Bryndís Líndal, móðir Nadíu Sif Líndal Gunnardóttur, segir landsmönnum til syndanna á Facebook. Nadía er önnur tveggja íslenskra kvenna sem heimsóttu ensku landsliðsmennina Phil Foden og Mason Greenwood á Hótel Sögu. Bryndís segir að almenningur tali skelfilega um stelpurnar tvær.
„Er þetta ekki komið gott? Er nauðsynlegt að rústa mannorði ungra stúlkna fyrir ekki stærra atvik en þetta? Gerið þið ykkur grein fyrir því að það eru ungar sálir á bakvið þessi nöfn? Hver hefur ekki verið tvítugur og gert eitthvað sem hann hefði betur mátt sleppa? Hversu margar ungar stelpur myndu vilja hitta myndarlegan frægan strák? eða snúum þessu við, hversu margir strákar myndu vilja hitta myndarlega fræga stelpu? Hefðu þeir verið kallaðir öllum illum nöfnum á kommentakerfunum, hefðu þeir verið kallaðir hórur eða vændismenn? ég held ekki,“ segir Bryndís.
Hún biður bæði fréttamiðla og þá sem skrifa athugasemdir að fara varlega. „Fréttamiðlar, þið megið stoppa núna, þið eruð búin að koma ykkar á framfæri og vel rúmlega það. Að lesa kommentin hjá öllu þessu fullorðna fólki er til háborinnar skammar, hvernig má þetta bara viðgangast. Svo erum við hissa á að börn hér á landi leggi önnur börn í einelti, ég er bara ekkert hissa á því lengur ef börnin eiga svona foreldra sem láta svona viðbjóð útúr sér um ungar venjulegar stelpur,“ segir Bryndís.
Þeir brutu reglur
Bryndís segir fáránlegt að ætlast til þess að allir eigi að vita hver er sé í sóttkví eða ekki. „Gleymum því ekki að þær voru ekki í sóttkví, sá sem er í sóttkví er ábyrgur. Það er ansi mikil ábyrgð lögð á okkur hér á landi ef að við eigum að hafa á hreinu nöfn allra á landinu sem sæta sóttkví. Ég eins og dóttir mín fylgist ekkert með fótbolta, ég hef bara engan áhuga á honum. Svo ég var ekki að fylgjast með þeim fréttaflutningi um enska landsliðið og hvaða reglum þeir gengdu til þess að fá að koma og spila hérna, afh ætti hún þá að vita það eitthvað frekar,“ segir Bryndís og heldur áfram:
„Hér á landi eru þær teknar og jarðaðar því að ÞEIR brutu reglur um sóttkví. Í Bretlandi eru þær teknar og jarðaðar fyrir það að láta þetta leka í blöðin. Nadía tók engar myndir þetta umrædda kvöld og á engan þátt í því að þetta lak í blöðin, svo hún var ekki að leita eftir athygli.“
Skammar landsmenn
Hún segir Nadíu alna upp af alúð. „Nadía Sif er alin upp í mikillri ást og alúð, alin upp við það að tala ekki illa um náungann, hún má ekkert aumt sjá. Hún er alltaf fyrst til að hjálpa þeim sem að líða illa og á hún marga vini sem leita til hennar ef þeim líður illa. Hún er sterk og með bein í nefinu og þakka ég guði fyrir það í dag því að það eru ekki allar ungar stúlkur sem að myndu höndla svona illa meðferð. Auðvita líður henni hræðilega illa yfir öllum þessum skít sem hún er að fá yfir sig. Það er ekki hægt annað en að taka þetta inn á sig. En hún veit réttu söguna, hún veit betur og við fjölskyldan vitum betur,“ segir Bryndís.
Hún biðlar til landsmanna að hætta að úthúða ungar stúlkur: „Reynum nú kæru landsmenn að finna eitthvað skemmtilegra að fjalla um áður en að þessar ungu sálir brotni illa undan þessu öllu. Virðingafyllst, móðir sem elskar barnið sitt útaf lífinu og finnst barnið sitt alltaf flottast og best þó það stígi feilspor í lífinu.“































Athugasemdir