Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Mikill misskilningur að lítil rými þurfi eingöngu að vera í ljósum litum“

„Mikill misskilningur að lítil rými þurfi eingöngu að vera í ljósum litum“
Mynd/Hákon Davíð Björns­son

Í litlum rýmum er mik­il­vægt að hönn­un­ar­lausnir séu góðar. Gott skipu­lag er einnig lyk­il­at­riði en auk þess þarf rým­is­upp­lifunin að vera ánægju­leg. Við tókum Katrínu Ísfeld inn­an­húss­arki­tekt tali og báðum hana um að gefa les­endum góð ráð varð­andi hönnun á litlum rýmum.

Katrín Ísfeld inn­an­húss­arki­tekt útskrif­að­ist með BSc í inn­an­húss­arki­tektúr frá Art Institute of Fort Lauder­dale á Flórída en að námi loknu vann hún á Miami Beach við hönnun á lúx­usvillum. Því næst flutt­ist hún til Hollands þar sem hún starf­aði á inn­an­húss­arki­tekta­stofu um þriggja ára skeið. Á Íslandi hefur hún meðal ann­ars starfað hjá Innlifun PKdM arki­tektum ásamt því að starfa sjálf­stætt. Í dag rekur hún eigin hönn­un­ar­stúdíó í Brítet­ar­túni 9-11 ásamt Katrínu Fjeld­sted inn­an­húss­arki­tekt þar sem þær stöllur vinna að hönnun fyrir við­skipta­vini ásamt því að flytja inn og selja inn­rétt­ingar frá ítalska fyr­ir­tæk­inu Arrital.

Hvaða straumar og stefnur finnst þér vera mest áber­andi í dag í arki­tektúr og hönnun?
Mér finnst sér­stak­lega ánægju­legt að sjá meira af litum, mýkt í textíl og formum, list­rænar ljós­myndir og plöntur eru í tísku. Leitað er meira eftir að upp­lifunin í rým­inu sé ánægju­leg, frum­leg og fal­leg. Það sem er hart og kalt er loks­ins á útleið.

Hvað skiptir mestu máli að hafa í huga þegar lítil rými eru hönnuð?
Lítil rými þurfa að hafa gott flæði með auð­veldan aðgang að hlutum. Grunn­myndin þarf að vera úthugsuð, allir sentí­metrar vel nýttir. Varast skal of mikið af ferkönt­uðum formum þegar kemur að hús­gögnum. Einnig skal reyna að útrýma göngum og of mikið af lok­uðum rýmum þar sem hurðir mega oft missa sín en þar koma renni­hurðir eða jafn­vel engar hurðir sterk­ari inn.

Katrín hann­aði litla kjall­ara­í­búð í Hafn­ar­firði með mörgum snið­ugum lausnum. Mynd/Rakel Ósk Sig­urð­ar­dóttir


Hver eru algeng­ustu mis­tökin sem fólk gerir að þínu mati þegar kemur að litlum rýmum?

Fólk á það til að gera skipu­lagið of flókið en ein­fald­leik­inn er bestur og mik­il­vægt er að minnka við sig dótið. Að skipu­leggja nýjar hirslur sem falla vel að rým­inu er mik­il­vægt og þar kemur IKEA sterkt inn. Það þurfa ekki allir hlutir að vera litlir, jafn­vel stórar ljós­krónur og fal­legir stærri hlutir en færri til skreyt­inga og svo er mik­il­vægt að fest­ast ekki í því að það þurfi bara að velja hvíta liti á allt.

Renni­hurðir er sniðug lausn í litlum rýmum til þess að spara pláss. Mynd/Rakel Ósk Sig­urð­ar­dóttir

Hvaða leiðir er best að fara þegar kemur að lita­vali í litlum rýmum?
Það er mik­ill mis­skiln­ingur að lítil rými þurfi að vera ein­göngu í ljósum litum, í því sam­hengi nota ég ljós­ari liti á móti dökkum mjúkum jarð­litum sem mynda skemmti­legar and­stæður og gera lítil rými að flottri upp­lifun.

Þegar kemur að efn­isvali, er eitt­hvað sér­stakt sem þarf að hafa í huga þar?
Það er gott að velja frekar glugga­tjöld inni í glugg­a­ra­mmann, svo­kallað „screen“, heldur en mikið af hang­andi þungum glugga­tjöldum. Nota gler, jafn­vel sand­blást­urs­filmur sem hleypa birtu í gegn en stúka rýmin af í stað veggja. Hirsl­urnar þurfa að falla vel inn í rýmið, þannig að ekki er tekið eins mikið eftir þeim. Það kemur vel út að mála hirslur og skápa í sama lit og vegg­inn þá falla hirsl­urnar alveg inn í, þá má hafa þær í dekkri lit, ann­ars er betra að velja þær í ljósum litum og ljós­ari við­ar­teg­und.

Hér var borð­plötu úr öðru efni bætt við í fram­haldi af inn­rétt­ing­unni sjálfri og nýt­ist það sem auka­borð til að borða við eða sem vinnu­að­staða. Mynd/Rakel Ósk Sig­urð­ar­dóttir

Hvaða leiðir eru bestar til þess að láta rými líta út fyrir að vera stærri en þau eru í raun?
Til dæmis að mála hirslur í sama lit og vegg­ina sem þær falla að. Minnka við sig í hús­göngum, burt með mikið af litlum hlutum, renni­hurðir eru snilld og speglar eru alltaf töfrar í litlum rýmum. Góð lýs­ing sem lýsir fal­lega upp rýmið er mik­il­væg svo rýmin verði ekki dökk og dauð. Svo er mik­il­vægt að gleyma aldrei dimmerum.

Finnst þér algeng­ara nú en áður að fólk kjósi að búa í minna hús­næði og hver er þín fram­tíð­ar­sýn varð­andi þau mál?
Þetta er sam­bland ýmissa ástæðna. Í dag hefur yngra fólk ekki efni á að kaupa stærri íbúðir, enda íbúð­ar­verð mjög hátt. Það fer því í smærra hús­næði. Svo er það fólk sem er á miðjum aldri og kýs að minnka við sig, selja húsið og fer í fal­legar íbúðir með þægi­legri aðstöðu og sæk­ist í að nálg­ast fal­lega nátt­úru með góðum göngu­leiðum. Það er margt búið að ger­ast í hönnun á smærri rýmum og þá sér­stak­lega hjá nágranna­þjóð­unum þar sem ungt fólk kýs að búa í borgum, vegna náms og eða vinnu. Þar eru íbúð­irnar minni og mik­ill metn­aður lagður í hönnun fyrir smærri rými. Þar má nefna IKEA sem eru svaka­lega sterkir í hönnun fyrir lítil rými. Iðn­hönn­uðir hafa lagt mik­inn metnað í hönnun hvað þetta varðar, má þar nefna alls konar útfærslur á rúmum sem hægt er að lyfta upp eða breyta í setu­rými, sniðugar hirslur og svo er algengt að fólk reyni að koma hjól­unum sínum fyrir inn í íbúð­inni og hafa sprottið upp margar flottar lausnir í þeim málum.

Mynd/Rakel Ósk Sig­urð­ar­dóttir


Geturðu nefnt ein­hver dæmi um sniðugar lausnir sem henta vel á litlum bað­her­bergjum?

Grunn­myndin þarf að vera vel hugsuð með sturtu sem er ekki of lítil og auð­velt aðgengi er að því allir vilja góða sturtu. Háir vegg­skápar og hillur koma sterk­lega til greina þar sem dýptin á þeim getur verið frá 20 cm – 35 cm og er oft snið­ugt að vera með rúnn­aða eða hring­laga vaska, jafn­vel á fal­legum borð­plötum sem auð­veldar umgang og vask­ur­inn tekur minna pláss. Svo er snið­ugt að leyfa sér að hafa flottan spegil, jafn­vel stóran með fal­legri lýs­ingu til aðlífga upp á litla fal­lega bað­her­bergið.

Viðtalið birt­ist í heild sinni í 5.tbl. Húsa og híbýla 2020.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni