Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Neytendasamtökin krefja banka um leiðréttingar skilmála og framkvæmd lána

Neytendasamtökin krefja banka um leiðréttingar skilmála og framkvæmd lána

Neyt­enda­sam­tökin (NS) telja skil­mála og fram­kvæmd lána með breyti­legum vöxtum ekki stand­ast lög. Í frétt á vef sam­tak­ana kemur fram að þau hafi sent Arion­banka, Lands­banka og Íslands­banka kröfu­bréf og krafið þá um að lag­færa skil­mála sína og leið­rétta hlut þeirra sem hallað hefur verið á.

NS beindu fyr­ir­spurnum til við­skipta­banka á Íslandi síð­asta vetur um vaxta­út­reikn­ing íbúða­lána með breyti­legum vöxtum. Sam­tök­unum bár­ust svör frá hluta við­skipta­bank­anna, þar sem leit­ast var við að útskýra aðferða­fræði og laga­grund­völl vaxta­á­kvarð­ana bank­anna. Svörin voru hins vegar þess eðlis að NS töldu efni til þess að skoða málið frekar, enda er um að ræða brýnt hags­muna­mál fyrir neyt­endur.

Greining NS sýnir að vaxtaálag banka hefur aukist

Á vegum NS var unnin grein­ing sem sýnir að vaxta­á­lag bank­anna hafi auk­ist á und­an­förnum miss­erum. Þá leit­uðu sam­tökin til Lög­fræði­stofu Reykja­víkur sem greindi fram­kvæmd og laga­grund­völl lána til neyt­enda með breyti­legum vöxtum. Nið­ur­stöður þeirrar grein­ingar er að fram­kvæmd bank­anna er varðar vaxta­breyt­ingar á lánum með breyti­lega vexti upp­fylli í mörgum til­vikum ekki þær kröfur sem gera verður um gagn­sæi. Staðl­aðir skil­málar lána til neyt­enda stand­ist oft ekki lög­mæltar kröfur um upp­lýs­inga­gjöf og skýr­leika sem leiði af sér mikið ójafn­vægi í samn­ings­sam­bandi neyt­anda og bank­anna. Þá kemur fram að bank­arnir hafi ekki lækkað vexti í sam­ræmi við eigin ákvæði í lána­samn­ingum, til dæmis í sam­ræmi við þróun stýri­vaxta Seðla­bank­ans. Þó fjár­hæð­irnar séu ekki alltaf háar fyrir hvern og einn lán­taka, eru þetta veru­legar upp­hæðir séu þær lagðar saman.

Kröfubréf send til stóru bankanna þriggja

Neyt­enda­sam­tökin hafa sent Arion banka, Lands­bank­anum og Íslands­banka kröfu­bréf með alvar­legum athuga­semdum  og skora á bank­ana að:

-lag­færa skil­mála og fram­kvæmd vaxta­breyt­inga, sem lúta að samn­ingum um breyti­lega vexti, og grund­velli vaxta­breyt­ingar á við­miðum sem eru skýr, aðgengi­leg og hlut­læg og unnt að sann­reyna, eins og lög gera ráð fyrir, og

-leið­rétta hlut þeirra neyt­enda sem hallað hefur verið á með ákvörð­unum um vaxta­breyt­ingar, sem teknar hafa verið á grund­velli óskýrra og ófull­nægj­andi skil­mála.

Neyt­enda­sam­tökin telja brýnt að jafn mik­il­vægar ákvarð­anir og breyt­ingar á vaxta­stigi lána séu skilj­an­legar og gagn­sæjar og máli sínu til stuðn­ings vísa sam­tökin til úrskurða Neyt­enda­stofu, dóma Hæsta­réttar og Evr­ópu­dóm­stóls­ins.

Nú þegar vaxta­breyt­ingar eru mjög í deigl­unni og stjórn­endur Seðla­bank­ans stíga fram og vara við að vextir lána muni hækka er rétt­lát og lög­leg fram­kvæmd vaxta­breyt­inga eitt stærsta hags­muna­mál neyt­enda og brýnt að fram­kvæmd breyt­inga verði komið í skikk áður en næsti vaxta­hækk­un­arfasi hefst, eins og segir í frétt NS.

Bank­arnir hafa til 24. sept­em­ber til þess að bregð­ast við kröfum Neyt­enda­sam­tak­anna.

Grein­ar­gerð Lög­fræði­stofu Reykja­víkur má finna hér og hér.

Ert þú með ábend­ingu um neyt­enda­mál? Sendu póst á [email protected].

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina