að vera amma,“ segir Þorbjörg þegar hún er spurð hvernig henni líði í ömmu­hlut­verk­inu, en í nýj­ustu færslu sinni á Facebook deilir hún mynd af dóttur sinni Ástu Leu og fyrsta ömmu­barn­inu, Sölku Liv, í til­efni af afmæli Ástu Leu.

Salka Liv kom í heim­inn þann 10. maí, eða í miðjum kór­ónu­veiru­far­aldri, eins og Þorbjörg orðar það. Hún seg­ist aldrei gleyma til­finn­ing­unni sem fylgdi því að líta ömmu­stúlk­una sína augum í fyrsta sinn, þar sem hún lá við brjóst móður sinnar. „Þetta hitti mig beint í hjarta­stað,“ rifjar hún upp. „Það var hrein­lega eins og tím­inn stæði í stað og allt yrði hljótt og þessi mynd af þeim mæðgum saman hefur ekki horfið úr huga mér síðan.“

Lítið kraftaverk

Sjálf á Þorbjörg þrjár dætur, Ástu Leu, 37 ára, Idu Björk, 35 ára, og Telmu Píl, 25 ára. „Þær eru allar á kafi í sínu lífi, að mennta sig og hasla sér völl í starfi. Barn­eignir hafa þar af leið­andi ekki verið í for­gangi öfugt við það sem var hjá mér, ég átti frum­burð­inn, Ástu Leu, þegar ég var 23 ára og Idu Björk tveimur árum síðar. En það getur verið vand­kvæðum bundið að eign­ast barn seinna á lífs­leið­inni og ekki sjálf­gefið að það tak­ist í fyrstu atrennu að eign­ast barn þegar maður er orð­inn eldri en 35 ára,“ bendir Þorbjörg á og bætir við að því hafi Salka litla verið svo­lítið lengi á leið­inni.

„Vinkonur mínar eru margar orðnar ömmur fyrir lif­andis löngu og hafa allar dásamað það og nú skil ég það. Það er dásam­legt að vera amma.“

„For­eldrar hennar þurftu að hafa svo­lítið fyrir því að koma henni í heim­inn,“ segir hún og brosir út í annað. „En það tókst og hún leit dags­ins ljós í Kaup­manna­höfn 10. maí, meðan kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn geis­aði og bara tæpum tveimur mán­uðum eftir frá­fall afa síns, pabba dætra minna.“

Yndislegt að tengjast ömmubarninu

Þorbjörg játar að það sé svo­lítið sér­stök til­finn­ing að sjá dóttur sína verða að móður, en til­finn­ingin sé góð. Spurð hvort hún upp­lifi mun á móður- og ömmu­hlut­verk­inu hugsar hún sig um og seg­ist svo vera jafnstolt af Sölku Liv og þakk­lát fyrir hana og hún sé þakk­lát og stolt af dætrum sínum. Það sé ynd­is­legt að fá að tengj­ast ömmu­barn­inu. „Ég elska að vera amma hennar Sölku. Það er svo gott að finna ilm­inn af henni og syngja fyrir hana, hugga hana þegar hún er óró­leg, ná að laða fram bros og fylgj­ast með hvað henni fer mikið fram. Salka Liv er með svo ótrú­lega sterkan og sér­stakan per­sónu­leika. Hún er ljósið og kær­leik­ur­inn og þegar hún er í fang­inu á mér finnst mér allt ganga upp og til­gang­ur­inn með líf­inu vera skýr.“

Þakklát fyrir traustið

Þorbjorg ásamt dóttur sinni Ástu Leu og barna­barn­inu Sölku Liv. Mynd / Þorbjörg Haf­steins­dóttir

Þorbjorg seg­ist líka vera þakk­lát for­eldr­unum fyrir traustið sem henni er sýnt. „Ég er þakk­lát fyrir að hafa fengið leyfi frá Ástu Leu til að vera amma og ég finn að mér er treyst fyrir barn­inu. Það er nefni­lega ekki sjálf­sagt og ég reyni að vanda mig eins og ég get,“ segir hún glað­lega og nefnir að hún og for­eldr­arnir ræði allt mögu­legt sem við­kemur umönnun og upp­eldi. „Við tölum um brjósta­gjöf, ung­barna­melt­ingu, matar­æði móður, föð­ur­hlut­verkið, stökkin sem börn taka í þroska, svefn, rútínu, bólu­setn­ingar, nefndu það!“

„Það mega alveg koma fleiri“

Og hvernig gengur að sinna ömmu­hlut­verk­inu? „Vel.“ Þorbjörg brosir. „Ég tala bara við Sölku Liv og syng fyrir hana á íslensku að beiðni móður hennar, því þótt hún búi í Danmörku þá er hún íslenskur rík­is­borg­ari og á að kunna íslensku. Þannig að amman er búin að gera sér lítið fyrir og útvega íslenskar barna­bækur og barna­laga­lista á íslensku á Spotify fyrir barna­barnið!“ Hún hlær. „Eins og ég segi þá nýt ég þess að vera nálægt Sölku minni, hún er lánsöm að vera fyrsta barna­barnið og fá alla okkar athygli og nánd. En það mega alveg koma fleiri. Hinar tvær mega alveg fara að drífa sig, þótt þetta sé auð­vitað full­komið eins og þetta er.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Menning

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Hrósar lýsingum Laxness á íslenskri náttúru og árstíðunum
Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu