Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Yfirgnæfandi meirihluti krakkana segist geta verið meira þeir sjálfir“

„Yfirgnæfandi meirihluti krakkana segist geta verið meira þeir sjálfir“
Yfir­gnæf­andi meiri­hluti ung­menna sem fer í gegnum nám­skeiðin er ánægður. Mynd / Pexels

Sjötíu pró­sent aukn­ing í þjálfun á ungu fólki hjá Dale Carnegie und­an­farna mán­uði.

Sylvia Briem Frið­jóns­dóttir, þjálf­ari hjá Dale Carnegie. Mynd / Aðsend

„Það hefur verð gríð­ar­leg eft­ir­spurn og við búin að setja á lagg­irnar auka­nám­skeið. Það virð­ist vera eins og ungt fólk hafi meiri tíma núna í þessu ástandi til að velta fyrir sér líf­inu og þess vegna hefur það snúið sér af ein­hverjum ástæðum til okkar til þess að bæta sig og fá tæki og tól til að ná lengra,“ segir Sylvía Briem Frið­jóns­dóttir, þjálf­ari og verk­efna­stjóri hjá Dale Carnegie, þegar hún er spurð út í ástæð­una fyrir þess­ari aukn­ingu.

Hún segir að ýmsar ástæður séu fyrir því að ungt fólk leiti til Dale Carnegie. Margir vilji efla sjálfs­traust sitt og sjálfs­ör­yggi til að takast á við áskor­anir dag­legs lífs. „Það er auð­vitað mis­jafnt eftir ald­urs­hópum,“ tekur hún fram. „Hluti af krökk­unum sem koma til okkar eru til dæmis afrekskrakkar sem gengur vel í skóla og íþróttum og að sinna sínum áhuga­málum og vilja leggja sig svo mikið fram í einu og öllu að þau eru orðin stressuð og kvíðin og jafn vel farin að sýna merki um kulnun. Það góða er að þau átta sig sjálf á þessu og vilja gera eitt­hvað í mál­unum. Svo er annar vink­ill og þar eru krakkar sem vilja verða fram­bæri­legri og takast á við sjálfa sig til að ná lengra.“

„Það er einmitt svo mik­il­vægt að krakkar haldi félags­færni og dampi í þessum breyttu aðstæðum, hvort sem það er í námi eða öðru.“

Hjá Dale Carnegie gef­ist þessu unga fólki tæki­færi á því. „Eins og við vitum þá eru miklar breyt­ingar í gangi sem valda til dæmis streitu, kvíða og fleiru og við hjálpum krökk­unum að takast á við þær,“ segir Sylvia. „Krakkar í dag eru miklu meira í tölvum en áður og nú eiga þau jafn­vel enn minna sam­neyti við aðra, í hefð­bundnum skiln­ingi, vegna áhrifa COVID-19 og eiga erf­ið­ara með að setja sér mark­mið og ná þeim en það er einmitt svo mik­il­vægt að krakkar haldi félags­færni og dampi í þessum breyttu aðstæðum, hvort sem það er í námi eða öðru. Á nám­skeið­unum hjálpum við þeim að vinna í sjálfs­traustinu og kennum aðferðir til að efla fram­taks­semi og klára hlut­ina.“

Sylvia seg­ist sjálf hafa sótt nám­skeið hjá Dale Carnegie þegar hún var ung­lingur og það hafi reynst sér mjög vel. „Þarna var ég sextán ára, þrátt fyrir að vera sterk félags­lega og í hand­bolta þá hafði ég ekki nógu mikla trú á sjálfri mér stundum og þorði ekki að láta skoð­anir mínar í ljós af því ég var svo upp­tekin af því að þókn­ast öðrum. Nema hvað þarna fékk ég tól sem hjálp­uðu mér að takast á við þetta, öðl­ast betra sjálfs­traust og fram­kvæma hluti sem ég hafði ekki þorað að gera. Stóra hindr­unin í líf­inu er nefni­lega oft okkar eigið hug­ar­far og skortur á sjálfs­trausti. Þetta eru þættir sem við hjálpum krökk­unum að vinna með og það er gaman að segja frá því að yfir­gnæf­andi meiri­hluti, eða 98 pró­sent þeirra sem að koma á nám­skeiðin okkar, segj­ast geta verið meira þau sjálf. Það er auð­vitað gríð­ar­legur árangur.“

„98 pró­sent þeirra sem að koma á nám­skeiðin okkar, segj­ast geta verið meira þau sjálf. Það er auð­vitað gríð­ar­legur árangur.“

Spurð hvernig fyr­ir­komu­lagið sé á nám­skeið­unum segir Sylvia þau mið­ast við fjóra mis­mun­andi ald­urs­hópa. Krakka á aldr­inum 10 til 12 ára, 13 til 15 ára, 16 til 19 ára og svo fyrir 20 til 25 ára. Þátt­tak­endur ráði sjálfir hvort þeir taki nám­skeiðin raf­rænt eða mæti á stað­inn. „Við pössum auð­vitað upp á að allir fái sitt svig­rúm og eins að tveggja metra reglan sé virt,“ segir Sylvia létt í bragði og getur þess að allar nán­ari upp­lýs­ingar um nám­skeiðin sé að finna á www.dale.is/ungtfolk/

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Kynning

Efni unnið í samstarfi við auglýsendur