Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Djarfir blómapottar seljast eins og heitar lummur

Djarfir blómapottar seljast eins og heitar lummur

Versl­un­ar­eig­andi nokkur í Reykja­vík hefur ekki undan við að selja blóma­potta sem líkj­ast brjóstum, rössum og öðrum „við­kvæmum“ lík­ams­hlutum. Hönn­uð­ur­inn bjóst ekki við svona góðri sölu á Íslandi og er him­in­lif­andi með við­tök­urnar.

Elín Bríta rekur LAUUF, sem er vef­verslun og verlsun með áherslu á sér­valdar gæða­vörur frá Banda­ríkj­unum og víðar. LAUUF er að finna á slóð­inni www.lauuf.com og í Sam­búð­inni, sem er sam­vinnu­verslun fimm vef­versl­ana, sem opnar innan skamms í Síðumúla 11. Mynd / Aldís Páls­dóttir

„Það hefur mikil eft­ir­spurn eftir þeim, ég er búin að selja alveg fullt,“ segir Elín Bríta, vöru­hönn­uður og eig­andi versl­un­ar­innar LAUUF, um blóma­potta sem hafa selst eins og heitar lummur í búð­inni. Um er að ræða blóma­potta sem líkj­ast ýmsum lík­ams­pörtum, brjóstum, rössum og typpum í nokkrum lita­af­brigðum.

Blóma­pott­arnir eru úr vöru­lín­unni Nude sem er hönnuð í keramíkstúd­íó­inu Group Partner í Brooklyn, í New York og fram­leidd í tak­mörk­uðu upp­lagi. „Ég rambaði á stúd­íóið þegar ég bjó þar sjálf á árunum 2016 – 2017,“ segir Elín Bríta. „Við mað­ur­inn minn vorum bæði að vinna þar, ég vann sjálf­stætt við að inn­rétta skrif­stofur, en ég er með BA-gráðu í vönnu­hönnun úr Lista­há­skóla Íslands. Meðan við bjuggum úti var ég dug­leg að skoða mig um og rakst þá á þessa skemmti­legu potta og hugs­aði strax með mér að þetta væri nú eitt­hvað sem Íslend­ingar myndu fíla. Og það reynd­ist rétt. Þeir hafa heldur betur slegið í gegn.“

„Fyrst þegar ég fór að flytja þetta inn til lands­ins þá voru bara til brjósta­blóma­pottar og það fór strax mikið af þeim. Síðan komu rassa­pott­arnir á mark­að­inn og þeir selj­ast gríð­ar­lega vel.“

Spurð hvaða gerð blóma­potta njóti mestra vin­sælda segir Elín Bríta að þeir séu nú allir nokkuð vin­sælir. „Fyrst þegar ég fór að flytja þetta inn til lands­ins þá voru bara til brjósta­blóma­pottar og það fór strax mikið af þeim,“ segir hún. „Síðan komu rassa­pott­arnir á mark­að­inn og þeir selj­ast gríð­ar­lega vel. Mér finnst eins og það sé búið að vera aðeins meiri eft­ir­spurn eftir þeim núna, mögu­lega af því að þeir eru nýrri. Þeir eru reyndar bara til í einum lit eins og er, restin er upp­seld,“ segir hún en flýtir sér að bæta við að þó sé ástæðu­laust að örvænta því von sé á öllum gerðum í nóv­em­ber. „Svo er helm­ingi stærri týpa á leið­inni, því blóm og plöntur stækka auð­vitað og þá þarf maður stærri potta undir þær.“

Blóma­pott­arnir eru úr vöru­lín­unni Nude.

Og hver er stærsti við­skipta­hóp­ur­inn? „Ungar konur, svona á ald­urs­bil­inu 25 til 35 ára, eru í miklum meiri­hluta. Þær kaupa yfir­leitt blóma­pott­ana annað hvort fyrir sjálfa sig eða fyrir vin­konur sínar. Það er minna um að karlar kaupi þá,“ svarar Elín Bríta en tekur fram að það sé þó ekki af því að þeir séu eitt­hvað feimn­ari við það, hún hafi alls ekki orðið var við að blóma­pott­arnir særi blygð­un­ar­kennd fólks.

„Nei þvert á móti, fólki virð­ist finn­ast þeir snið­ugir og dæmi eru um að fólk sem hefur fengið í gjöf pott með stelpu í bol skili honum og taki frekar pott með berum brjóstum. Sumir koma meira segja aftur hingað í búð­ina og kaupa fleiri potta, eiga kannski fyrir brjósta­pott og vilja bæta typpa­potti við, til að eiga bæði „stelpu“ og „strák“. Enda taka pott­arnir nú bara mið af manns­lík­am­anum sem er ekk­ert feimn­is­mál í dag.“

„Sumir koma meira segja aftur hingað í búð­ina og kaupa fleiri potta, eiga kannski fyrir brjósta­pott og vilja bæta typpa­potti við, til að eiga bæði „stelpu“ og „strák“.“

Elín Bríta játar að það sé gaman að sjá hvað lands­menn séu spenntir fyrir pott­unum. Hönn­uð­ur­inn Isaac Nichols sé sömu­leiðis him­in­lif­andi með góðar við­tökur. „Við erum búinn að vera reglu­lega í sam­skiptum og hann er svo ánægður með hvað þeir selj­ast vel á Íslandi,“ segir hún, „hann átti hrein­lega ekki von á því.“

Vöru­línan er hönnuð í keramíkstúd­íó­inu Group Partner í Brooklyn, í New York og fram­leidd í tak­mörk­uðu upp­lagi.

Elín Bríta hvetur áhuga­sama til að kynna sér betur Nude blóma­pott­ana á Facebook-síðu versl­un­ar­innar Lauuf og heima­síðu hennar, www.lauuf.com.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni